Kaupfélagsblaðið - 03.12.1980, Blaðsíða 4

Kaupfélagsblaðið - 03.12.1980, Blaðsíða 4
Ný lög K.S.K.E=------------------ z Á síöasta aðalfundi K.S.K. voru samþykkt ný lög fyrir Kaupfélag Suðurnesja. Áður en aðalfundur fékk þau til afgreiðslu höfðu þau verið tekin til umræðu á öllum deildarfundum félagsins á árinu og einnig á stjórnarfundum. Samþykktir kaupfélagsins voru að mestu leyti arfur frá fyrstu dögum samvinnustarfsins á Suður- nesjum. En í hinum gömlu samþykktum Kaup- félags Reykjavíkur og nágrennis varekki tjaldaðtil einnar nætur. í þeim er að finna öll undirstöðu- atriði og höfuðmarkmið samvinnuhreyfingarinn- ar. Reynslan sýnir þó að samþykktir kaupgélag- anna þurfa að þróast með félögunum. Ein grund- vallarþreyting var gerð á samþykktunum, ef miðað ervið upþhaflegarsamþykktirfélagsins. Þarerum að ræða aukin áhrif starfsmanna á stjórnun fyrir- tækisins. Skref var stigið í þessa átt, þegar áheyrnarfulltrúi starfsmanna tók sæti á stjórnar- fundum. Eftir breytinguna er nú hægt að kjósa .. 3EEE7T7"........ starfsmenn í aðalstjórn, í deildarstjórnir og í stjórn deildarráðs. Við endurskoðun samþykktanna voru höfð til hliðsjónar lög K.S.K., lög KRON, lög um samvinnufélög, samþykktir SÍS og samþykktir KEA. í lögunum er að finna nokkra tugi atriða sem kalla mætti starfslýsingu um flest er varðar stjórnun félagsins. Reynt var að færa í fast form ýmsar venjur sem vel hafa reynst, um fundahöld, fulltrúakjör, kynningarstarf og fleira. Deildarfund- ina þarf að efla, sökum þess að þeir eru opnir öllum félagsmönnum til umræðu um málefni félagsins. Reynt verður að hindra að fulltrúafund- irtaki mikilsverðarákvarðanirán undangenginnar umræðu um málið á deildarfundum. Með því móti er hægt að gefa öllum félagsmönnum kost á að taka þátt í að marka stefnuna í mikilsverðum málum. ( laganefnd voru Guðjón Stefánsson, Sigfús Kristjánsson og Sigurður Erynjólfsson. Fræðslunefnd Kaupfélagsins Kaupfélögin eru nú flest meðfræðslunefndirog hafa mörg ráðið sér félagsmálafulltrúa. K.S.K. hefur einnig skipað nefnd til að sinna félagsmálunum og eru í henni, Sigfús Kristjáns- son frá stjórn félagsins, Skjöldur Þorláksson frá starfsmannafélaginu og Sólveig Þórðardóttir, en hún hefur undanfarin ár tekið virkan þátt í fundum félagsins og verið fulltrúi þess á aðalfundum SÍS. Fræðslunefndinni hefur verið markað starfssvið, þar sem henni er ætlað í samráði við stjórn félagsins að vinna að þessum málum. Að kynna almenningi skipulag og störf kaupfélagsins og það hlutverk sem því er ætlað að gegna. Að koma upp fræðslu- og kynningarfundum. Að koma á fót vörukynningum. Að efla samvinnufræðslu meðal starfsfólks. Að skipuleggja námskeið í sérgrein- um tyrir starfsfólk.

x

Kaupfélagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kaupfélagsblaðið
https://timarit.is/publication/1570

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.