Kaupfélagsblaðið - 01.12.1990, Side 15
KAUPFÉLAGSBLAÐIÐ
Á sínum tíma gaf KRON búðarkassa til verslunar á Tanzaníu.
Af því tilefni var myndin tekin fyrir utan eina verslun sem
rekin er í samvinnustarfi.
„í vatni upp aö höku“
„Reksturinn á ísafirði var
erfiður þegar ég kom og allan
tímann meðan ég var þar.
Menn voru í vatni upp að höku
alla daga. Ég réð mig sem
kaupfélagsstjóra á ísafirði í tvö
ár og tjáði þeim fyrir sunnan að
ég lofaði ekki að vera lengur.
Þetta var 1978 sem ég fór
vestur og um áramótin 1979-
80 höfðu þeir hjá danska
utanríkisráðuneytinu samband
við mig og tjáðu mér að
ákveðið hafi verið að veita
fjármagni til verkefnisins í
Kenya sem ég hafði lagt til í
skýrslu minni að sett yrði á fót,
og spurðu hvort ég vildi ekki
taka þátt í verkefninu.
Þar sem ég stóð á tíma-
mótum, sló ég til og fluttist út
að nýju og fékk til liðs við mig
tvo stráka sem voru að út-
skrifast úr hagfræði úr háskól-
anum í Nairobi. Við ferð-
uðumst mikið og komum
mörgum verkefnum af stað".
Markaðsráð og
Samkort
„Ég kom heim aftur 1983 og
hóf þá störf hjá Markaðsráði
Samvinnufélaganna sem þá
var til, og var sam-
ræmingaraðili í verslun sam-
vinnufélaganna hér heima.
Hjá Markaðsráði var ég til "85
er ég fór til Verslunardeildar
Sambandsins og starfaði þar
við hliðstæð verkefni og hjá
Markaðsráði og einnig við
verslunarráðgjöf. 1988 var ég
ráðinn markaðsstjóri Versl-
unardeildar og var þar í eitt ár,
eða þar til miklar breytingar
voru gerðar um áramótin "88-
89 og mér ásamt um 30 öðrum
starfsmönnum Verslunar-
deildar var sagt upp störfum.
Við þessar breytingar var
mér boðin vinna hjá Samkorti
hf. til sex mánaða, en hér hef
ég verið síðan", sagði
Sigurður.
Kvenfólkið notar
Samkort
Það er farið að líða að lokum
þessa spjalls okkar Sigurðar,
enda hefur víða verið komið
við og reyndar margt annað
hægt að segja og fylla margar
bækur. Það var samt ekki úr
vegi að fræðast lítillega um
Samkort og láta það vera
lokorð þessa samtals:
„Útbreiðsla Samkorta er
ekki mikil. Þetta eru um 4.000
kort sem eru í umferð og flest
utan höfuðborgarsvæðisins.
Samkort hefur annan gjald-
daga en önnur greiðslukort og
það hefur fólk kunnað að
meta. Konur eru af stærstum
hluta notendur Samkorts og þá
er kortið notað sem heim-
iliskort. Þess má geta að út-
tektir á Samkort eru töluvert
hærri en á t.d. Vísakort. Fyrir-
tækjunum sem taka Samkort
fer alltaf fjölgandi og nú eru
það um 1.000 fyrirtæki á ís-
landi sem taka kortin sem
greiðslumáta", sagði Kefl-
víkingurinn og heimhorna-
flakkarinn Sigurður jónsson að
endingu.
SPURTÍ
SAM-
KAUP
Hvernig finnst þér að
versla í Samkaup?
Ragna Sveinbjörnsdóttir:
„Mér finnst ágætt að versla hér.
Það er mjög gott vöruúrval hér og
ég hugsa að verð hér sé ágætt.
Innkaup geri ég tvisvar í viku, þá
á ég við stórinnkaup. Ég er með
það stórt heimili að ég þarf að
versla oftar, en stærri innkaupin
geri ég tvisvar í viku. Ég ber alltof
lítið saman verð, en reyni það
þó".
Ástríður Sigurvinsdóttir:
„Mér finnst ágætt að versla í
Samkaup. Vöruúrvalið hér er
mjög gott og verðið er ágætt. Það
er nú upp og ofan hversu oft ég
versla í viku, en oftast er það um
helgar. Já, ég ber saman verð á
vörum".
Rósmary Aðalsteinsdóttir:
„Ég versla oftast hér í Samkaup
og finnst það ágætt. Vöruúrvalið er
mjög gott og verðið ágætt. Innkaup
geri ég tvisvar í viku og þá oftast á
þriðjudögum og föstudögum. Verð
á vörum ber ég yfirleitt saman".
Sendum
Suðurnesjabúum
bestu jóla- og
nýárskveðjur.
Þökkum viðskipti
liðinna ára.
Samvinnubankinn
Keflavík
15