Kaupfélagsblaðið - 01.12.1990, Qupperneq 18
KAUPFÉLAGSBLAÐIÐ
BYRJAÐIR
AÐLÆKKA
VERÐÁ
NAUÐSYNJA-
VÖRU
-rœtt við Björn Albertsson verslunarstjóra
Kaupfélags Suðurnesja að Faxabraut 27
Uað hefur líklega ekki
farið framhjá mörgum
að verslun Kaupfélags Suður-
nesja að Faxabraut 27 hefur
verið „tekin í gegn". Búið er að
mála verslunina að utan sem
að innan, auk annarra breyt-
inga sem hafa verið gerðar.
Kaupfélagið hefur verið rekið
að Faxabraut 27 á þriðja áratug
og er hún ein af fáum svo-
kölluðu hverfaverslunum, sem
enn eru reknar í Keflavík.
Kaupfélagsblaðið ræddi við
verslunarstjórann þar, Björn
Albertsson, í tilefni þeirra
breytinga sem gerðar hafa
verið.
„Ffér hefur verið breytt
miklu innandyra. Við endur-
nýjuðum mjólkurkælinn, auk
kæia og frysta í versluninni.
Gamli frystirinn var tekinn
burtu en hann tók hér mikið
pláss. Þá var og málað allt að
utan sem að innan", sagði
Björn.
Eitt af því sem ekki fer fram-
hjá fólki er liturinn sem
máJaður var á búðina utan-
dyra. Bleikur? „Það er ekki
hægt að kvarta yfir því að fólk
taki ekki eftir versluninni eða
litnum" sagði Björn og brosti.
Verðum meö
tilboöspall
En það var ekki aðeins að
verslunin væri lagfærð, heldur
verða ýmsar breytingar á
þjónustu hennar einnig. „Já,
við verðum hér með
tilboðspall, þar sem ýmsir
vöruflokkar verða boðnir á
tilboðsverði. Þá erum við
byrjaðir að lækka verð á
brýnustu nauðsynjavörum
fólks. Einnig munum við sem
dæmi verða með gos-
drykkjavörur á svipuðu verði
og stórmarkaðarnir. Til-
gangurinn er að koma til móts
við okkar viðskiptavini og
jafnframt að verða sam-
keppnisfærari".
....yngra fólkið er farið að versla
hér meira en áður. Eldra fólkið í
hverfinu gerir öll sín innkaup hér á
Faxabrautinni.
FHverjir eru viðskiptavinir
verslunarinnar hér að Faxa-
braut?
„Það er alls konar fólk og
blandaður hópur. Mér finnst
breyting hafa orðið á við-
skiptahópnum á síðastliðnu
ári, því yngra fólkið er farið að
versla hér meir en áður.
Reyndar er það svo að eldra
fólkið í hverfinu gerir öll sín
innkaup hér, en yngra fólkið
kaupir það sem því vantar.
Þessi verslun hefur sérstöðu að
því leyti að hér er mikil gos-
drykkja- og sælgætissala".
Byrjaöi sem sendill
Björn hefur starfað hjá
Kaupfélagi Suðurnesja síðan
1987 og þá sem sendill fyrir-
tækisins. „Eins og margir góðir
menn. En síðan var mér boðið
að verða verslunarstjóri í
kaupfélagsversluninni að
Hafnargötu 30 og þar var ég
um tíma. Síðan fór ég hingað
á Faxabrautina og sá um versl-
unina hér um tíma, en varð
síðan verslunarstjóri í Sand-
gerði þar sem ég var í eitt og
hálft ár. Hingað kom ég svo
aftur fyrir mánuði síðan".
Hvernig líkar þér að starfa í
verslun?
„Mjög vel. Maður hittir
mikið af fólki og kynnist
mörgum. Hér t.d. á Faxa-
brautinni eru fastakúnnar sem
maður þekkir orðið í gegnum
tíðina".
Hverfisbúðir, eiga þær
framtíð fyrir sér í samkeppni
við stórmarkaðina?
„Það tel ég og hef trú á því
að sú þróun sem nú er, eigi
eftir að breytast á næstu árum.
Það er miklu persónulegra að
versla í hverfaverslun þar sem
fólk þekkir viðskiptavinina og
þeir þá sem starfa í versl-
uninni", sagði Björn Al-
bertsson verslunarstjóri að
lokum.
Björn Albertsson, deildarstjóri Kaupfélagsins að Faxabraut 27.
18