Kaupfélagsblaðið - 01.12.1990, Page 20

Kaupfélagsblaðið - 01.12.1990, Page 20
KAUPFÉLAGSBLAÐIÐ Bafií rekstri félagsins DeildarráÐsfundur: Frá deildarráðsfundinum á Flughóteli. Guðjón Stefánsson, kaupfélagsstjóri í ræðustól. mánuði ársins. Kom fram í ræðu Guðjóns að nokkur bati hefði orðið í rekstrinum á þessu ári. Minni verðbólga og aukinn stöðugleiki í kjölfar „þjóðarsáttar" ættu drjúgan þátt í batanum. Hagnaður eftir átta mánuði var 4,5 milljónir. Guðjón skýrði síðan frá helstu lagfæringum og endur- bótum sem væri verið að vinna að í búðum félagsins og fyrir- hugaðar væru á næstu mán- uðum. Þá skýrði hann einnig fyrir fundarmönnum skipu- lagsbreytingar sem verið er að vinna að hjá Sambandi ísl. samvinnufélaga, sem felast í því að 6 aðaldeildum þess verður breytt í sjálfstæð hluta- félög. Breytingar þessar munu væntanlega koma til fram- kvæmda um næstu áramót. Innan tíðar eykur Landsbankinn pjónustuna á Suðurnesjum með opnun afgreiðslu í Keflavík Landsbankinn hefur kappkostað að þjónusta Suðurnesjamenn vel með afgreiðslum í Grindavík, Sandgerði og Leifsstöð. Innan tíðar bætum við um betur og opnum afgreiðslu í Keflavík. Landsbanki íslands Grindavík - Leifsstöð - Sandgerði - í Keflavík innan tíðar. Ingólfur Falsson, fram- kvæmdastjóri Hraðfrystihúss Keflavíkur hf., flutti skýrslu um málefni hraðfrystihússins. Hann rakti þá erfiðleika sem við hefur verið að glíma í rekstirnum á síðustu árum, sem nú hafa leitt til þess að nauðsynlegt reyndist að selja togarann Aðalvík. I máli Ingólfs kom fram að unnið væri að samningum og uppgjöri við lánadrottna fyrir- tækisins og væri því senn lokið. Hann sagði frá stofnun félagsins Stakksvíkur hf., sem kemur til með að eiga hús- eignina Vatnsnesveg 2 (hrað- frystihúsið). Eftir skýrslu þeirra Guðjóns og Ingólfs urðu tals- verðar umræður og fyrirspurnir um málefni þessara félaga. Stjórn deildarráðs var endurkjörin, en hana skipa Guðbjörg Ingimundardóttir, Jón V. Einarsson og Aslaug Húnbogadóttir. eildarráðsfundur Kaup- I félags Suðurnesja var haldinn 18. október sl. Guðjón Stefánsson, kaup- félagsstjóri, flutti skýrslu um rekstur félagsins fyrstu átta

x

Kaupfélagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kaupfélagsblaðið
https://timarit.is/publication/1570

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.