Kaupfélagsblaðið - 01.12.1990, Page 26

Kaupfélagsblaðið - 01.12.1990, Page 26
aupfélag Suðurnesja I hefur rekið verslun í Garðinum um tæplega þriggja ára skeið og hefur Þorbjörg Friðriksdóttir verið deildar- stjóri þar frá upphafi. „Kaupfélagið byrjaði verslun hér í Garðinum, þegar kaup- maðurinn sem var hér áður ákvað að hætta rekstrinum. Ég var beðin um að taka við starfi deildarstjóra hér, en ég starfaði þá í Kaupfélaginu í Sandgerði og hafði unnið þar síðan 1983/84. Annars hef ég unnið í verslun síðan ég var fjórtán ára og byrjaði í KRON í Kópa- vogi. Þekkir viöskiptavininn og þarfir hans Þorbjörg sagði að það væri eldra fólkið sem héldi tryggð við verslunina í sinni heima- byggð, en að yngra fólkið færi til Keflavíkur og gerði sín helgarinnkaup þar. „Við höfum látið keyra heim vörum fyrir eldra fólkið því að kostnaðarlausu. Það sem hefur verið vandamálið við að reka verslun hér, er að við höfum ekki verið samkeppnishæf við stórmarkaðina í verði. Þeir hafa miklu hraðari og meiri veltu og ná því að fá afslætti sem eru betri en við fáum. Hér verslar fólk frá degi til dags, mjólkurvörur, brauð og annað en fer síðan inn í Keflavík og gerir stærri innkaupin". í minni verslunum er þjón- ustan persónulegri og betri að dómi Þorbjargar. „Maður þekkir viðskiptavinina og hans þarfir. Ég get nefnt þér dæmi, að það kom kona hér um dag- inn, sem bjó áður í Hafnarfirði, og þó svo að það væru níu ár síðan ég sá hana síðast í versl- un, þá þekkti ég hana aftur. Viðskiptavinirnir verða óbeint KAUPFÉLAGSBLAÐIÐ PERSONULEGRIOG BETRI ÞJÓNUSTA ÍLITLU BÚÐUNUM ■segir Þorbjörg Friðriksdóttir, deildarstjóri Kaupfélags Suðurnesja í Garði kunningjar manns og manni fer að þykja vænt um þá". Erum alltaf meö vörur á tilboðspalii Kaupfélag Suðurnesja er þessa dagana að fara af stað meö átak varðandi minni verslanir þess. Verða ýmsar vörur settar á tilboðsverð og álagning lækkuð á öðrum. „Við vonum að fólk taki eftir þessum breytingum. Dreifibréf hefur verið sent í öll hús í Sandgerði og Garði um vörur sem við erum með á tilboósverði. Um er að ræða bökunarvörur. Síðan munu aðrar vörutegundir, sem mikið eru notaðar af fólki fyrir jólin, verða á jólatilboði". Kom einnig fram hjá Þorbjörgu, að hjá Kaup- félaginu væri alltaf f gangi tilboð á vörutegundum á sér- stökum tilboðspalli. „Ég vona að Garðmenn taki eftir þeim tilboðum sem vió veróum með og sjái sér hag í að koma hingað", sagði Þorbjörg Friðriksdóttir að lokum. Birgir hafði ekki undan í haust bauð Samkaup lambakjöt í heilum skrokkum frá árinu 1989 á útsöluverði. Mikii viðbrögð urðu þegar þetta var auglýst og hafði Birgir Scheving og hans fólk í Kjötsel ekki undan við að saga niður útsöluskrokkana fyrir fólk. Að sögn Gylfa Kristinssonar, verslunar- stjóra í Samkaup seldust um 200 skrokkar á innan við tveimur vikum. Birgir Scheving í Kjötsel og hans starfsfólk hefur haft í nógu að snúast á þessu ári. Kjötsel afgreiðir kjöt til margra ver- slana og veitingastaða og að sjálfsögðu til Samkaups og kaupfélagsverslana. Á myn- dinni má sjá Birgi við sögina þegar útsöluskrokkarnir hrein- lega „flugu út". 26

x

Kaupfélagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kaupfélagsblaðið
https://timarit.is/publication/1570

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.