Kaupfélagsblaðið - 01.12.1990, Side 27
KAUPFÉLAGSBLAÐIÐ
Aðalfundur Kaupfélags Suðurnesja:
Bjartsýni eftir gott ár
Aðaltundur Kaupfélags Suð-
urnesja var haldinn í Sam-
komuhúsinu í Sandgerði laug-
ardaginn 10. mars. I ræðu for-
manns, Magnúsar Haraldssonar,
kom m.a. fram að afkoman á
árinu 1989 var mun betri
en árið á undan eða
hagnaður kr. 7.4 millj-
ónir, en árið 1988 var tap
félagsins um 14 milljónir
króna. Þrátt fyrir þessa
bættu afkomu vantar
nokkuð á að tap fyrri ára
hafi unnist upp. Einnig
kom fram að hagnaður af
sölu eigna var svipaður
bæði árin.
Á árinu hætti KSK öll-
um verslunarrekstri í
Grindavík og seldi
brunarústirnar að Hafn-
argötu 30 í Keflavík.
Hefur verslunum félags-
ins því fækkað um fjórar á
þessum árum.
í skýrslu kaupfélagsstjóra,
Guðjóns Stefánssonar, kom fram
að sala ársins að frádregnum
söluskatti var rétt rúmur einn
milljarður og launagreiðslur fé-
lagsins um 11 5 milljónir.
Veltufjárhlutfall hefur heldur
batnað eða farið úr 0.98 í 1.01.
Almennt ríkti nokkur bjartsýni
yfir þessum upplýsingum á
fundinum þó Ijóst sé að ýtrustu
varkárni og aðhalds sé þörf, nú
sem endranær.
Að loknum skýrslum for-
manns og kaupfélagsstjóra flutti
Ingólfur Falsson, framkvæmda-
stjóri Hraðfrystihúss Keflavíkur
hf., skýrslu. í umræðum um hana
gætti ekki sömu bjartsýni og
höfðu fundarmenn miklar
áhyggjur af þeirri óheillavæn-
legu þróun sem á sér stað í sjáv-
arútvegi og fiskvinnslu á Suður-
nesjum.
Að loknu matarhléi flutti
Gunnar Hilmarsson, stjórn-
arformaður Atvinnutrygginga-
sjóðs, erindi er kallaðist
„Atvinnutryggingasjóð-
ur og Suðurnes".
Að loknum umræð-
um um erindi Gunnars
fóru fram kosningar í
stjórn félagsins. Kjörtími
tveggja stjórnarmanna
var útrunninn og var
Magnús Haraldsson
endurkjörinn í stjórnina
og Guðbjörg Ingimund-
ardóttir kosin í stað
Kristins heitins Björns-
sonar sem átti sæti í
stjórn Kaupfélagsins um
langt árabil. Þá var Pét-
ur Þórarinsson kosinn
annar varamaður og Óskar
Guðjónsson þriðji varamaður.
Fundarstjórar á aðalfundinum
voru Jóhann Einvarðsson og
Óskar Guójónsson og ritarar
Guðbjörg Ingimundardóttir og
Þorbjörg Friðriksdóttir.
Hvernig finnst þér að
versla íSamkaup?
Margrét Sigurðardóttir:
„í Samkaup versla ég alltaf og
þá geri ég það um helgar,
vöruúrvalið hér er mjög gott.
Ég rata hér á allar vörur og
verð á þeim er allt í lagi."
Hallbjörn Sævars:
„Það er mjög gott að versla
hér í Samkaupum. Vöruúr-
valið er mjög gott í verslun-
inni og verð á þeim þokka-
legt. Það er tvisvar í viku sem
verslað er inn fyrir heimilið."
NÚ KRAUMAR AFTUR í POTTUNUM í SAMKAUP
Heitur matur
í hádeginu
og á föstudagseftirmiðdögum
„A la Axel"
■ Tilvalið fyrir fyrirtæki, stofnanir og
einstaklinga
■ Góður venjulegur heimilismatur, frá
Veisluþjönustunni eins og hann
27