Morgunblaðið - 15.01.2021, Blaðsíða 4
Atli ákvað á þessum tíma að læra markþjálfun til að
geta spurt réttra spurninga.
„Verkefnin sem ég er að vinna núna er að aðstoða
stjórnendur í að endurskipuleggja skipuritið í fyr-
irtækjum sínum og láta hlutina snúast um upplifun við-
skiptavinarins þar sem lögð er áhersla á að finna réttu
gildin og að starfsmenn lifi þessi gildi og komi þeim þann-
ig áfram til viðskiptavina sinna.“
Með sterkar taugar til Íslands enn þá
Atli er fæddur og uppalinn á Íslandi og á góðar minn-
ingar frá æskuárunum. Í dag kallar hann Þýskaland
heimaland sitt þó hann hafi margoft ætlað að flytja til Par-
ísar eða New York þá er eitthvað við Þýskaland sem dreg-
ur hann alltaf til baka aftur.
„Ég er mjög þakklátur fyrir rætur mínar á Íslandi og
lærði ég einstaklega margt áhugavert í æsku sem ég
gleymi aldrei. Sem dæmi var ég 12 ára þegar ég stóð
fyrstu vaktina mína í verslun foreldra minna, hjá Sævari
Karli í Bankastræti og man ég enn þá í dag hver fyrsta
flíkin var sem ég seldi; Burberry-frakki sem ég var ein-
staklega stoltur af að selja.
Ég er á því að Þjóðverjar og Íslendingar séu ákaflega
ólíkt fólk, en það er kannski ástæðan fyrir því að þjóð-
verjar eru svona heillaðir af okkur Íslendingum.“
Foreldrar Atla búa í München á veturna og á Íslandi á
sumrin sem gefur honum góða ástæða til að koma reglu-
lega í heimsókn hingað heim. Meðfram uppbyggingu á
eigin fyrirtæki hefur Atli gert hvað hann getur til að vera í
stöðugri framþróun með sjálfan sig.
„Ég lifi mjög heilbrigðu lífi og reyni eins vel og ég get
að stíga inn í að vera maðurinn sem mig hefur alltaf
dreymt um að vera. Þannig get ég einnig aðstoðað annað
fólk við að ná sínum markmiðum á þessu sviði. Ég er rosa-
lega forvitinn og mun án efa seint þreytast á því að læra
nýja hluti um mig sjálfan og fólkið í kringum mig.
Ástæðan fyrir því að ég valdi heimspeki á sínum tíma
var forvitni mín að skilja hvað það er sem hreyfir við okk-
ur mannfólkinu. Af hverju við gerum það sem við gerum
og hver kjarninn er í hverri hugmynd og hvað gerir okkur
að því sem við erum. Siðfræði var síðan rauði þráðurinn
sem heillaði mig mikið.“
Fólkið áhugaverðara en töskurnar sem hann seldi
Atli er ekki stoltur af þeim þúsundum af handtöskum
sem hann seldi heldur af öllu fólkinu sem hann réð í vinnu
hjá fyrirtækjunum sem hann vann hjá og sjá hvert það
hefur leitt fólk.
„Ég hef alltaf horft á persónuleika fólks og réð gott fólk
frekar en fólk sem var gott í að selja vörur. Þannig gat ég
þjálfað upp aðila sem voru með áhugaverðan persónuleika
og margir af þessum einstaklingum vinna nú í stjórnenda-
stöðum fyrir alls konar alþjóðleg tískuhús sem mér finnst
gaman að fylgjast með. Það gefur mér tækifæri á að
tengjast tískunni áfram og að fá þessa ánægju sem fylgir
því að sjá fólki ganga vel í sínu.“
A
tli er búsettur í Þýskalandi og hefur í gegnum
árin unnið fyrir tískuhús á borð við Hugo Boss,
Prada og Hermés. Í dag býr hann í borginni
Dusseldorf. Hann á ekki langt að sækja hæfi-
leika sína þegar kemur að tískunni en hann er
sonur þeirra Sævars Karls Ólafssonar og Erlu Þórarins-
dóttur en þau ráku verslunina Sævar Karl um langt skeið.
Hann lærði heimspeki í Þýskalandi og tók meistarapróf
í faginu á sínum tíma. Bætti seinna við sig MBA-gráðu og
var að vinna sig upp í metorðastiganum þegar hann upp-
götvaði mikilvægan hlut þegar kom að honum sjálfum og
vinnunni hans.
„Ég fann að eftir því sem ég færðist ofar í stjórn-
endastöðu, þá fjarlægðist ég fólkið á gólfinu sem var í
raun og veru ástríða mín. Ég var orðinn sölustjóri Her-
més í Norður-Evrópu og starfaði beint undir rekstr-
arstjóra þegar ég ákvað að nota menntun mína og reynslu
og fara í að stofna mitt eigið fyrirtæki þar sem ég vinn
maður á mann og hef þannig meiri áhrif á fleiri fyrirtæki.“
Hvað ertu með á skrifborðinu hjá þér þessa dagana?
„Ég hef verið að skrifa tvær bækur. Önnur heitir Why
Not Naked? Þar sem ég er að fást við hugmyndir tengt
tísku og heimspeki. Hugmyndin spratt upp úr hugsuninni
um dýpri tilgang tískunnar. Mér finnst æðislegt að vera á
þessu lífsskeiði sem ég er á núna þar sem ég get opnað á
alls konar tækifæri í lífinu. Ég er í þjónustuhlutverki
gagnvart verkefnunum sem koma upp í lífinu og í bókina
set ég einnig þá hugsun. Ég hef einnig verið að vinna að
annarri bók á undanförnum árum, sem er skáldsaga er
gerist á Kúbu.“
Árið búið að vera mjög spennandi
Hvernig er árið búið að vera?
„Árið er búið að vera mjög spennandi og á allan hátt
mjög jákvætt fyrir mig persónulega. Í upphafi ársins var
ég með mörg járn í eldinum. Meðal annars var ég í samn-
ingaviðræðum við að setja upp markþjálfunarskóla og
þjálfunarkerfi hér í Dusseldorf með stóru fyrirtæki sem
er nú þegar með mikla veltu. Vegna kórónuveirunnar þá
hafa þau plön verið sett á ís og ég verið að færa mig yfir í
að vinna með fólki í ráðgjöf og markþjálfun meira í gegn-
um netið.
Það er eitthvað sem ég hefði aldrei gert ef ekki væri út
af ástandinu. Ég þótti einstaklega svartsýnn á sínum tíma
þegar ég taldi lokun verða í alla vegana sex vikur. Ég get
brosað að því nú sitjandi í lokuðu samfélagi rétt fyrir jólin,
en hef komist á þann stað á árinu að vera að vinna með
fólki úti um allan heim í gegnum netið. Ég lít á það þannig
að mér hafi bara verið ætlað að vinna með fólki víða um
heiminn og það hefur fært mér tækifæri sem ég hefði
aldrei fengið ef ekki væri fyrir ástandið.“
Segir að hann sjálfur sé góður félagsskapur
Atli býr einn og segist njóta þess út í ystu æsar.
„Það eru fáir sem mér líður jafnvel með og mér sjálfum.
Þótt ég elski að hafa fólk í kringum mig og að vinna með
alls konar fólki. Ég sé framtíðina þannig fyrir mér um leið
og ástandið breytist, en þangað til ætla ég að gera mitt
besta í að vera góður félagsskapur fyrir mig og aðilana
sem ég vinn fyrir dag frá degi. Ég er feginn að vera í
Þýskalandi í dag og held að það sé í raun og veru hvergi
betra að vera en hér og í Skandinavíu í þeirri stöðu sem
ríkir í heiminum í dag.“
Þakklæti honum ofarlega í huga
Atli segir að hann líti um öxl til ársins sem er liðið og
upplifi djúpt þakklæti fyrir lífið og tilveruna.
„Ég er þakklátur fyrir allt sem ég á og hef. Ég er þakk-
látur fyrir vini mína og fjölskyldu ég ber virðingu fyrir
öllu því sem hefur gerst og er þakklátur fyrir að veiran
hefur ekki náð til mín og minna. Ég upplifi okkur í miðjum
storminum, þar sem við munum aldrei geta farið þangað
sem við erum að koma frá.
Ég tel okkur vera í miðjunni á stórum breytingum þar
Fáir Íslendingar hafa náð þeim árangri sem
Atli Freyr Sævarsson hefur gert í heimi tísk-
unnar alþjóðlega. Hann lærði markþjálfun og er
nú að byggja upp sitt eigið fyrirtæki á því sviði.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
SJÁ SÍÐU 6
Ljósmynd/ Laetitia Vancon
Atli Freyr Sævarsson
og Sölvi Snær Magn-
ússon framkvæmda-
stjóri Laundromat eru
bestu vinir úr æsku.
Yfirgaf tísku-
heiminn til að
hjálpa öðrum
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2021
Þín leið
til fræðslu
Sveitamennt styrkir starfsmenntun beint til sveitafélaga
og stofnana þeirra á landsbyggðinni.
Sjóðurinn veitir styrki í fræðsluverkefni á vegum
stéttarfélaganna.
Sjóðurinn veitir styrki til einstaklinga og sjá stéttarfélögin
um afgreiðslu þeirra í umboði Sveitamenntar.
Kynntu þér rétt þinn á www.sveitamennt.is
Sveitamennt