Morgunblaðið - 15.01.2021, Blaðsíða 16
Lærði að lesa
fólk og finna þá
sem hafa mestu
áhrifin á aðra
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2021
Spennandi námskeið 2021
Námskeið í boði fyrir
börn og unglinga
• Teiknun, málun & mótun
Námskeið í boði fyrir
fullorðna
• Teiknun - Módelteiknun
• Vatnslitamálun
• Olíumálun & Akrýlmálun
• Myndlist
• Gömlu meistararnir
• Módelmálun
• Leirmótun
Hefjast í febrúar fyrir börn, unglinga og fullorðna
T
ryggvi Hjaltason er þriggja barna
faðir, giftur Guðnýju Sigurmunds-
dóttur og eru þau búsett í Vestmanna-
eyjum. Hann segir föðurhlutverkið
vera mest auðmýkjandi hlutverk sem
hann hefur fengið og að börnin hans stuðli að
meiri þroska hjá honum en hann hjá þeim.
„Mér finnst eins og ég hafi unnið í lífinu að
fæðast í Vestmannaeyjum og giftist síðan stelp-
unni úr næsta húsi sem hefur gert mig að betri
manni á hverjum degi síðan. Ég ströggla með
óþolinmæði og verð í vaxandi mæli var við hvað
ég er ófullkominn, sem er samt furðu frelsandi
uppgötvun.
Ég skil ekki af hverju þess er ekki krafist
sem hluti af skyldumenntun að eignast vin sem
er miklu eldri en maður sjálfur og hlusta á sög-
ur frá þeim aðila.
Ég hef mikinn áhuga á tilgangi lífsins og
mannkynssögunni, sérstaklega einstaklingum
sem hafa breytt heiminum, og svo dreymir mig
um að verða 200 ára gamall.“
Heppinn að hafa tekið réttar ákvarðanir
með menntun sína
Tryggvi segir að hann sé heppinn að hafa náð
sér í menntun sem gerði honum kleift að móta
sig áfram inn í margvísleg verkefni því mennt-
unin kallaði ekki bara á eina fastmótaða braut,
enda eru fáir sem vita og skilja í hverju Tryggvi
er menntaður.
„Ég vinn hjá CCP-tölvuleikjafyrirtækinu sem
„strategist“ þar sem ég stunda meðal annars
hegðunarrannsóknir. Ég hef mikinn áhuga á
mannlegri hegðun og hef stundað einhvers konar
hegðunarrannsóknir í 13 ár. Það hefur keyrt
áfram fyrst og fremst hvar ég hef valið að starfa
undanfarin ár en ég hef starfað í ráðuneyti, hjá ör-
yggisstofnunum og hjá Sérstökum saksóknara.“
Tryggvi er með BS-gráðu í Global Security
and Intelligence Studies frá Embry Riddle-
háskólanum í Arizona og með meistaragráðu í
fjármálum fyrirtækja. Hann hefur einnig klárað
grunnnám í hagfræði og verið í Lögregluskóla
ríkisins.
„Ég er stúdent af félags-
fræðibraut við Framhalds-
skólann í Vestmanna-
eyjum (FÍV). Það er
lítill skóli sem býður
upp á þó nokkurt
frelsi til að finna
hver maður er og
fara á eigin hraða í
talsverðu öryggi.
Ég nýtti það og
kláraði námið í ró-
legheitum á fjórum
árum á meðan ég
stofnaði hljómsveit,
byrjaði með stelpunni í
næsta húsi og keppti í
frjálsum íþróttum. Ég var
aldrei í neinu stressi og gaf ekki í
námslega fyrr en í seinni hluta námsins
þegar ég vissi að ég vildi fara í háskólanám til
Bandaríkjanna. Ég var það heppinn að það var
eldklár sálfræðimenntaður kennari við skólann
sem ég leit mikið upp til og hjá honum gat ég
tekið fimm sálfræðiáfanga. Þar dýpkaði áhugi
hjá mér á mannlegri hegðun og ég hef alla tíð
síðan stundað hegðunarrannsóknir á einn eða
annan hátt og það ráðið að mestu leyti hvaða
nám og störf ég hef valið mér.
Eftir FÍV fór ég með besta vini mínum í fjög-
urra mánaða ferðalag í bíl um Bandaríkin, með-
al annars til að skoða ameríska háskóla. Við
keyptum gamlan Cadillac og keyrðum í 33 ríki,
fórum á þungarokkstónleika, vorum teknir af
löggunni, gistum hjá hippum, sátum fyrirlestra í
mismunandi háskólum víðsvegar um Bandarík-
in, spiluðum „ultimate frisbee“ með ókunnugum
í borgum út um öll Bandaríkin og áfram má
telja. Lykilávöxtur úr þessari ferð ásamt ómet-
anlegum minningum og styrkingu á einni bestu
vináttu allra tíma var að ég fann það sem var
draumaháskólanám fyrir mig.
Ég skráði mig Bsc-nám í Global Security and
Intelligence Studies við Embry Riddle-háskóla í
eyðimörkinni í Arizona. Bandaríkjamenn voru á
þessum tíma staddir á
hápunktinum í stríðinu
gegn hryðjuverkum og þá
vantaði leyniþjónustufólk, það er
einstaklinga sem gátu greint flóknar upplýs-
ingar, séð mynstur, lesið fólk og greint hvar þau
tuttugu prósent leynast sem munu hreyfa átta-
tíu prósentin. Námið var búið til og kennt af
fyrrverandi prófessorum frá CIA og var sem
dæmi deildarstjórinn doktor í sálfræði en sagan
sagði að hann hefði stýrt yfirheyrsluprógrammi
CIA á svokölluðum „black sites“ í stríðinu gegn
hryðjuverkum. Hvort sem það var rétt eða ekki
kenndi hann mér heilmikið um hvernig hægt er
að lesa og skilja fólk betur, hvað við stýrumst
mikið af tilfinningum og hvað líffræðilegu kerfin
okkar segja okkur oft ótrúlega mikla sögu um
hvernig ákvarðanir við tökum. Þetta var grunn-
urinn að þekkingu sem sem ég fékk síðan að
reyna meira á þegar ég stýrði yfirheyrslum hjá
Embætti sérstaks saksóknara nokkrum árum
seinna í kjölfar efnahagshrunsins og sá þá í
framkvæmd hversu áreiðanlegt margt af þessu
reyndist hjá honum.“
Nám sem fór inn á mörg ólík svið
Tryggvi segir námið hafa verið ótrúlega fróð-
legt og skemmtilegt.
„Við lærðum hagfræði, sálfræði, gagnaupp-
lýsingafræði (signals intelligence), diplómatík,
greiningu valdakerfa, erlend tungumál og siði
þjóða, mannkynssögu og áfram má telja. Ég var
síðan svo blessaður að mér tókst að næla mér í
sæti í fjögurra ára liðsforingjaþjálfun hjá
Bandaríkjaher á sama tíma og þar lærði ég allt
frá því að leiða litlar sveitir í bardaga, lestur
korta, að bjarga sér í óbyggðum, finna vatn,
nota skotvopn og stilla upp fyrirsát á herdeildir
og smærri flokka og áfram má telja. Þetta var
allt hið mesta ævintýri sem ég fékk að ganga í
gegnum með henni Guðnýju sem var kærasta
mín síðan úr framhaldsskóla sem flutti með mér
út og fór sjálf í listnám. Ég keyrði hana síðan
upp í Miklagljúfur annað árið okkar þarna úti
og bað hana að giftast mér sem hún samþykkti
að gera og í dag eigum við þrjú börn á grunni
hjónabands sem byrjaði að myndast þarna úti.
Ég get eiginlega ekki tíundað þakklæti mitt
gagnvart þessu öllu.“
Tryggvi segir hrunið á Íslandi árið 2008 hafa
sett strik í reikninginn í námi hans á þessum
tíma.
„Hrunið kom rétt áður en ég útskrifaðist og
þá horfði ég hjálpar- og skilningslaus á það þeg-
ar forsætisráðherra Bretlands sagði að landið
mitt væri gjaldþrota og námslánin mín hjá LÍN
hættu að nægja fyrir náminu vegna þess að
krónan féll 80%. Mér tókst að klára námið með
Tryggva bauðst að
fara í bandaríska
herinn eftir útskrift.
Tryggvi Hjaltason menntaði sig í leyniþjónustu í Banda-
ríkjunum og var í hernum um tíma. Hann starfar núna fyrir
CCP og er sérfræðingur í að lesa fólk og hegðun þess.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Ég man þegar ég
ákvað að hætta í há-
skólanum, það var
eftir að einn kenn-
arinn sendi póst á
alla nemendur sína
að segja þeim að
kjósa bróður sinn til
stjórnlagaþings. Ég
fór í millitíðinni í
nám í Lögregluskóla
ríkisins sem mér
þótti vera algjört
toppnám.