Morgunblaðið - 08.02.2021, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2021
Síðdegisþátturinn á k100
ALLA VIRKA DAGA FRÁ 16-18
Með loga bergmann og sigga gunnars
40 ára Gunnar er Eyja-
maður, fæddur og uppal-
inn í Vestmannaeyjum.
Hann er vélstjóramennt-
aður og er eigandi og
framkvæmdastjóri GB
Runólfssson – steypu-
sögunar og kjarnabor-
unar.
Maki: María Pétursdóttir, f. 1968, hár-
greiðslumeistari og eigandi Hárhússins í
Eyjum.
Börn: Tómas Runi, f. 2007, og Pétur Dan, f.
2009. Stjúpdætur eru Henný Dröfn, f. 1992,
Eva Dögg, f. 1994, og Sara Dís, f. 1995.
Foreldrar: Runólfur Alfreðsson, f. 1949, fv.
kranabílstjóri, og Guðrún María Gunn-
arsdóttir, f. 1945, húsmóðir. Þau eru búsett
í Kópavogi.
Gunnar Bergur
Runólfsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það væri gott að kryfja málin til
mergjar í dag – ekki draga það. Það duga
engin vettlingatök á suma.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ættir að bíða með innkaup og
viðskipti fram eftir degi. Þú tekur ein-
hvern undir þinn verndarvæng og færð
þakkir fyrir.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ættir að líta vandlega í eigin
barm áður en þú opnar munninn. Það
gera allir mistök, líka þú. Ekki dæma þig
of hart.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert eitthvað þung/ur í skapi
núna svo kannski er best að þú sért ekk-
ert að reka hornin í aðra svona rétt á
meðan.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það hefur ekkert upp á sig að berj-
ast gegn því sem er óhjákvæmilegt. Aðal-
atriðið er að halda sig við fyrirframá-
kveðna dagskrá.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er ekki auðvelt að setja sig í
fótspor annarra, en þó má reyna. Þú færð
fréttir sem koma eins og þruma úr heið-
skíru lofti.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er ýmislegt sem getur byrgt
manni sýn þótt maður haldi að allir hlutir
séu á hreinu. Kannski að dagurinn verði
einn sá besti í mánuðinum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Dagurinn hentar vel til að
koma hlutunum á hreint við maka og
nána vini. Ekki láta segja þér það þrisvar
að fara í frí.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Peningar sem vinur hefur lof-
að þér gætu látið á sér standa. Ekki gefa
þumlung eftir í samningaviðræðum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ekkert fæst án fyrirhafnar og
því stoðar lítt að sitja með hendur í
skauti og bíða þess að hlutirnir gerist að
sjálfu sér. Ástarsamband hangir á helj-
arþröm.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú ert full/ur bjartsýni og nýt-
ur þess að umgangast vini og vanda-
menn. Ræddu framtíðardrauma þína við
aðra og vittu hvað þeim finnst.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Mundu að grasið er ekki grænna
handan hornsins. Einhver stendur með
þér gegnum súrt og sætt.
eitthvað sem kemur til með að vera
að einhverju leyti áfram. Sparar
bæði tíma og peninga.
Covid skall á hefur verið minna um
hefðbundna fundi en við höfum nýtt
okkur fjarfundi og þetta er klárlega
E
lín Margrét Stef-
ánsdóttir er fædd 8.
febrúar 1971 í Reykja-
vík, en ólst upp í Lax-
árdal í Þistilfirði þar
sem foreldrar hennar voru sauðfjár-
bændur. Hún ólst upp í stórum
systkinahópi og með afa og ömmu í
næsta húsi.
Elín gekk í barnaskóla á Sval-
barði og unglingaskóla á Þórshöfn
og síðasta árið á Laugum í Reykja-
dal. „Ég vann hin ýmsu störf, svo
sem í fiski, í sláturhúsi og við af-
greiðslu í verslunum. Fór svo í Hús-
stjórnarskólann í Reykjavík og í
framhaldi af því fór ég svo til þýsku
eyjarinnar Sylt þar sem ég vann eitt
sumar á hóteli.“ Seinna fór Elín svo
í Bændaskólann á Hvanneyri og út-
skrifaðist þar 1994 og varð stúdent
frá Verkmenntaskólanum á Ak-
ureyri 1997. Hún tók bókaranám
hjá Tölvufræðslunni á Akureyri
2001. „Þá bjuggum við maðurinn
minn á Akureyri og ég vann ýmis
störf, m.a. afgreiðslu á leigubílastöð,
var dagmamma þegar strákarnir
voru litlir og var svo fram-
kvæmdastjóri hjá Menningarfélag-
inu Gilfélaginu sem rak Listasumar
og ýmsa menningarviðburði í Deigl-
unni og Ketilhúsinu sem var verið
að taka í notkun eftir endurbætur á
þessum tíma.“
Árið 2002 keyptu þau hjónin
kúabú í rekstri í Fellshlíð í Eyja-
fjarðarsveit og hafa verið þar síðan.
„Við höfum smám saman verið að
stækka búið og laga vinnuaðstöð-
una. Við erum með kýr og einnig
hross til gamans og hrossarækt í
smáum stíl. Við reynum að komast í
hestaferðir á sumrin og einnig höf-
um við aðeins verið að keppa á
minni mótum hér í kring og eigum
orðið þó nokkuð af verðlaunum.“
Elín hefur frá árinu 2012 setið í
stjórn Mjólkursamsölunnar og Auð-
humlu, sem er félag bænda, sem á
meirihluta í Mjólkursamsölunni.
Frá árinu 2018 hefur hún verið
stjórnarformaður hjá Mjólkursam-
sölunni. „Þetta er þó nokkuð starf
og krefst ferðalaga, aðallega til
Reykjavíkur, en einnig á bænda-
fundi um allt land. En núna eftir að
Ég brenn fyrir hagsmunum ís-
lensks landbúnaðar, það er lífs-
nauðsyn að hér sé stundaður öfl-
ugur landbúnaður og það sé ekki
grafið undan honum með illa
ígrunduðum ákvörðunum ráða-
manna. Það er auðvelt að fá glýju í
augun og láta sannfærast um að það
sé hagkvæmara að framleiða mat-
vælin okkar annars staðar í heim-
inum, en það er ekki framtíðinni til
hagsbóta. Landbúnaður er fortíðin,
nútíðin og framtíðin.“
Elín hefur tekið þátt í ýmsum fé-
lagsstörfum, hún sat í sveitarstjórn
Eyjafjarðarsveitar 2006-2010, hefur
verið bæði formaður og gjaldkeri
hjá hestamannafélaginu Funa og
var í stjórn kvenfélagsins Hjálp-
arinnar í u.þ.b. 10 ár.
„Áhugamálin eru margvísleg, en
mestur tími fer í hestamennskuna,
en svo hef ég einnig mikinn áhuga á
gönguferðum, prjónaskap og nýj-
asta æðið er sjósund.“
Fjölskylda
Eiginmaður Elínar er Ævar
Hreinsson, f. 22.5. 1966, bóndi í
Fellshlíð. Foreldrar hans: Hjónin
Hreinn Kristjánsson, f. 3.3. 1927, d.
18.6. 2016, og Erna Sigurgeirs-
dóttir, f. 15.12. 1934, búsett á Hrís-
hóli í Eyjafjarðarsveit. Þau voru
bændur þar.
Sonur Elínar með Jóhannesi
Möller Kolbeinssyni, f. 30.5. 1963, d.
Elín M. Stefánsdóttir, bóndi í Fellshlíð og stjórnarformaður Mjólkursamsölunnar – 50 ára
Börnin Örn, Eva, Jóhann og Þór heima í Fellshlíð um síðustu jól.
Öflugur landbúnaður lífsnauðsyn
Í Reykjadal Frá hestamannamóti á Einarsstöðum þar sem Elín vann í B-flokki
á Kulda frá Fellshlíð. Reiðskjóti Ævars er Myrkvi frá Höskuldsstöðum.
Göngugarpur Elín á Esjunni.
30 ára Björn Steinar
er Reykvíkingur, ólst
upp í Hlíðunum en býr
í Laugardalnum. Hann
er vöruhönnuður frá
Listaháskóla Íslands
og starfar sjálfstætt
við vöruhönnun og er
eigandi Plastplans ehf. Björn er einnig
gestakennari í vöruhönnun við LHÍ, HÍ og
Lýðskólann á Flateyri.
Maki: Steinunn Eyja Halldórsdóttir, f.
1991, fatahönnuður.
Sonur: Hlynur Steinn, f. 2020.
Foreldrar: Jóhannes S. Guðbjörnsson, f.
1952, sjálfstætt starfandi garðyrkju-
maður, búsettur í Reykjavík, og Brynja
Blumenstein, f. 1963, kennari í Hlíðar-
skóla, búsett í Reykjavík.
Björn Steinar
Blumenstein
Til hamingju með daginn
Reykjavík Hlynur Steinn Blumen-
stein fæddist 3. apríl 2020 kl. 12.13.
Hann vó 3.925 g og var 52 cm langur.
Foreldrar hans eru Björn Steinar
Blumenstein og Steinunn Eyja
Halldórsdóttir.
Nýr borgari