Morgunblaðið - 08.02.2021, Page 25

Morgunblaðið - 08.02.2021, Page 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2021 Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Mikið úrval af öryggisvörum Verkfæri og festingar vinnuföt fást einnig í HAGI ehf • Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414 3700 • hagi@hagi.is • hagi.is • Hagi ehf HILTI Opið: 8-18 virka daga – 10-12 laugardaga „ÞAÐ ER 48 KLUKKUSTUNDA AFGREIÐSLUFRESTUR SEM ÆTTI AÐ GEFA YKKUR TÍMA TIL AÐ LEYSA MÁLIN Á SIÐAÐAN HÁTT.” „ÉG SÉ AÐ SÖLURÁÐSTEFNAN HEFUR GENGIÐ AÐ ÓSKUM.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... það sem fær þig til að glóa! Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann Í STAÐINN ER ÉG AÐ SPÁ Í VEGGFÓÐUR HVERNIG FINNST ÞÉR ÞETTA BLÓMAMYNSTUR? LÍSA, BLIKKAÐU ÉG ER AÐ SPÁ Í AÐ LÁTA EKKI SPRAUTA BÍLINN MINN … STUNDUM LÝG ÉG ÖRLÍTIÐ AÐ LIÐSMÖNNUM MÍNUM TIL AÐ HVETJA ÞÁ TIL DÁÐA ! HVERJU LAUGSTU AÐ LARS? ÉG SAGÐI HONUM AÐ RIDDARINN HEFÐI DAÐRAÐ VIÐ KÆRUSTUNA HANS! BYSSUR 4.8. 2015, er 1) Jóhann Jóhann- esson, f. 27.10. 1990, bóndi og raf- virki á Stóra-Hamri í Eyjafjarð- arsveit, kvæntur Evu Rakel Aðalsteinsdóttur, f. 6.6. 1996, bónda og naglafræðingi. Börn Elínar og Ævars eru 2) Örn Ævarsson, f. 2.7. 1997, vinnur við smíðar og er í flugnámi, býr í Reykjavík; 3) Þór Ævarsson, f. 1.5. 1999, landbún- aðarverkamaður og nemi; búsettur í Fellshlíð; 4) Eva Ævarsdóttir, f. 19.8. 2008, nemi í Hrafnagilsskóla. Systkini Elínar eru 1) Áslaug Ey- fjörð, f. 10.7. 1967, starfsmaður á leikskóla, býr í Hafnarfirði; 2) Hólmgeir Eyfjörð, f. 10.10. 1968, starfar hjá verktaka, býr í Mývatns- sveit; 3) Ólafur Stefánsson, f. 5.2. 1973, slökkviliðsstjóri á Akureyri, býr í Hrafnagilshverfi í Eyjafjarð- arsveit; 4) Vilborg Stefánsdóttir, f. 26.8. 1977, kerfisfræðingur hjá Ís- félagi Vestmannaeyja og rekur vinnuvettlingaverksmiðju, býr á Þórshöfn; 5) Hildur Stefánsdóttir, f. 30.10. 1979, landslagsskipulagsfræð- ingur, ferðaþjónustu- og sauð- fjárbóndi og kennari, býr í Holti í Þistilfirði; 6) Eggert Stefánsson, f. 27.10. 1981, sauðfjárbóndi, býr í Laxárdal í Þistilfirði. Foreldrar Elínar eru hjónin Stef- án Eggertsson, f. 16.1. 1945, og Hólmfríður Jóhannesdóttir, f. 17.1. 1947, bændur í Laxárdal í Þistilfirði. Elín Margrét Stefánsdóttir Sigríður Guðmundsdóttir húsfreyja í Stapaseli og Laugalandi, f. á Kolsstöðum í Hvítársíðu Magnús Finnsson bóndi í Stapaseli og Laugalandi í Stafholtstungum, f. á Arnbjargarlæk í Þverárhlíð Áslaug Magnúsdóttir húsfreyja og afgreiðslukona í Hafnarfirði Jóhannes G. Jóhannesson strætisvagnabílstjóri í Reykjavík. Fósturfaðir Hólmfríðar var Guðmundur Skúli Kristjánsson sjómaður í Hafnarfirði Hólmfríður Jóhannesdóttir bóndi og húsfreyja í Laxárdal Hólmfríður Bjarnadóttir húsfreyja í Reykjavík, f. á Tjörn í Biskupstungum Jóhannes Guðlaugsson bílstjóri og verkamaður í Reykjavík, f. á Þverá á Síðu Sigríður Friðriksdóttir húsfreyja á Hallgilsstöðum og Höfnum, f. á Grund undir Eyjafjöllum Pétur Metúsalemsson bóndi á Hallgilsstöðum á Langa- nesi og Höfnum á Langanes- strönd, f. á Miðfjarðarnesi Elín Margrét Pétursdóttir húsfreyja í Laxárdal Eggert Ólafsson bóndi í Laxárdal Guðrún Guðmunda Þorláksdóttir húsfreyja á Efri-Hólum og í Laxárdal, f. í Garði í Þistilfirði Ólafur Þórarinsson smiður og bóndi á Efri-Hólum í Núpasveit, síðar í Laxárdal, f. á Efri-Hólum Úr frændgarði Elínar M. Stefánsdóttur Stefán Eggertsson bóndi í Laxárdal í Þistilfirði Helgi R. Einarsson sendi mérpóst á föstudag og sagði að „ekki vantar í mann montið á þess- um fallega morgni“, – lét síðan vís- una „Hógværð“ fylgja: Ég af öllum öðrum ber, Íslands sómi. Þetta er kórrétt mat á mér, - að margra dómi! Síðan bætti Helgi við, að þá sé að koma sér niður á jörðina, orti limru og kallaði „Hver er sinnar gæfu smiður“: Þeir sem uppskeru þrá að sjálfsögðu verða að sá. Að akrinum hlynna, vaka og vinna, ef árangri ætla að ná. Í tímaritinu Skildi segir frá því, að ráðherra lagði til að lagður yrði sérstakur (lúxus)skattur á þá sem byggju í óvígðri sambúð. Þá orti Hákon Aðalsteinsson: Hrollköld er útsynningsáttin ógiftir læðast í háttinn. En reynslan er bitur því ráðherrann situr og skattleggur skyndidráttinn. Hér yrkir Hákon hestavísu um þá sem ekki vilja vera á hestum: Týndir og slasaðir bíða menn bana sem bægslast á hestum um grundir og hlíð. Ég hef fram að þessu haft fyrir vana að horfast í augu við það sem ég ríð. Í Skildi er rifjað upp, að Páll Ólafsson hafi um skeið búið á Nesi í Loðmundarfirði, en þar hafi ham- ingjudagar hans orðið fáir. Hann stóð í stöðugum illdeilum við sveit- unga sína og orti: Það er ekki þorsk að fá úr þessum firði; þurru landi eru þeir á og einskis virði. Páll átti í illdeilum við séra Björn Þorláksson á Dvergasteini, enda var Björn fanatískur bindind- ismaður og bar fleira á milli. Þegar kirkjan á Dvergasteini fauk orti Páll: Kirkjuna Drottinn burtu blés í bræði sinni. - Því var klerkur þá ei inni? Sigurður Sigurðsson frá Arn- arholti kvað: Lágt er þetta litla kot léleg þykir stofan. Héðan má þó hafa not af himninum fyrir ofan. Gamall húsgangur: Sittu og róðu, svo ertu góður drengur, við skulum ekki vola par við skulum þola raunirnar. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Kveðið á fallegum morgni og af Páli Ólafssyni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.