Morgunblaðið - 09.02.2021, Blaðsíða 32
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Bókin Fyrstu skref í fjármálum eftir
Gunnar Baldvinsson, framkvæmda-
stjóra Almenna lífeyrissjóðsins, kom
fyrst út 2017 og í endurbættri útgáfu
í ársbyrjun 2020. Hún hefur verið
notuð í flestum grunnskólum lands-
ins, verið gefin út á ensku, kynnt í
Evrópu og nýlega kom hún út á
grísku sem liður í viðleitni Grikkja til
að bæta fjármálalæsi ungmenna.
Gunnar segir að bókin á grísku
hafi verið flókin í vinnslu. Upp-
haflega útgáfan sé að hluta stað-
bundin, lýsi aðstæðum hérlendis.
Enska útgáfan sé alþjóðleg og efnið
ótengt einstökum löndum. Efni í
grísku útgáfunni lýsi hins vegar að-
stæðum í Grikklandi. Hann hafi
skrifað efnið á ensku og það hafi síð-
an verið þýtt á grísku eftir að aðlög-
un að grískum aðstæðum hafi verið
samþykkt. „Bókin er því grísk útgáfa
af Fyrstu skrefum í fjármálum,“ út-
skýrir hann.
Ólík kerfi
Grikkir fóru ekki beint vel út úr
hruninu og Gunnar segir mjög fróð-
legt að hafa kynnst fjármálaástand-
inu þar af eigin raun. Kerfi þeirra í
lífeyrissjóðsmálum sé ólíkt kerfinu á
Íslandi því Grikkir leggi meira upp
úr gegnumstreymiskerfi en Íslend-
ingar sjóðstreymiskerfi. Hann hafi
farið til Grikklands vegna bókarinnar
og hitt þá sem málið varðar. Rann-
sóknarvinnan hafi verið með tvennu
móti. Annars vegar hafi hann sent út
spurningalista og fengið svör til baka
og hins vegar hafi hann grúskað á
netinu. „Samstarfið var mjög
ánægjulegt og skemmtilegt,“ segir
hann. Bætir við að eina áhyggjuefnið
hafi verið það að gríska letrið taki
meira pláss en það íslenska og enska,
en allt hafi gengið upp. „Þegar ég
horfi á grísku útgáfuna skil ég samt
ekki orð en letrið er mjög fallegt.“
Fyrsta fjármálabók Gunnars,
Verðmætasta eignin, fjallar um líf-
eyrismál og undirbúning fyrir eftir-
launasparnað og kom út 2004. Lífið
er framundan kom út 2015 og er
hugsuð fyrir ungt fólk. Lífið er rétt
að byrja og Fyrstu skref í fjármálum
voru gefnar út 2017, Lífið á efstu hæð
2018 og Farsæl skref í fjármálum
2020.
„Ég datt inn í það að skrifa um
fjármál ungs fólks og hef haft gaman
af því,“ segir Gunnar, en bækur hans
eiga það sameiginlegt að vera á vel
skiljanlegu máli fyrir alla. „Ég hef
fengið að kynnast því sem er að ger-
ast á þessu sviði í grunn- og fram-
haldsskólum. Þar eru margir áhuga-
samir kennarar, sem hafa komið
þessu efni á framfæri, og ég hef haft
mikla ánægju af því að geta stutt við
þá.“
Enska útgáfan af Fyrstu skrefum í
fjármálum kom út 2019 með stuðn-
ingi Samtaka evrópskra banka
(Europian Banking Federation).
Gunnar segir að ýmsar þreifingar
hafi átt sér stað, en ætla megi að kór-
ónuveirufaraldurinn hafi seinkað
ákvarðanatöku um frekari þýðingar.
Gríska útgáfan sé bæði í bókarformi
og aðgengileg í rafrænni útgáfu. „Til
að byrja með hafa Grikkir lagt
áherslu á að koma henni til kennara,
viðbrögðin hafa verið mjög jákvæð
og það er vonandi að hún nýtist til
gagns við að efla fjármálalæsi,“ segir
Gunnar.
Gunnar kennir ungum
Grikkjum fjármálalæsi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjármál Gunnar Baldvinsson, framkvæmdasjóri Almenna lífeyrissjóðsins.
Grísk útgáfa af bók hans Fyrstu skrefum í fjármálum
Fjármálalæsi Bækur eftir Gunnar á íslensku, ensku og grísku.
Heppinn áskrifandi getur unnið nýjan Toyota Yaris
Hybrid að andvirði 4,270.000 kr.
Allir áskrifendur eru sjálfkrafa í pottinum.
Toyota Yaris Hybrid Active Plus stendur fyrir allt
sem Morgunblaðið hefur að leiðarljósi – traustur
og fjölhæfur brautryðjandi.
Tryggðu þér áskrift strax í dag á mbl.is/askrift eða
í síma 569-1100.
Við drögum 25. mars
Í BÍLSTJÓRA-
SÆTINU
Áskrifandi
MorgunblaðsinsÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 40. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Stjörnumenn voru sigurvegarar gærkvöldsins þegar
bæði karlalið þeirra í handknattleik og körfuknattleik
unnu mikilvæga sigra á heimavöllum sínum á Íslands-
mótunum í þessum greinum. Handboltalið Garðbæinga
lagði Eyjamenn í spennuleik, 30:29, og körfuboltaliðið
fylgdi því á eftir með því að sigra ÍR-inga, 95:87. »26
Stjörnumenn fögnuðu heima-
sigrum í tveimur greinum
ÍÞRÓTTIR MENNING
Píanóleikararnir Peter Máté og Aladár Racz koma fram
á Tíbrár-tónleikum í Salnum í Kópavogi í kvöld, þriðju-
dag, og hefjast þeir kl. 19.30. Leika þeir á tvo flygla og
er yfirskrift tónleikanna „Gamall og nýr heimur“.
Á efnisskrá tónleikanna eru „Concerto pahtétique“
eftir Liszt, „Konzertrondo nach Themen aus dem Mor-
gengblätterwalzer“ eftir Strauss, „Evening Music“ eftir
John Speight og „La Valse“ eftir Ravel.
Vegna reglna um sóttvarnir er takmarkaður sæta-
fjöldi í boði.
Peter Máté og Aladár Racz leika
fjórhent á tvo flygla í Salnum