Morgunblaðið - 15.02.2021, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.02.2021, Blaðsíða 2
Ragnar Þór Ingólfsson Oddur Þórðarson oddurth@mbl.is Forsvarsmenn SA og VR eru sam- mála um að aukin fjarvinna hér á landi í kjölfar faraldursins sé eitt- hvað sem til umræðu verður við gerð næstu kjarasamninga. Útilokað sé að svo verði ekki. Þeir eru einnig sammála um að fjarvinna geti falið í sér mörg tækifæri fyrir fyrirtæki og starfsmenn þeirra og að góð sam- vinna verði að vera á milli aðila vinnumarkaðarins um þessi mál. Þeir benda báðir á að umræða um fjarvinnu meðal aðila á vinnumark- aði sé ekki sprottin upp vegna far- aldursins, heldur eigi hún sér lengri sögu. Til að mynda undirrituðu SA og ASÍ samkomulag um fjarvinnu árið 2006 þar sem meðal annars er kveðið á um skilgreiningu fjarvinnu, notkun á hvers kyns búnaði við störf og skil milli vinnu og einkalífs. Ragn- ar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir einmitt í samtali við Morgun- blaðið að mál þessu tengd séu þau sem hafi komið inn á borð VR það sem af er faraldrinum. „Þetta er mun frekar í fyrirspurn- arformi en í kvartanaformi,“ segir Ragnar. „Og við höfum fengið fjölda fyrirspurna, meðal annars um hvort fyrirtæki eigi að borga leigu starfs- manns á því húsnæði sem hann notar til fjarvinnu og þá hversu langt fyrir- tæki á að ganga í því að standa straum af búnaði sem starfsmenn nota. Við erum bara að kortleggja þetta núna og höfum sent út kann- anir og reynt að kanna hug félags- manna. Stéttarfélög verða auðvitað að vera á tánum hvað þetta varðar og VR ætlar sér að verða þátttakandi í þessum málum en ekki áhorfandi.“ Ragnar segir jafnframt að það sé að mörgu að huga þegar kemur að málefnum fjarvinnu, til dæmis verði að tryggja að starfsmenn fyrirtækja hafi aðgang að einhverri aðstöðu til þess að stunda sína fjarvinnu og að sú aðstaða sé í lagi, til að mynda að stólar, borð og búnaður sé viðunandi. Framtíðarnefnd VR hefur unnið að því í mörg ár að kortleggja fjarvinnu og fleira sem tengist vinnumarkaði framtíðarinnar og hefur þar haft gott samstarf við hagsmunaaðila fyr- irtækja, segir Ragnar. „Við höfum verið að fylgjast með fyrirtækjum sem hafa verið að semja við starfsmenn sína um fjarvinnu á einhvern hátt og munum halda því áfram,“ segir Ragnar. „Þetta er mjög algengt til dæmis í þýskumæl- andi löndum. Þar hefur tíðkast lengi að starfsmenn vinni til dæmis þrjá daga í viku á vinnustað en tvo daga í fjarvinnu.“ Til mikils að vinna Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins, segir að gott samstarf verði að vera um málefni tengd fjar- vinnu enda sé til mikils að vinna. Hann bendir á að fjarvinna og um- ræða um hana sé ekki ný af nálinni en telur að fjarvinna muni færast í vöxt samanborið við það sem tíðk- aðist áður en faraldurinn skall á. „Við höfum átt samtal um að fjar- vinna muni aukast að einhverju leyti frá því sem var fyrir faraldurinn, en fjarvinna er auðvitað eitthvað sem þekkst hefur frá því áður en þessi faraldur skall á. Ég tel að það sé best að það sé sem mest samstarf um þessi mál enda getur þetta aukið hagræði bæði fyrir fyrirtæki og starfsmenn. Bæði fólk og fyrirtæki hafa auðvitað verið gríðarlega sveigjanleg í þessum málum í þess- um faraldri og ég á ekki von á öðru en að svo verði áfram. Ég held að það sé alveg útilokað að það verði ekki kveðið á um fjarvinnu í næstu kjara- samningum.“ Fjarvinna á leið inn í kjarasamninga  Útilokað að ekki verði kveðið á um fjarvinnu í næstu kjarasamningum  Búast við aukningu frá því sem var fyrir faraldurinn  Sammála um að gott samtal verði að vera á milli aðila vinnumarkaðarins Halldór Benjamín Þorbergsson 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. FEBRÚAR 2021 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Oddur Þórðarson oddurth@mbl.is Erlendur karlmaður á fertugsaldri er í haldi vegna skotárásar í Rauða- gerði í Reykjavík aðfaranótt sunnu- dags. Albanskur maður á fertugs- aldri lést í árásinni. Lögreglan var kölluð á vettvang í Rauðagerði þegar tilkynnt var um slasaðan mann utan við hús í götunni og hófust endurlífg- unartilraunir þegar í stað. Maðurinn var úrskurðaður látinn við komuna á Landspítala. Rannsókn málsins er á frumstigi og í forgangi að sögn lögreglu. Heyrðu ekki neitt Í samtali við mbl.is í gær sögðust íbúar í grennd við húsið þar sem maðurinn fannst látinn enga skot- hvelli hafa heyrt. Að sögn fólks sem var mjög nálægt húsinu í fyrrakvöld benti ekkert til þess að nokkuð am- aði að. Það hefði ekki verið fyrr en lögregla mætti á vettvang sem íbúar í kring tóku eftir að eitthvað alvar- legt hefði átt sér stað. Einn í haldi eftir morðið  Nágrannar heyrðu ekki skothvelli Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir Rauðagerði Íbúar í Rauðagerði sögðust enga skothvelli hafa heyrt. Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Fjölmargar konur sem finna fyrir verkjum eða vilja af öðrum ástæðum komast í legháls- eða brjóstaskimun hér á landi virðast eiga erfitt með að komast að. Ástæðan þar að baki er flutningur skimunar nú um áramótin frá Krabbameinsfélaginu til hins opin- bera. Brjóstaskimanir hafa færst yfir til Landspítalans og leghálsskimanir til heilsugæslunnar. Að sögn Valgerðar Sigurðardóttur, læknis og formanns Krabbameins- félagsins, hafa konur haft samband við samtökin og lýst yfir áhyggjum af ástandinu. Þannig virðist sem seina- gangur einkenni flutninginn. „Við höf- um verið að heyra þetta. Það virðist sem þetta hafi ekki gengið allt sam- kvæmt skipulagi,“ segir Valgerður. Segir hún að ferlið sé umtalsvert flóknara en heilbrigðisráðuneytið gerði sér grein fyrir. Svandís Svavarsdóttir, ráðherra heilbrigðismála, hefur beitt sér ötullega fyrir því að færa skimun á krabbameini frá Krabbameinsfélag- inu. Aðspurð segir Valgerður að það sé alvarlegt mál ef biðlistar eru að lengj- ast og konur eigi erfiðara með að kom- ast í sýnatöku. „Þetta getur seinkað greiningum og valdið konum ómæld- um óþægindum og sálarkvölum. Við höfum margítrekað komið með ábend- ingar um það. Þrátt fyrir að vera hætt með krabbameinsleit erum við áfram málsvarar þessa hóps.“ Þegar samningur Krabbameins- félagsins við ríkið vegna skimana rann út um áramótin hætti félagið að skima. Þá átti það eftir að greina um tvö þús- und sýni. Umrædd sýni hafa enn ekki verið greind. Að sögn Valgerðar óskaði ríkið ekki eftir því að samningur við fé- lagið yrði framlengdur eða sýnin skoð- uð. Þess í stað var ákveðið að leita til Danmerkur, en samkvæmt síðustu fregnum er samningur þar enn ófrá- genginn. „Þetta er auðvitað mjög al- varlegt mál. Ég veit ekki hvar sýnin eru núna. Þetta er sorglegt.“ Seinagangur og ógreind sýni  Alvarlegt mál ef konur eiga erfitt með að fá skimun Morgunblaðið/Árni Sæberg Krabbameinsfélagið Valgerður segir félagið enn málsvara fólks. Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Stjórn Íslandspósts leit svo á að Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefði fallist á að ríkissjóður bætti fyrirtækinu alþjónustubyrði vegna ársins 2020 að fjárhæð 490 milljónir króna. Það hefði hann gert á fundi með stjórn og forstjóra fyrirtækisins, ásamt Katrínu Jakobsdóttur for- sætisráðherra, sem haldinn var 15. nóvember 2019. Þetta kemur skýrt fram í drögum að fundar- gerð 262. fundar stjórnar Íslands- pósts sem haldinn var þremur dögum eftir fundinn með ráðherr- unum og Morgunblaðið hefur und- ir höndum. Undir fyrsta lið fundarins, sem nefndur var „viðbrögð við vend- ingum í gerð þjónustusamnings um póstþjónustu við ríkið“, segir að fjármálaráðherra hafi lagt til „að leggja inn í okkar áætlanir út- reiknaðar stærðir þjónustusamn- ings eins og við höfum reiknað það út“. Framar í drögunum er fjallað um útreikninga fyrir- tækisins sem gerðu ráð fyrir að alþjónustubyrðin sem ríkið myndi bæta fyrirtækinu næmi fyrr- nefndum 490 milljónum króna. Í Morgunblaðinu 13. febrúar síðastliðinn var haft eftir Bjarna Jónssyni, stjórnarformanni Ís- landspósts, að það kæmi hvergi fram í fundargerðum fyrirtækisins að Bjarni Benediktsson fjármála- ráðherra hefði tjáð formanni og varaformanni stjórnar Póstsins að félagið ætti að gera ráð fyrir 490 milljóna króna framlagi ríkisins til félagsins í áætlunum fyrir rekstr- arárið 2020. Var Bjarni með um- mælum sínum að bera til baka fullyrðingar sem birtust í frétt Viðskiptablaðsins. Í upphafi síðasta árs fékk Póst- urinn svokallað „varúðarframlag“ vegna þeirrar alþjónustubyrði sem fyrirtækið myndi bera vegna þeirrar þjónustu sem því er falið að veita um land allt á grundvelli útnefningar Póst- og fjarskipta- stofnunar (PFS). Ekki hefur verið gefið upp hvort Pósturinn telji að rekstrarárinu 2020 loknu hæfilegt að ríkið greiði 490 milljónir vegna fyrrnefndrar alþjónustubyrði eða hvort sú upphæð sé hærri eða lægri. Í janúar sendi Pósturinn PFS upplýsingar sem m.a. fólu í sér mat á því hvert framlag rík- isins yrði að vera til þess að bæta fyrirtækinu byrðina vegna ársins 2020. Fjármálaráðherra sagður hafa fallist á 490 milljónir Pósturinn Ummæli stjórnarformanns Íslandspósts stangast á við það sem fram kemur skýrt í drögum að fund- argerð stjórnar í nóvember árið 2019.  Kom fram á stjórnarfundi Póstsins árið 2019 Ljósmynd/Hörður Ásbjörnsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.