Morgunblaðið - 15.02.2021, Síða 4

Morgunblaðið - 15.02.2021, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. FEBRÚAR 2021 Athygli hluthafa er vakin á því að þann 6. desember 2017 voru viðskipti með hlutabréf Össurar hf. sameinuð í kauphöll Nasdaq Copenhagen. Þá var öllum hlutabréfum Össurar hf. sem voru til viðskipta í Kauphöll Íslands umbreytt í hlutabréf sem eru til viðskipta í kauphöll Nasdaq Copenhagen. Við umbreytinguna voru hlutabréfin færð á safnreikninga og frá þeim tíma hafa hluthafar ekki verið skráðir undir eigin nafni í hlutaskrá Össurar hf. Hluthafar sem vilja taka þátt í aðalfundinum og/eða nýta sér atkvæðisrétt sinn þurfa því að afla fullnægjandi staðfestingar á eignarhlut sínum frá þeirri fjármálastofnun sem er með hlutabréf þeirra í vörslu. Hluthafar eru hvattir til að afla staðfestingar frá vörsluaðila sínum sem fyrst. Tilkynna þarf um þátttöku á aðalfundinum eigi síðar en miðvikudaginn 3. mars 2021. Hluthafar geta nálgast dagskrá fundarins, fundargögn og nánari upplýsingar um aðalfundinn á heimasíðu Össurar hf.: www.ossur.com/investors/AGM AÐALFUNDUR ÖSSURAR HF. verður haldinn með rafrænum hætti mánudaginn 8. mars 2021 kl. 9:00. Aðalfundur Össurar 2021 Allt gekk vel í heimflugi tveggja Bo- eing MAX8-þotna Icelandair sem komu til landsins laust eftir hádegi í gær, eftir að hafa verið í geymslu sl. 17 mánuði í Lleida á Spáni. Sem kunnugt er voru vélar þessarar gerðar kyrrsettar í tvö ár, en nú hef- ur tæknibúnaður þeirra verið endur- bættur og eftirlitsstofnanir hafa gef- ið grænt ljós. Meðvindur í huganum „Við höfðum meðvind í huganum á fluginu heim,“ sagði Haraldur Bald- ursson flugstjóri, sem með Kára Kárasyni kom með vélina Mývatn. Þórarinn Hjálmarsson og Eiríkur Haraldsson flugu vélinni sem ber heitið Búlandstindur. Nú tekur við standsetning á bún- aði vélanna sem flugvirkjar Ice- landair á Keflavíkurflugvelli annast. Þrjár MAX-vélar Icelandair eru áfram í geymslu á Spáni og hjá verk- smiðjum Boeing í Seattle á vestur- strönd Bandaríkjanna bíða aðrar þrjár nýjar, tilbúnar til afhendingar. Vænst er að Maxinn verði kominn í notkun með vorinu, þó tímasetning- ar liggi ekki fyrir. Síðastliðinn föstudag endurréð Icelandair alls 20 flugmenn, sem fóru af launaskrá hjá félaginu á síð- asta ári. Þeir hinir sömu verða nú þjálfaðir til að fljúga Boeing 757-vél- um félagsins, en aðrir færast yfir á MAX-vélarnar. Með þessu verða starfandi flugmenn hjá félaginu alls 90 og er vonast til að þeim fjölgi enn frekar á næstu mánuðum, það er í takti við að heimsfaraldri kórónu- veirunnar sloti og ferðalög fólks um veröldina vítt og breitt hefjist að nýju. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Boeing Ekið í stæði við skýli Icelandair á Keflavíkurflugvelli. Vélarnar fara væntanlega í notkun að nýju í vor. Maxinn er mættur aftur  Heimflug úr geymslu frá Spáni  Mývatn og Búlands- tindur  Sex vélar bíða áfram  20 flugmenn endurráðnir Lentir Haraldur Baldursson flugstjóri, til vinstri, og Kári Kárason flug- maður í stjórnklefa MAX-vélarinnar Mývatns eftir flugið frá Spáni í gær. FRÉTTASKÝRING Andrés Magnússon andres@mbl.is Framboðsmál eru hægt og rólega að skýrast meðal sjálfstæðismanna hér og þar um landið, en ef greina á einhvern einn þráð í þeim má segja að þar sé ný kynslóð að skora hina eldri á hólm, sér í lagi konur. Í Reykjavík er skýrasta dæmið um það, að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hyggst sækjast eftir efsta sæti í sameiginlegu prófkjöri höfuðborgarkjördæmanna, þar sem Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- ráðherra er fyrir. Hann hefur raunar ekkert sagt um það enn, aðeins að hann vilji leiða í sínu kjördæmi, í Reykjavík norður. Sem hann myndi að líkindum gera þó hann gerði sér 2. sæt- ið að góðu. Allir Reykjavíkurþingmenn Sjálf- stæðisflokksins vilja halda áfram, en Hildur Sverrisdóttir vill vafalaust end- urheimta þingsæti sitt, Kjartan Magn- ússon, fv. borgarfulltrúi, er að hugsa sig um og Diljá Mist Einarsdóttir, að- stoðarmaður utanríkisráðherra, er sögð áhugasöm. Hatrömm barátta í NV-kjördæmi Í Norðvesturkjördæmi stefna tvö á oddvitasætið, þau Haraldur Bene- diktsson alþingismaður sem hlaut það síðast og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, atvinnumálaráðherra og varaformaður flokksins. Þar mætast gamli og nýi tíminn, en baráttan er enn meira spennandi sakir varafor- mennsku Þórdísar. Leita þarf til 8. ára- tugarins til að finna dæmi þess að óbreyttur þingmaður veiti flokksfor- ystunni keppni um sæti. Af hljóðinu í mönnum að dæma er þar mjög hörð, jafnvel skefjalaus barátta í vændum, þó að flestir telji varaformanninn hafa forskot. Í Suðurkjördæmi er Guðrún Haf- steinsdóttir, iðnrekandi úr Hveragerði, sögð stefna ákveðin á 1. sæti lista sjálf- stæðismanna. Til marks um það er bent á að hún hafi nýverið fest sér lénið gudrunhafsteins.is. Þar myndi hún skora á Pál Magnússon, sem þar er nú í 1. sæti, en hann er veikari fyrir en ella vegna gagnrýni um að hann hafi ekki stutt flokkinn í bæjarstjórnarkosning- um í Eyjum, þar sem sjálfstæðismenn klofnuðu síðast með braki og brestum. Í Suðvesturkjördæmi verður það tæplega svo að yngri kynslóð skori hina eldri á hólm, enda Bjarni Bene- diktsson, formaður flokksins, þar í efsta sæti. Hins vegar er um það rætt að Halla Sigrún Mathiesen, formaður SUS, ætli að gefa kost á sér á annars frekar miðaldra lista, en sem Hafnfirð- ingi sæmi henni ekkert minna en 2. sætið. Kynslóðaskil í boði í prófkjör- um íhaldsins  Yngra fólk skorar hið eldra á hólm  Konur knýja á af krafti um allt land Morgunblaðið/Hari Suðurkjördæmi Sýnt þykir að Guð- rún Hafsteinsdóttir ætli í prófkjör. Í vikunni er von á að tilkynnt verði um nýjar aðgerðir, eða þá óbreyttar að- gerðir, á landa- mærum Íslands til að fyr- irbyggja að kór- ónuveiran kom- ist inn í landið og valdi usla. Þetta segir Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn í sam- tali við Morgunblaðið. Hann segir að landamæraverðir ríkislögreglu- stjóra og lögreglan á Suðurnesjum hafi lagst yfir verkferla sína og reynt að ráða bót á hverju því sem betur má fara. Víðir segir að Ísland og Ung- verjaland séu ein fárra Evrópu- ríkja sem taka svokölluð veiruvott- orð gild. Í Danmörku gangi til dæmis ekki endilega að framvísa íslensku veiruvottorði þótt Danir gætu hæglega gert það á landa- mærum Íslands. „Langflestir þeirra sem framvísa þessum vottorðum hér eru Íslend- ingar. Við höfum þó þurft að hafna einhverjum vottorðum sem eru ekki á íslensku, ensku eða á ein- hverju norrænu tungumáli þar sem ekki er til mannskapur til að fara yfir þau vottorð. Svo er það bara þannig að menn vita ekki nákvæm- lega hvernig þetta er gert í mörg- um löndum. Þannig að samkvæmt reglum tökum við bara við vott- orðum frá ríkjum innan EES.“ Taka bara við veiru- vottorðum frá EES Víðir Reynisson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.