Morgunblaðið - 15.02.2021, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. FEBRÚAR 2021
Alexander Kristjánsson
alexander@mbl.is
Allur gangur virðist á því hvort hug-
að er að tilvist gangandi vegfarenda
við uppsetningu hleðslustöðva fyrir
rafbíla í Reykjavík.
Fyrstu stöðvarnar í metnaðarfullu
verkefni Orku náttúrunnar og borg-
arinnar hafa nú verið settar upp, og
er nokkuð um það að fólk setji stað-
setninguna fyrir sig.
Eins og Morgunblaðið greindi frá
í síðasta mánuði hefur nokkrum
stöðvum við Hrannarstíg í Vesturbæ
verið komið fyrir á miðri gangstétt
og með því brotið gegn deiliskipulagi
um gangstéttina. Eftir umfjöllun
blaðsins fengust þær upplýsingar að
mistök hefðu verið gerð og að unnið
væri að lagfæringu.
Aðförin að þeim gangandi endar
þó ekki þar. Við Laugardalslaug hef-
ur þremur staurum verið komið hag-
anlega fyrir á miðri gangstétt svo að
ekki megi með góðu móti koma
barnavagni eða hjólastól fram hjá.
Við Sólheima þótti gangstéttin einn-
ig tilvalin fyrir hleðslustöðvar.
Uppsetning hleðslustöðva í þétt-
um og rótgrónum hverfum getur
verið þrautin þyngri, enda ekki gert
ráð fyrir þeim við hönnun götunnar,
að sögn sérfróðra. Víða hefur þó tek-
ist vel til við að koma stöðvunum fyr-
ir, eins og sjá má af myndum frá
Álftamýri og Maríubaug.
182 stöðvar á 36 stöðum
Orka náttúrunnar vinnur nú að
því að setja upp 182 hleðslustöðvar á
32 stöðum í Reykjavík og fjórum í
Garðabæ, en markmiðið er að gera
þeim kleift að eiga rafbíl, sem ekki
geta hlaðið hann heima hjá sér. Til
stendur að ljúka uppsetningunni síð-
ar í mánuðinum, en samkvæmt upp-
lýsingum frá Orku náttúrunnar er
það í höndum sveitarfélaganna að
útfæra staðsetningu stöðvanna.
Eftir því sem bílaflotinn rafvæðist
má ætla að hleðslustaurar í borgar-
landi verði æ algengari, og því for-
vitnilegt að sjá hvort gengið verði á
gangstéttir víðar.
Morgunblaðið Íris Jóhannsdóttir
Laugardalslaug Þá er nú gatan
álitlegri kostur fyrir gangandi.
Morgunblaðið Íris Jóhannsdóttir
Maríubaugur Gangstéttin fær enn
að njóta sín hér í Grafarholti.
Morgunblaðið Íris Jóhannsdóttir
Sólheimar Dæmi hver fyrir sig um
staðsetningu þessa hleðslustaurs.
Morgunblaðið Íris Jóhannsdóttir
Álftamýri Vel útfærð hleðslustöð
við gangstéttina í Álftamýri.
Morgunblaðið Íris Jóhannsdóttir
Hrannarstígur Þessir staurar
brjóta gegn deiliskipulagi.
Gangstéttir helgaðar hleðslustaurum
Hleðslustaurar spretta upp í borginni 182 nýjar stöðvar Misvel að verki staðið við útfærsluna
Jón Sigurður Nordal
jonn@mbl.is
Þar sem byrjað er að bólusetja af
krafti í Evrópu og Bandaríkjunum
undirbúa íslensk fyrirtæki og stofn-
anir sem vinna í ferðaþjónustu nú
auglýsingaherferðir sem eiga að
höfða til þeirra sem bólusettir eru og
huga að ferðalögum. Liður í þeim
undirbúningi eru auglýsingar í
miðjum faraldri, en Íslandsstofa hefur
haldið merkjum Íslands á lofti síðan
veiran breiddist út til Vesturlanda
fyrir ári.
„Það sem við hjá Íslandsstofu höf-
um unnið að undanfarna mánuði eru
markaðsaðgerðir sem miða að því að
viðhalda áhuga á Íslandi sem áfanga-
stað á meðan fólk hefur ekki getað
ferðast,“ segir Sigríður Dögg Guð-
mundsdóttir, fagstjóri ferðaþjónustu
hjá Íslandsstofu, í samtali við
Morgunblaðið.
„Svo erum við á tánum að fylgjast
með mörkuðunum, og þegar aðstæð-
ur skapast viljum við geta stigið hratt
inn. Þess vegna erum við með mark-
aðsaherferðir tilbúnar sem við getum
gripið til með mjög stuttum fyrirvara,
þegar ástandið lítur betur út á okkar
lykilmörkuðum.“
Þessar aðgerðir séu mikilvægar
sem undirbúningur fyrir komandi
sumar og haust. „Við höfum hugsað
þetta svolítið eins og kosningar, við
viljum ekki vera að tala við kjósendur
á kjördag þegar þeir eru á leið inn í
kjörklefann, heldur þurfum við að tala
við þá í aðdragandanum.“
Flugfélagið Icelandair hefur gripið
til svipaðra aðgerða og Íslandsstofa.
„Við höfum haft það að leiðarljósi í
gegnum faraldurinn að á meðan eng-
inn er að bóka flug erum við að minna
á okkur á mörkuðunum til að halda
merkjum Íslands og Icelandair á
lofti,“ segir Birna Ósk Einarsdóttir,
framkvæmdastjóri sölu- og þjónustu-
sviðs Icelandair.
„Sú herferð hefur gengið vel, því Ís-
land hefur fengið svo góða umfjöllun
um það hvernig gengið hefur í barátt-
unni við veiruna. Svo það er eitthvað
til að byggja á.“
Bretar lykilmarkhópur
Sigríður segir Bretland vera algjör-
an lykilmarkað fyrir Ísland, og því sé
mikilvægt að keyra markaðsherferðir
þar um leið og aðstæður batna. Þetta
tekur Birna Ósk undir.
„Ef teknir eru saman þeir Bretar
sem fengið hafa bólusetningu og þeir
sem hafa þegar fengið veiruna er þar
kominn mjög myndarlegur hópur,“
bendir Birna á. „Þá hefur eldra fólk
forgang að bóluefninu, og þeir Bretar
sem koma til Íslands eru oft í eldri
kantinum. Þeir koma mikið á haustin
og veturna, svo góður bólusetningar-
árangur þeirra er klárlega eitthvað
sem við ætlum að mæta með krafti.
Við erum í raun bara að bíða eftir rétt-
um aðstæðum.“
Bandaríkjamenn mikilvægir
Þá er mikilvægi Bandaríkjamanna
fyrir íslenska ferðaþjónustu gríðar-
legt, en landamæri Schengen-svæðis-
ins, sem Ísland er hluti af, eru þeim
lokuð enn sem komið er. „Bandaríkja-
menn eru langstærsti ferðamanna-
hópurinn sem kemur til Íslands, svo
það verður afar mikilvægt fyrir okkur
þegar Schengen-landamærin opnast.
Við höfum lagt mikið í að vera með að-
gerðir í Bandaríkjunum þar sem þetta
er algjör lykilmarkaður fyrir ferða-
þjónustuna á Íslandi,“ segir Sigríður.
Birna tekur í sama streng.
„Opin landamæri á milli Schengen-
svæðisins og Bandaríkjanna breyta
öllu fyrir okkur. Á venjulegu ári er um
helmingur allra viðskiptavina Ice-
landair frá Bandaríkjunum, og leiða-
kerfið okkar byggist á því að tengja
saman Evrópu og Bandaríkin. Svo
þangað til það gerist getum við bara
boðið upp á hluta af okkar þjónustu,“
segir hún. „En við höfum fengið frá-
bæra umfjöllun í Bandaríkjunum, og
þess vegna ákváðum við að bjóða
þeim ákveðin tilboð í janúar. Það hef-
ur gengið alveg rosalega vel, og svo
byggjum við ofan á þann árangur,“
segir Birna.
„Bandaríkjamenn virðast vera til í
að ferðast, það eru allavega fyrstu
merkin.“
Mun ná vopnum sínum á ný
Aðspurð segist Sigríður vera hand-
viss um að ferðaþjónustan á Íslandi
muni ná sér aftur að fullu eftir kór-
ónuveirukreppuna.
„Ferðaþjónustan mun ná vopnum
sínum á ný, það er ekki spurning.“
Höfða til bólusettra ferðamanna
Ferðaþjónustuaðilar undirbúa markaðsherferðir Beinast að bólusettum ferðamönnum og þeim
sem þegar hafa fengið kórónuveiruna Sérstaklega litið til Bretlands Viðhalda áhuga á Íslandi
Sigríður Dögg
Guðmundsdóttir
Birna Ósk
Einarsdóttir