Morgunblaðið - 15.02.2021, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. FEBRÚAR 2021
Opið mán - fim 8:30 – 17:00, fös 8:30 – 16:15
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
ÚTSALA
30-60% AFSLÁTTUR AF
VÖLDUM VÖRUM
fastus.is/utsala
Vandræðagangurinn vegna bólu-efna í Evrópusambandinu hef-
ur víða vakið gremju og meira að
segja forusta þess er hætt að láta
eins og allt sé í lukkunnar velstandi.
ÍÞýskalandi hefurafstaðan til ESB
breyst með afger-
andi hætti. Der Spie-
gel birti í liðinni viku
niðurstöður könn-
unar þar sem spurt
var hvort myndin af
Evrópusambandinu
hefði batnað eða versnað vegna út-
vegunar bóluefnis við kórónuveir-
unni. 42% aðspurðra sögðu að mynd
þeirra af ESB hefði versnað með af-
gerandi hætti og 22% sögðu að hún
hefði frekar versnað. 29% sögðu að
hún væri óbreytt, en aðeins 3%
sögðu að hún hefði batnað nokkuð
og 3% að hún hefði batnað með af-
gerandi hætti.
Klúður sambandsins hefur orðiðtil þess að það hefur fallið í áliti
hjá 64% Þjóðverja. ESB hefur fallið í
áliti hjá stuðningsmönnum allra
flokka í Þýskalandi, reyndar mis-
mikið en í öllum tilfellum hjá rúm-
lega helmingi þeirra.
Ursula von der Leyen, forsetiframkvæmdastjórnar Evrópu-
sambandsins, hefur verið í mikilli
vörn vegna bóluefnaklúðursins. Hún
fór ekki vel út úr könnuninni, svo
ekki sé meira sagt. Helmingur að-
spurðra sagði að álit þeirra á henni
hefði versnað með afgerandi hætti
og 18% að það hefði frekar versnað.
Það er tímabært að opna augunog viðurkenna að hversu vel
sem það kann að hafa litið út í upp-
hafi að hafa samflot með ESB í út-
vegun bóluefna hefur það leitt til
þess að Ísland hefur setið eftir og við
því hefði átt að bregðast með afger-
andi hætti.
Ursula von der
Leyen
ESB hrapar í áliti
hjá Þjóðverjum
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Þrjú hús voru rýmd á Seyðisfirði í
gærkvöldi. Þau eru á þekktu snjó-
flóðasvæði yst í bænum að sögn
Sveins Brynjólfssonar, sérfræðings
á ofanflóðavakt Veðurstofunnar.
Síðast þurfti að rýma svæðið vegna
snjóflóðahættu árið 2018.
Sveinn segir að ákvörðun um
rýmingu hafi verið tekin vegna
mikillar rigningar í gær, en þegar
blaðið fór í prentun gerðu spár ráð
fyrir að sú rigning héldi áfram inn í
nóttina ofan í talsverðan snjó sem
þegar er á svæðinu. Úrkoma á
Seyðisfirði nam seint í gærkvöldi
um 45 mm en óttast var að hún
myndi ná 70 mm þegar líða færi á
nóttina. Þá hafa snjóflóð fallið utar
í firðinum.
Kristján Ólafur Guðnason, yfir-
lögregluþjónn á Austurlandi, segir
að vel hafi gengið að rýma húsin
þrjú, en sjö manns búa í þeim og
voru þeir allir komnir með húsa-
skjól í gær. „Það voru allir vel upp-
lýstir um hvað gæti gerst, þannig
að það kom engum á óvart að þetta
yrði niðurstaðan,“ segir Kristján.
Óvissustigi hafði verið lýst yfir í
bænum á föstudag, en rýmingin
verður endurmetin í dag.
Þá féll krapaflóð á hringveginn í
sunnanverðum Fáskrúðsfirði í gær
og lokaði það veginum. Það var
annað flóðið sem féll á veg á Aust-
fjörðum í gær, en hitt féll í Reyðar-
firði síðdegis.
Rýmdu hús vegna snjóflóðahættu
Þrjú hús rýmd á Seyðisfirði
Krapaflóð loka vegum á Austfjörðum
Krapaflóð Snjóruðningstæki við
störf á Fáskrúðsfirði í gær.
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Oddur Þórðarson
oddurth@mbl.is
Þokkaleg veiði var í gær á loðnu-
miðum að sögn Árna Jóns Erlends-
sonar, eftirlitsmanns Fiskistofu,
sem Morgunblaðið ræddi við. Hann
var staddur á Fáskrúðsfirði og sagði
að þar hefðu norsk skip landað að
undanförnu. Kvóti Norðmanna er 41
þúsund tonn og hafa nú veiðst um 36
þúsund tonn.
„Þeir verða enga stund að klára
þessi fimm þúsund sem eftir eru,“
sagði Jón. „Það er enginn að veiða
eins og er, það er bræla á miðunum
og því allt stopp. En mér sýndust
einhver íslensk skip hafa verið að
leggja af stað í dag. Þetta hefur
gengið bara þokkalega og það er
skánandi ástand á loðnunni.“
Hákon lagður af stað
Morgunblaðið ræddi einnig við
Björgvin Birgisson, skipstjóra upp-
sjávarskipsins Hákonar EA-148,
sem Gjögur gerir út. Hann sagði að
skipið væri nýlagt úr höfn í Eskifirði
og héldi nú á loðnumið, þó töluvert
vestar en þar sem norsku skipin
hefðu verið að veiða. Björgvin var
vongóður.
„Við vorum bara að leggja af stað í
dag frá Eskifirði og höfum ekki
komist langt vegna brælu. Við bíðum
þetta bara af okkur og sjáum til á
morgun hvert framhaldið verður.
Það hafa auðvitað engin íslensk skip
farið þangað sem við ætlum og erum
við því vongóðir,“ sagði Björgvin.
Loðnukvóti í ár er ekki ýkja mikill
og því skiptir öllu að ekki verði tafir
á veiðum og vinnslu svo að hámarka
megi verðmæti frá takmörkuðum
afla.
Íslensk loðnuskip
héldu á miðin í gær
Norðmenn eiga 5
þúsund tonn eftir
Mikil bræla í gær
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Loðnuvertíð Hákon EA-148 hélt á
loðnumiðin á föstudag frá Eskifirði.