Morgunblaðið - 15.02.2021, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 15.02.2021, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. FEBRÚAR 2021 Hugsum áður en við hendum! www.gamafelagid.is 577 5757 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Landsmenn sporðrenna hundruðum þúsunda af rjómabollum og öðru slíku góðgæti í dag, bolludag. Stíf vakt var staðin í bakaríum lands- ins um helgina og í bakaríi Ömmu- baksturs- Gæðabaksturs við Lyngháls í Reykjavík var unnið sleitulaust allan sólarhring- inn. Vatnsdeigs- bollur með súkkulaði, rjóma og sultu eru sem endranær vinsælasta bakkelsið. Fullkomið bakarí og þróuð framleiðsla „Bolluframleiðslan hjá okkur núna er tugir þúsunda. Við byrj- uðum aðeins í síðustu viku, enda til- hneiging meðal landsmanna að lengja hátíðina aðeins og taka for- skot á sæluna. Mesta törnin hefur samt verið núna um helgina og þetta gengur ljómandi vel,“ segir Vilhjálmur Þorláksson fram- kvæmdastjóri. „Allt keyrum við þetta í nýjum tækjum hér í nýrri byggingu okkar, sem við tókum í gagnið á síðasta ári. Þetta er eitt best búna og fullkomnasta bakarí landsins og framleiðslan þróuð.“ Dreift á hundruð staða Nú á mánudagsmorgni þarf svo að koma bollunum til viðskiptavina, í verslanir og til fyrirtækja sem bjóða starfsfólki og öðrum upp á bollur í kaffitímanum. „Dreifingu á bollum á mörg hundruð staði þarf að keyra í gegn á örfáum klukkutímum, sem kallar á gott skipulag og útsjónarsemi. Við fáum viðbótarmannskap bæði í framleiðslu og dreifingu meðan á þessu stendur, og allt hefst þetta með okkar frábæra starfsfólki. Strax á þriðjudag er þetta svo allt komið í hefðbundinn farveg sem er framleiðsla á hinu daglega brauði, sem svo mætti kalla,“ segir Vil- hjálmur. Hátíðisdagur með danskan og norskan uppruna Bolludagurinn er jafnan hátíðis- dagur þjóðar, en hver er upprun- inn? Flengingar og bolluát er talið hafa komið Íslands fyrir áhrif bak- ara frá Danmörku og Noregi sem þá höfðu sest að hér á landi. Þetta var seint á 19. öldinni. Heitið bollu- dagur festist svo í sessi þegar kom fram yfir aldamótin 1900. Að því er kemur fram á vísindavef Háskóla Íslands tíðkaðist fyrr á tíð að börn færu í grímubúninga á þessum degi, skv. danskri siðvenju, slægju kött- inn úr tunnunni og fengju gotterí fyrir. Sá siður var lengi mjög sterk- ur á Akureyri. Svo fór að þessi skemmtun færðist yfir á öskudag- inn, sem er næstkomandi miðviku- dag, og nær nú til landsins alls; þar sem kátir krakkar ganga í fyrirtæki og syngja fyrir fólk og fá slikkerí að launum. Sprautan Smári Yngvason setti rjómafyllingu í bollur. Bakaríið er afar fullkomið og tæki nýleg. Með súkkulaði, rjóma og sultu  Bollubakstur á fullu  Allur sólarhringurinn í Gæðabakstri Morgunblaðið/Sigurður Bogi Framleiðsla Kallað var í fólk á lausu á bolluvertíð. Hér eru þær Aðalheiður Dögg Reynisdóttir, t.v., og Karina Kula. Vilhjálmur Þorláksson Girnilegt Davíð Þór Vilhjálmsson bakarameistari með góðgæti og súkkulaðið var ekki harðnað. Vinnutörn Katarzyna Hanna Kierznikiewicz með pakka af bollum sem rúlluðu af færibandinu. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa- dóttir, ferðamála-, iðnaðar- og ný- sköpunarráðherra, hefur auglýst eftir umsóknum um Lóu, nýsköp- unarstyrki fyrir landsbyggðina. Heildarfjárhæð styrkja árið 2021 er 100 milljónir króna, en hámarks- styrkur til hvers verkefnis er 20 milljónir króna og er úthlutað til árs í senn. Hlutverk styrkjanna, sem nú verða veittir í fyrsta sinn, er að styðja við nýsköpun, eflingu at- vinnulífs og verðmætasköpun sem byggist á hugviti, þekkingu og nýrri færni, á forsendum svæðanna sjálfra, segir í tilkynningu frá ráðu- neytinu. Lóa styður við nýsköpunarstefnu og er liður í breytingum á opinberu stuðningsumhverfi nýsköpunar vegna fyrirhugaðrar niðurlagningar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Haft er eftir Þórdísi Kolbrúnu að Lóa muni styðja við og auka slag- kraft nýsköpunarverkefna og sam- starf aðila um land allt. „Hún helst í hendur við annan mikilvægan stuðning á vettvangi ný- sköpunar á landsbyggðinni og í at- vinnulífinu, svo sem sóknaráætlun landshlutanna, byggðaáætlun og aðrar svæðisbundnar áherslur. Í þessu aukna samstarfi sem við erum að sjá víða um land felast mikil tæki- færi. Við erum að styðja við það,“ segir Þórdís Kolbrún. Hún mun skipa matshóp sem fer yfir styrkhæfi umsókna í samræmi við nýsköpunarstefnu og áherslur stjórnvalda. Hópurinn gerir tillögur til ráðherra um veitingu styrkja. Umsóknarfrestur er til 9. mars nk. 100 milljónir í ný- sköpunarstyrki  Lóustyrkir auglýstir af ráðherra Ljósmynd/Aðsend Nýsköpunarstyrkir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir að störfum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.