Morgunblaðið - 15.02.2021, Qupperneq 12
Morgunblaðið/Golli
Ómissandi Iðnaðarmaður kemur
rúðu fyrir í nýbyggingu.
Glerborg ehf. hefur selt firmanafnið
Glerborg ásamt gler- og speglahluta
starfsemi sinnar til Íspan. Í tilkynn-
ingu segir að Glerborg ehf. muni ein-
beita sér að þjónustu við byggingar-
verktaka, sem hafi verið kjarninn í
starfsemi fyrirtækisins um árabil.
Mun Glerborg ehf. taka upp nýtt
firmanafn á kennitölu sinni, Megna
ehf. byggingarlausnir.
Í tilkynningu er haft eftir Rúnari
Árnasyni, framkvæmdastjóra Gler-
borgar, að tilgangurinn með sölunni
sé að leggja meira kapp á sértækari
þjónustu með gluggalausnir og aðrar
lausnir fyrir verktaka. „Takmarkið er
að ryðja betri brautir fyrir viðskipta-
vini okkar,“ segir hann.
Þá er haft eftir Einari Þóri Harðar-
syni, framkvæmdastjóra Íspan, að
kaupin falli vel að markmiðum fyrir-
tækis hans um að auka veg inn-
lendrar framleiðslu á gleri og spegl-
um enda merki Glerborgar vel þekkt
á markaðinum. Þjónusta við við-
skiptavini muni batna og afhending-
artími styttast. ai@mbl.is
Íspan kaupir
gler- og spegla-
hluta Glerborgar
Glerborg verð-
ur Megna ehf.
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. FEBRÚAR 2021
Sími 557 8866 | pantanir@kjotsmidjan.is | www.kjotsmidjan.is Opnunartími7.30-16.30
Saltkjöt
Frábært úrval
af saltkjöti fyrir
sprengidaginn
Kíktu í verslun okkar
að Fosshálsi 27
15. febrúar 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 128.73
Sterlingspund 177.6
Kanadadalur 101.08
Dönsk króna 20.952
Norsk króna 15.151
Sænsk króna 15.455
Svissn. franki 144.21
Japanskt jen 1.2256
SDR 185.37
Evra 155.8
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 187.9471
Hrávöruverð
Gull 1818.0 ($/únsa)
Ál 2075.5 ($/tonn) LME
Hráolía 60.82 ($/fatið) Brent
● Efti að hafa rofið 40.000 dala múr-
inn í byrjun janúar lækkaði bitcoin
skarplega og var verð rafmyntarinnar
komið niður að 30.000 dala markinu
um síðustu mánaðamót. Tók þá önnur
hækkunarhrina við og hefur bitcoin
styrkst um meira en 60% það sem af
er febrúarmánuði.
Á sunnudag fór verð bitcoin hæst
upp í tæplega 49.400 dali samkvæmt
skráningu Coindesk. ai@mbl.is
Bitcoin hársbreidd
frá 50.000 dölum
STUTT
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Samningar hafa náðst um kaup sjóðs
á vegum bandaríska fjárfestingar-
bankans Goldman Sachs á meirihluta
hlutafjár í Advania. Kaupverðið hefur
ekki verið gefið upp né heldur hve
stóran hlut Goldman mun eignast en
kaupin eru háð samþykki samkeppn-
isyfirvalda.
Rekja má sögu Advania allt aftur
til ársins 1939 þegar Einar J. Skúla-
son setti á laggirnar viðgerðarverk-
stæði í Reykjavík sem síðar varð leið-
andi á sviði upplýsingatækni á
Íslandi og rann á endanum ásamt
fleiri félögum saman við Skýrr. Ad-
vania varð til árið 2012 við samruna
Skýrr, sænska félagsins Kerfi AB og
norska félagsins Hands og eru starfs-
menn nú um 1.400 talsins, dreifðir á
27 starfsstöðvar víðs vegar um Norð-
urlönd. Liðlega 600 starfsmenn Adv-
ania eru á Íslandi en höfuðstöðvarnar
í Svíþjóð og velti fyrirtækið um 5
milljörðum sænskra króna á síðasta
ári, jafnvirði um það bil 77 milljarða
íslenskra króna. Hefur reksturinn
vaxið um rösklega 20% árlega und-
anfarin fimm ár.
Eftir kaupin samanstendur
hluthafahópurinn einkum af Gold-
man Sachs, lykilstjórnendum Ad-
vania á Norðurlöndunum og danska
sjóðnum VIA Equity sem eignaðist
30% hlut í félaginu árið 2018.
Mikael Noaksson, forstjóri Ad-
vania-samstæðunnar, segir að til hafi
staðið að skrá Advania á hlutabréfa-
markað í Stokkhólmi til að styðja við
áætlanir um frekari vöxt. „Síðla
hausts hófum við að undirbúa skrán-
ingu fyrirtækisins á markað. Kom þá
fljótlega í ljós áhugi frá ýmsum að-
ilum. Upp úr því spratt m.a. samtal
við Goldman Sachs sem endar á því
að þau ákveða að kaupa meirihluta
hlutafjár í félaginu,“ segir hann en
það var ráðgjafarfyrirtækið Ray-
mond James sem leiddi Goldman og
Advania saman.
Mikael bætir við að það sé á marg-
an hátt heppilegra að fá sterkan fjár-
festi að borðinu með þessum hætti
frekar en að skrá félagið á markað
þegar stefnt er að örum vexti. „Við-
skiptin eru ekki síst meiriháttar
viðurkenning á því sem við höfum
verið að gera enda hefur Goldman
Sachs komið að mörgum stærstu
fjárfestingum sem um getur í tækni-
geiranum.“
Tekur Mikael fram að engin áform
séu uppi um breytingu á stefnu Ad-
vania eða stjórnendum félagsins.
„Goldman Sachs vill einfaldlega fá að
vera með og hjálpa okkur að gera þá
hluti sem við erum þegar að fást við
svo við getum haldið áfram að vaxa.“
Tryggir viðskiptavinir
og gott starfsfólk
Advania býður upp á alhliða þjón-
ustu á sviði upplýsingatækni og sinn-
ir einkum þörfum fyrirtækja og
stofnana, s.s. með rekstri innviða og
grunnkerfa af ýmsu tagi. „Við erum
bara stór í einu landi, og það er á Ís-
landi, en erum lítil alls staðar annars
staðar. Þar af leiðandi eru vaxtar-
möguleikarnir og tækifærin fyrst og
fremst annars staðar á Norðurlönd-
um þar sem við ætlum að gera okkur
meira gildandi,“ segir Mikael.
Ægir Már Þórisson, forstjóri fyrir-
tækisins á Íslandi, segir samkeppnis-
forskot Advania byggjast á nokkrum
þáttum: „Við eigum mjög trygga við-
skiptavini og tekist hefur að búa til
frábæran vinnustað sem laðar til
okkar hæfileikaríkt og flott fólk.
Þetta er það sem skilar árangri í
þeirri hörðu samkeppni sem ríkir á
markaðnum.“ Spurður um þýðingu
þessara breytinga fyrir Advania á Ís-
landi segir Ægir: „Við erum fullviss
um að þetta opni nýja og spennandi
möguleika fyrir starfsfólk okkar.
Stefna okkar er óbreytt og við verð-
um áfram traustur samstarfsaðili í
upplýsingatækni og fyrirmyndar-
vinnustaður.“
Sýna norrænum tækni-
fyrirtækjum áhuga
Að sögn Ægis er ástæða til bjart-
sýni um framhaldið. Mögulega skýrir
það áhuga Goldman að tæknifyrir-
tæki hafa spjarað sig ágætlega í kór-
ónuveirufaraldrinum síðasta ár og
sýnt hve miklu máli vandaðar tækni-
lausnir skipta fyrir hagkerfi heilu
þjóðanna. „Fjárfestar eru orðnir enn
spenntari fyrir þessum geira enda
var það tæknin sem gerði árið 2020
bærilegt. Upplýsingatæknin lék lykil-
hlutverk í að halda samfélögum um
allan heim gangandi.“
Þá kann aðkoma Goldman líka að
vera til marks um vaxandi áhuga
bandarískra fjárfesta og sjóða á nor-
rænum tæknifyrirtækjum. Þessu til
stuðnings nefnir Ægir kaup banda-
ríska tæknifyrirtækisins Aptos á ís-
lenska hugbúnaðarfyrirtækinu LS
Retail í janúar síðastliðnum, og kaup
Twitter á stafræna sköpunarhúsinu
Ueno í ársbyrjun. „Fleiri horfa til
Skandinavíu og veita því eftirtekt að
fyrirtæki í þessum heimshluta eru
mjög framarlega á sínu sviði.“
Goldman Sachs eignast
meirihluta í Advania
Sókn Höfuðstöðvar Advania á Íslandi. Fyrirtækið velti 5 milljörðum
sænskra króna á síðasta ári og er með um 1.400 starfsmenn samanlagt.
Engar breytingar á stefnu eða stjórnendahópi en stefnt á vöxt á Norðurlöndum
Mikael
Noaksson
Ægir Már
Þórisson
Arðsemi var 3,7%
Í töflu sem birtist í frétt í laug-
ardagsblaðinu um rekstur við-
skiptabankanna á síðasta ári var
ranglega sagt að arðsemi eigin fjár
Íslandsbanka hefði verið 7,6% á
árinu. Hið rétta er að hún var 3,7%.
Beðist er velvirðingar á mistök-
unum.
LEIÐRÉTT