Morgunblaðið - 15.02.2021, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 15.02.2021, Qupperneq 17
UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. FEBRÚAR 2021 STIGA ST5266 P 40 ár á Íslandi Hágæða snjóblásarar Fjölbreytt úrval Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is VETRARSÓL er umboðsaðili Gulltryggð gæði SÉRBLAÐ Fermingarblaðið hefur verið eitt af vinsælustu sérblöðum Morgunblaðsins. Fjallað verður um allt sem tengist fermingunni. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til mánudagsins 8. mars. Fermingarblað Morgunblaðsins kemur út föstudaginn 12. mars Með undirritun lífs- kjarasamnings vorið 2019 var stigið gott skref í hækkun lægstu launa á Íslandi. Með launahækkun sem gekk í gildi þann 1. janúar 2021 fékk einstaklingur sem er með 350 þúsund í mánaðarlaun 15.750 krónur í almenna launahækkun og þegar er búið að reikna inn lækkun á tekjuskatti þá er hækkunin 18.454 krónur. Skattbyrði þessa ein- staklings lækkar úr 18% í 16,3%. Allir launþegar fengu að sjálfsögðu þessa skattalækkun á neðsta skattþrepinu og kjarasamningsbundnar launa- hækkanir í samræmi við samnings- forsendur. Lægstu laun í kjarasam- ingum eru ávallt ákveðið viðmið sem er miðað við upp allan launaskalann og mjög margir eru með samnings- laun við sinn vinnuveitanda. Það skiptir því máli fyrir alla að lægstu launataxtar endurspegli ákveðið virði þeirrar vinnu sem er reidd af hendi. Samtök atvinnulífs- ins vildu fresta Samtök atvinnulífs- ins lögðu mikla áherslu á það síðastliðið haust að fresta þessari launa- hækkun á grundvelli tekjubrests vegna Co- vid en staðreyndin er sú að því er mjög misskipt hvernig áhrif af heims- faraldrinum eru á sam- félagið og rekstur fyr- irtækja. Á meðan sumar starfsgreinar finna mikið fyrir áhrifum af Covid eru margar starfsgreinar sem finna lítið fyrir faraldrinum og í sumum grein- um er aukning, eins og t.d. í verslun innanlands sem hefur verið með besta móti. ASÍ stóð staðfastlega með launafólki varðandi samningsmark- mið lífskjarasamnings og með stuðn- ingi stjórnvalda og lækkun trygg- ingagjalds kom ekki til þess að lífskjarasamningi var sagt upp en sú hótun lá í loftinu af hálfu Samtaka at- vinnulífsins. Lægri húsnæðiskostnaður hluti af lífskjarasamningi Markmið um lækkun vaxta er mik- ilvægur hluti af lífskjarasamningi og það er ánægjulegt hve vextir hafa lækkað á samningstímanum, auðvitað að hluta til vegna ytri aðstæðna en þetta hefur verulega bætt hag íbúða- eigenda og haft áhrif á leiguverð íbúðarhúsnæðis til lækkunar. Þetta skiptir verulegu máli í heimilis- bókhaldinu þar sem húsnæðiskostn- aður er grunnþörf og vegur þungt í heimilisbókhaldi flestra. Ný lög um hlutdeildarlán sem eru hluti af lífskjarasamningi er svo nýr valkostur þar sem ríkið kemur inn sem allt að 15% meðeigandi í ákveð- inn árafjölda og gerir þannig tekju- lægri hópum kleift að fjármagna íbúðakaup. Þetta er stórt og mikið skref til þess að þeir sem eru í lægri tekjuhópum eigi möguleika á að að velja milli þess að vera í eigin hús- næði eða á leigumarkaði. Stytting vinnutíma og lenging fæðingarorlofs Stytting vinnutíma er stórt mál sem samið var um í lífskjarasamn- ingnum. Mismunandi útfærsla er eft- ir eðli starfa og fyrirtækja og áhuga- vert að töluvert mismunandi er milli fyritækja hvernig vinnutímastytt- ingin er útfærð. Aukin lífsgæði felast í því að stytta vinnutíma og það skap- ar tækifæri til fleiri gæðastunda með fjölskyldunni eða mannræktar af ýmsu tagi. Lenging fæðingarorlofs í 12 mánuði er eitt af samningsmark- miðum sem komið er til framkvæmda og skiptir gríðarlega miklu máli. Vissulega er stytting vinnutíma krefjandi og stórt verkefni þar sem uppleggið er að framlag launþega minnki ekki með færri vinnustundum og það kallar á gott skipulag og sam- vinnu. Jafnframt hefur komið í ljós að sum störf eru einfaldlega þannig að ekki er svigrúm til þess að þjappa vinnunni á færri stundir eins og til dæmis mörg þjónustu- og umönn- unarstörf. Við þessu þarf að bregðast og vinna áfram að því að mæta þeim áskorunum og breytingum sem fram undan eru á vinnumarkaði, m.a. vegna tæknibreytinga. Verkalýðshreyfingin – nauðsynlegur bakhjarl Barátta fyrir betri kjörum þarf ávallt að vera sanngjörn, samfelld og í takt við þróun samfélagsins á hverj- um tíma. Mikilvægi þess að hafa sterkan bakhjarl sem felst í öflugri verkalýðshreyfingu má ekki van- meta. Ýmis réttindi sem við teljum sjálfsögð í dag eins og til dæmis veik- indaréttur kostaði mikla baráttu á sínum tíma og sama á við um flestöll réttindi sem við höfum í dag í okkar kjarasamningum, þau kostuðu yf- irleitt mikil átök. Við viljum öll betri lífskjör án þess að ganga á hag kom- andi kynslóða og með því að skoða heildstætt hvað er til skiptanna á hverjum tíma er hægt að ná góðum árangri í kjarasamningum sem tryggja hag allra og sérstaklega þeirra sem lökust hafa kjörin. Betri lífskjör með lífskjarasamningi 2019-2022 Eftir Helgu Ingólfsdóttur » Barátta fyrir betri kjörum þarf ávallt að vera sanngjörn, sam- felld og í takt við þróun samfélagsins á hverjum tíma. Helga Ingólfsdóttir Höfundur er bæjarfulltrúi í Hafnar- firði, stjórnarmaður í VR og fulltrúi í miðstjórn ASÍ. Nú er raforka ein meginorkan í nútíma- þjóðfélagi og hana er hægt að búa til á marga vegu. Í framtíð- inni verður hún verð- mætari og eftirsóttari þegar farið er að breyta henni í vetni. Aðrir helstu orkugjaf- ar eru jarðeldsneyti; olía, kol og kjarnorka, sem er ekki vistvænt en mjög mengandi og því á und- anhaldi í framleiðslu á orku. Raforka hér á landi hefur fyrst og fremst verið unnin úr stórám landsins, t.d. Þjórsá, Blöndu og Jök- ulsá við Kárahnjúka. Þessi stórfljót hafa að mínu mati ekki verið nýtt nema að hluta til framleiðslu á raf- orku. Ef við tökum t.d. Þjórsá neð- an við Búrfell þá er það mitt mat að úr því fljóti og mörgum öðrum væri hægt að ná í miklu meiri raforku á mjög vistvænan hátt, þ.e. með notk- un snúningssnigla niðri í ánni. Þessi aðferð hefur enga mengun í för með sér; enga sjónmengun eins og risavindmyllur, enga land- mengun eins og uppistöðulón, enga risasteinsteypuveggi sem í flestum tilfellum eru á fallegum stöðum í náttúrunni. Þar sem sniglarnir eru niðri í ánni sjást þeir ekki og valda því engri sjónmengun og sáralít- illi umhverfismengun. Aðeins á landi meðan sniglunum er komið fyrir. Virkjun rennandi vatns í ám til raf- orkuframleiðslu er að mínu mati mjög ódýr miðað við fallvatns- virkjanir eins og Búr- fellsvirkjun, Blöndu- virkjun eða Kárahnjúka. Einnig tel ég að kostnaður við hvert megavatt sem fengið er á þennan máta sé ekki meiri en frá fallvatnsvirkj- unum eða vindmyllum þegar allt er talið. Verndun náttúrunnar til fram- búðar og nýting ánna á að fara sam- an. Stutt lýsing á sniglum til þessara nota: Snigillinn er innan í röri t.d. 10-20 m löngu og 40-50 cm í þvermál, fer eftir dýpt árinnar. Öxull snigilsins hvílir á vatnsþéttum legum í miðju rörsins og er misjafnlega skorinn, allt eftir rennslishraða árinnar. Snigillinn situr á sérstökum fest- ingum í botni árinnar, t.d. 10-12 cm frá botni og undir yfirborði árinnar. Frá öxlinum er tenging í rafal sem margfaldar snúningshraða hans til rafmagnsframleiðslu. Þessi hugmynd að betri nýtingu ánna er tilkomin vegna þess að í ná- inni framtíð verður stóraukin eft- irspurn eftir raforku til að fram- leiða vetni. Vetni er framtíðar- orkugjafi fyrir flugvélar, skip og önnur farartæki; það mengar ekk- ert og verður ódýrasti fljótandi orkugjafinn. Framleiðsla raforku á vistvænan og hagkvæman máta gæti orðið ein stærsta auðlind ís- lensku þjóðarinnar í framtíðinni. Eftir Hafstein Sigurbjörnsson » Betri nýting á stór- ám landsins til raforkuframleiðslu. Hafsteinn Sigurbjörnsson Höfundur er eldri borgari. Rennslisvirkjanir með sniglum Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.