Morgunblaðið - 15.02.2021, Page 24

Morgunblaðið - 15.02.2021, Page 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. FEBRÚAR 2021 50 ára Jóhannes er Akureyringur en býr í Kálfagerði í Eyjafjarðarsveit. Hann er smiður að mennt frá Verkmenntaskól- anum á Akureyri og vinnur hjá SS byggir. Jóhannes er gjaldkeri í hjálparsveitinni Dalbjörg og er í Lionsklúbbnum Vitaðs- gjafa. Maki: Anett Ernfelt Andersen, f. 1976 í Glistrup í Danmörku, nemi í bókhaldi. Börn: Jakob Ernfelt, f. 2000, og Anna Sigrún Ernfelt, f. 2009. Foreldrar: Jakob Jóhannesson, f. 1944, bifvélavirki, og Kristín S. Ragnarsdóttir, f. 1945, fyrrverandi verkakona. Þau eru búsett á Akureyri. Jóhannes Jakobsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Stundum fer ekki saman það sem maður helst vill og það sem manni er holl- ast. Fáðu einhvern í lið með þér, segðu hon- um frá draumum þínum og framkvæmið þá saman. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú verður fengin/n til að leysa vanda- mál og koma með hagnýtar lausnir. Nú finnst þér þú í meiri tengslum við umhverfið en áður. Stundum er betra að vinna með en reyna að kollvarpa öllu. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Sama hversu annríkt þú átt, þá skaltu gefa þér 15 mínútur í einrúmi á hverj- um degi. Farðu aðrar leiðir í lífinu en þú hef- ur gert hingað til. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Hlutur sem þú hélst að þú hefðir gengið frá fyrir fullt og allt kemur aftur í bak- ið á þér með óvæntum hætti. Hlutirnir virka öðruvísi en þú hélst. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Atburðarásin mun taka öll völd úr höndum þér ef þú ekki stingur við fótum og nærð stjórn á hlutunum. Þú ættir að hugsa oftar út fyrir boxið. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er nauðsynlegt að kynna sér vel smáa letrið áður en skrifað er undir. Leggðu þitt af mörkum til að bæta umhverfi þitt. 23. sept. - 22. okt.  Vog Skipuleggðu tíma þinn þannig að þú getir skotist frá til þess að sinna erindum. Sjálfstraustið er í góðu lagi og þú ert jafn- framt hress og bjartsýn/n á framtíðina. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú átt það til að draga þig í hlé til að forðast árekstra við annað fólk. Að gefa hluti sem maður hefur sankað að sér er ekki bara sársaukalaust, heldur frelsandi líka. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það gengur ekki að ætla sér að halda áfram með alla enda lausa. Hafðu var- ann á gagnvart fagurgala frá hinu kyninu. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú ert fær um að afla þér tekna með því einu að opna munninn. Hafðu þetta í huga þegar leitað er til þín. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Skarpskyggni þín í viðskiptum er kannski ekki tilkomin vegna menntunar held- ur innsæis. Innri ró er sú mikilvægasta. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú ert búinn að vera að glíma við stórt verkefni í langan tíma og nú er bara að leggja á það lokahönd. Þér verður kennt um hluti sem þú átt engan þátt í. kenna og mér fannst það liggja vel fyrir mér, en ég kenndi þýsku og sagnfræði og stundum íslensku.“ Guðlaug var leikari hjá Leikfélagi 2006. Hún var fyrst í eitt ár hjá Menntaskólanum á Akureyri og síðan við Verkmenntaskólann á Akureyri. „Mér fannst afskaplega gaman að G uðlaug Hermannsdóttir fæddist 15. febrúar 1936 í Vík í Mýrdal og ólst að- allega upp í Mýrdal en einnig á Síðu í Vestur- Skaftafellssýslu. Hún var í sveit á Ytri-Sólheimum í Mýrdal hjá tvíbura- systur móður sinnar. „Við móðir mín veiktumst af lömunarveiki þegar ég var tíu ára og hún var send til Reykjavíkur um tíma, en faðir minn hafði drukknað þegar ég var fimm ára.“ Guðlaug gekk fyrst í Barnaskólann í Vík. „Ég fór vítt og breitt með móð- ur minni vegna starfa hennar sem saumakennari og var í ýmsum skól- um víðsvegar á Suðurlandi, m.a. í Vestmannaeyjum.“ Hún var síðan í Skógaskóla í þrjá vetur og lauk þar námi árið 1953. Haustið 1954 fékk Guðlaug skólastyrk til lýðháskóla- dvalar í Bollnäs í Svíþjóð og lauk það- an námi á hússtjórnarsviði árið 1955. Hún hóf nám við öldungadeild MA árið 1975 og lauk þaðan stúdentsprófi árið 1977. Haustið 1977 hóf Guðlaug nám við háskólann í Konstanz í Vest- ur-Þýskalandi í sagnfræði og þýsku og lauk því árið 1980 og árið 1981 lauk hún BA í sagnfræði frá Háskóla Ís- lands. Uppeldis- og kennslufræði við HÍ lauk Guðlaug árið 1982. „Það hafði alltaf blundað í mér að fara í há- skólanám og maðurinn minn sýndi einstaka fórnfýsi. Hann sagði að hann væri tilbúinn að fylgja mér í há- skólanáminu ef það væri ekki til Reykjavíkur, og átti við að við færum út og úr varð að við fórum til Þýska- lands.“ Tólf ára gömul hóf Guðlaug vinnu við sláturhúsið í Vík og var þar alls í þrjár sláturtíðir. Hún vann sem kaupakona á sumrin í kringum Vík í Mýrdal og 17 ára gömul réð Guðlaug sig sem kaupakonu í Saurbæ í Eyja- firði. Hún vann einnig í eitt ár sem símastúlka á Landsímanum á Hvols- velli og árið 1955 hóf hún störf við Kaupfélagið í Vík í Mýrdal. Eftir að Guðlaug flutti til Akureyrar hóf hún störf á saumastofu Amaro árið 1959. Þar vann hún meira og minna næstu 20 árin. Eftir að háskólanáminu lauk vann Guðlaug sem framhaldsskóla- kennari þar til hún lét af störfum árið Akureyrar í góð 10 ár á 7. og 8. ára- tugnum. „Ég held að ég hafi leikið 30- 40 hlutverk en hugsa að Stromp- leikur eftir Laxness sé eftirminnileg- ast, líka Draumur á Jónsmessunótt, Eftirlitsmaðurinn eftir Gogol og leik- gerð Bríetar Héðinsdóttur af Jómfrú Ragnheiði. Ég hafði alltaf mjög gam- an af því að vera á sviðinu.“ Guðlaug var árum saman í stjórn Leikfélags Akureyrar. Einnig var hún virk í starfi hestamannafélagsins Léttis og sat í stjórn íþróttadeildar Léttis um árabil. Guðlaug tók virkan þátt í kórstarfi á Akureyri, söng með Kirkjukór Akureyrarkirkju og kvennakórnum Gígjunum um árabil. „Ég lærði að syngja hjá Sigurði Demetz og það var ekki leiðinlegt að vera hjá honum. Ég var samt ekki mikið fyrir að syngja einsöng, vildi bara vera þokkaleg söngkona og leik- kona.“ Á námsárum sínum hlaut Guðlaug margoft viðurkenningar fyrir fram- Guðlaug Hermannsdóttir, sagnfræðingur og framhaldsskólakennari – 85 ára Hjónin Guðlaug og Brynjar í svalagarðinum heima hjá sér í Skálateigi. Er að skrifa ættarsögu sína Fjölskyldan Brynjar, Hermann, Sigrún María, Harpa og Guðlaug. Leikkonan Guðlaug í Túskildings- óperunni með Leikfélagi Akureyrar. 40 ára Halla María er frá Ögri í Ísafjarðar- djúpi en býr í Reykja- vík. Hún er með MA- gráðu í náms- og starfsráðgjöf frá HÍ og er náms- og starfs- ráðgjafi við Tækni- skólann. Halla María rekur ferðaþjónustu í Ögri ásamt systkinum sínum. Maki: Þórólfur Sveinn Sveinsson, f. 1980, matvælafræðingur og gæðastjóri hjá Coca Cola European Partners. Börn: Ágústa María, f. 2007, Vigdís Lilja, f. 2010, og Jakob Valdimar Sveinn, f. 2016. Foreldrar: Halldór Hafliðason, f. 1933, d. 2009, og María Guðröðardóttir, f. 1942, d. 2012, bændur í Ögri. Halla María Halldórsdóttir Til hamingju með daginn FASTEIGNIR Fasteignablað Morgunblaðsins Efnistökin er t.d þessi: • Hvernig er fasteigna- markaðurinn að þróast? • Viðtöl við fólk sem elskar að flytja. • Hvernig gerir þú heimili tilbúið fyrir fasteignamyndatöku? • Viðtöl við fasteignasala. • Innlit á heillandi heimili. • Góðar hugmyndir fyrir lítil rými. Pöntun auglýsinga: Sigrún Sigurðurdóttir 569 1378 sigruns@mbl.is Bylgja Sigþórsdóttir 569 1148 bylgja@mbl.is KEMUR ÚT 26. feb Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.