Morgunblaðið - 15.02.2021, Side 27

Morgunblaðið - 15.02.2021, Side 27
 Þýska stórveldið Bayern München er búið að staðfesta kaupin á varnar- manninum eftirsótta Dayot Upamec- ano. Franski landsliðsmaðurinn kemur frá þýska liðinu RB Leipzig en hann er afar leikreyndur þrátt fyrir að vera að- eins 22 ára gamall. Ensku úrvalsdeild- arfélögin Liverpool, Chelsea og Man- chester United höfðu öll verið orðuð við Upamecano en nú hefur Bayern skotið þeim ref fyrir rass.  Lærisveinar Aðalsteins Eyjólfs- sonar í meistaraliði Kadetten í Sviss unnu 38:19-stórsigur á botnliði End- ingen í efstu deildinni á laugardaginn og halda því áfram vel í við toppliðin í deildinni. Aðalsteinn og Kadetten urðu svissneskir meistarar á síðustu leiktíð en hann hefur stýrt liðinu síðan í febr- úar á síðasta ári.  Patrik Sigurður Gunnarsson stóð í marki Silkeborg í fyrsta sinn og hélt hreinu þegar liðið vann 2:0 sigur á Hvidovre í dönsku B-deildinni í knatt- spyrnu í gær. Stefán Teitur Þórðarson spilaði sömuleiðis allan leikinn fyrir Silkeborg. ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. FEBRÚAR 2021 HANDBOLTINN Kristján Jónsson kris@mbl.is Afturelding tyllti sér í toppsætið í Ol- ís-deild karla í gærkvöldi en þrír leik- ir fóru fram í gær. Umferðinni lýkur með þremur leikjum í kvöld og þá mætast til að mynda Hafnafjarðar- liðin FH og Haukar. Afturelding náði toppsætinu með því að leggja botnlið ÍR að velli 27:22. Staðan var jöfn 18:18 þegar um tólf mínútur voru eftir. ÍR er án stiga og ekki seinna vænna að ná í stig. Óvænt úrslit urðu í Safamýri þegar Fram vann Selfoss 27:25 eftir jafnan leik. Leikurinn var í járnum svo gott sem allan tímann, munurinn á lið- unum var aldrei meiri en tvö mörk. Jafnt var að loknum fyrri hálfleik 12:12 sem var viðeigandi staða. Aftur var jafnt 23:23 þegar sex mínútur voru eftir en Framarar voru sterkari á lokasprettinum og lönduðu sigri. Svo virtist sem möguleiki væri að skapast fyrir Selfoss þegar Svein Aron Sveinsson skoraði úr vítakasti á 58. mínútu og Þorgrímur Smári Ólafsson fékk tveggja mínútna brott- vísun hjá Fram. Var staðan þá 26:25 og Selfyssingar virtust þá geta náð stigi út úr leiknum. Þá fóru Framarar í langa sókn sem lauk með því að Stefán Darri Þórsson skoraði úr þröngu færi. Reyndist það síðasta markið. Selfoss hafði einungis tapað einum leik af fyrstu sjö og liðið hafði leikið vel að undanförnu. Selfyssingar munu vafalítið halda áfram að safna stigum þar sem góður bragur virðist vera á liðinu. Selfoss er með 11 stig og Fram er nú með 9 stig. Framarar hafa verið öflugir eftir að deildin fór af stað á ný eftir langt hlé og hafa unnið bæði Val og Selfoss á tiltölulega skömmum tíma. Framarar hafa því slitið sig vel frá fallbaráttunni með góðum úrslitum að undanförnu. 35 mörk skoruð á Akureyri Þórsarar hleyptu auknu lífi í bar- áttuna í neðri hluta deildarinnar með því að leggja Gróttu að velli á Ak- ureyri en þessi lið eru nýliðar í deild- inni í vetur. Þórsarar lönduðu eins marks sigri 18:17 en lokatölurnar minna á úrslit í hörkuleikjum fyrir þrjátíu til fjörutíu árum. Markverðir liðanna komust vel frá leiknum en Jovan Kukobat varði 15 skot hjá Þór og var með 47% markvörslu. Stefán Huldar Stefánsson var einnig með 47% vörslu hjá Gróttu en hann varði 16 skot. Þór er með 4 stig og Grótta er með 5 stig og framundan gæti verið mikil barátta á milli þessara liða um að halda sætinu í deildinni. Þór hleypti lífi í botnbaráttuna  Afturelding náði toppsætinu  Framarar hafa unnið bæði Val og Selfoss Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir Vörn Þorgrímur Smári Ólafsson og Stefáni Darri Þórsson mæta hér Ragnari Jóhannssyni Selfyssingi. Hvergerðingar eru enn ósigraðir í Mizuno-deild karla í blaki á þessu keppnistímabili. Í gær fengu þeir Vestfirðinga í heimsókn og unnu 3:0. Hrinurnar vann Hamar 25:15, 25:14 og 23:20. Hamar er á toppn- um en Vestri í 6. sæti. Afturelding og HK eru efst í Miz- uno-deild kvenna og KA er rétt á eftir í 3. sæti eftir tvo sigra gegn Þrótti R um helgina. KA vann báða leikina 3:0. Þróttur Fjarðabyggð og Álftanes mættust einnig tvívegis um helgina og unnu sitt hvorn leik- inn. sport@mbl.is Hamar enn með fullt hús stiga Ljósmynd/Frank Atteneder Reyndur Hafsteinn Valdimarsson var atkvæðamikill hjá Hamri. Hægri skytturnar Ómar Ingi Magn- ússon og Viggó Kristjánsson héldu uppteknum hætti í þýsku efstu deildinni í handknattleik í gær en þeir voru báðir markahæstir í liðum sínum þegar þau unnu leiki sína. Ómar Ingi skoraði 11 mörk fyrir Magdeburg sem vann nauman 29:28-sigur á Minden og hann varði einnig tvö skot í vörninni. Ómar er með markahæstu mönnum deild- arinnar en hann er þar í sjötta sæti með alls 92 mörk. Liðsfélagi hans hjá Magdeburg, Gísli Þorgeir Krist- jánsson, kom einnig við sögu í gær og skoraði tvö mörk. Magdeburg er í 5. sæti deildarinnar eftir 15 leiki. Viggó skoraði níu mörk og gaf tvær stoðsendingar er Stuttgart lagði lærsveina landsliðsþjálfarans Guðmundar Þórðar Guðmundssonar í Melsungen með 30 mörkum gegn 28. Viggó er markahæstur allra í þýsku deildinni, hann er búinn að skora 123 mörk en þrír Íslendingar eru á lista yfir tíu efstu markaskor- arana, Bjarki Már Elísson er í þriðja sæti með 107 mörk en hann er leik- maður Lemgo Elvar Ásgeirsson, samherji Viggós í Stuttgart, komst ekki á blað í leiknum en Arnar Freyr Arnars- son, sem spilar með Melsungen, skoraði eitt mark og gaf eina stoð- sendingu. Stuttgart er í 10. sæti, sæti fyrir ofan Guðmund og læri- sveina hans í Melsungen sem eiga hins vegar nokkra leiki til góða. Þá skoraði Arnór Þór Gunnarsson fimm mörk fyrir Bergischer þegar liðið tapaði naumlega fyrir Leipzig, 29:30. Bergischer er í 8. sæti deild- arinnar. Raða inn mörkum í þýsku deildinni AFP Markahæstur Viggó Kristjánsson hefur skorað flest mörk í deildinni. Olísdeild karla Þór – Grótta .......................................... 18:17 ÍR – Afturelding ................................... 22:27 Fram – Selfoss...................................... 27:25 Staðan: Afturelding 9 6 1 2 226:222 13 Haukar 7 6 0 1 204:170 12 Selfoss 8 5 1 2 216:193 11 FH 8 5 1 2 231:206 11 Valur 8 5 0 3 234:218 10 ÍBV 7 4 1 2 203:191 9 Fram 9 4 1 4 217:221 9 Stjarnan 8 3 1 4 209:217 7 KA 7 2 3 2 183:167 7 Grótta 9 1 3 5 214:222 5 Þór Ak. 9 2 0 7 204:238 4 ÍR 9 0 0 9 201:277 0 Grill 66 deild karla Víkingur – Hörður................................ 34:28 Olísdeild kvenna FH – Haukar ........................................ 19:33 Fram – Valur ........................................ 30:22 Stjarnan – KA/Þór ............................... 26:27 Staðan: KA/Þór 9 6 2 1 216:197 14 Fram 9 7 0 2 266:217 14 Valur 9 4 3 2 242:210 11 Stjarnan 9 5 0 4 239:229 10 Haukar 9 4 1 4 224:227 9 ÍBV 8 3 1 4 200:188 7 HK 8 2 1 5 197:216 5 FH 9 0 0 9 176:276 0 Grill 66 deild kvenna Selfoss – ÍR............................................16:31 Fjölnir/Fylkir – Valur U...................... 29:35 HK U – Fram U.................................... 31:30 Þýskaland Göppingen – RN Löwen ..................... 34:32  Janus Daði Smárason skoraði ekki fyrir Göppingen.  Ýmir Örn Gíslason skoraði 1 mark fyrir Löwen. Hannover-Burgdorf – Flensburg...... 26:33  Alexander Petersson var ekki með Flensburg. Magdeburg – Minden.......................... 29:28  Ómar Ingi Magnússon skoraði 11 mörk fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir Krist- jánsson 2. Bergischer – Leipzig........................... 29:30  Arnór Þór Gunnarsson skoraði fimm mörk fyrir Bergischer. Melsungen – Stuttgart........................ 28:30  Arnar Freyr Arnarsson skoraði eitt mark fyrir Melsungen. Guðmundur Þ. Guð- mundsson er þjálfari liðsins.  Viggó Kristjánsson skoraði 9 mörk fyrir Stuttgart og Elvar Ásgeirsson ekkert. B-deild: Aue – Dessauer .................................... 23:22  Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 4 mörk fyrir Aue. Sveinbjörn Pétursson varði 2 skot í marki liðsins. Rúnar Sig- tryggsson þjálfar Aue. Freiburg – Sachsen Zwickau............. 21:29 Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði 2 mörk fyrir Sachsen Zwickau. Spánn Huesca – Barcelona............................. 28:40  Aron Pálmarsson skoraði 1 mark fyrir Barcelona. Danmörk Holstebro – Bjerringbro/Silkeborg ..31:33  Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 2 mörk fyrir Tvis Holstebro. Pólland Azoty-Pulaw – Kielce ......................... 29:33  Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 2 mörk fyrir Kielce en Haukur Þrastarson er frá keppni vegna meiðsla. Svíþjóð Helsingborg – Kristianstad................ 23:27  Teitur Örn Einarsson skoraði 3 mörk fyrir Kristianstad og Ólafur Andrés Guð- mundsson 1 mark. Redbergslid – Alingsås....................... 25:25  Aron Dagur Pálsson skoraði 3 mörk fyr- ir Alingsås og gaf 4 stoðsendingar. Önnered – Skövde ............................... 20:20  Bjarni Ófeigur Valdimarsson lék ekki með Skövde. Sviss Kadetten Endingen............................. 38:19  Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Kadetten.  1. deild kvenna Vestri – Hamar - Þór............................ 64:60 ÍR – Tindastóll...................................... 66:38 Spánn B-deild: Real Murcia – Girona ................. 93:87 (frl.)  Kári Jónsson lék í 24 mínútur með Gi- rona, skoraði 8 stig, tók eitt frákast og gaf eina stoðsendingu. Þýskaland Fraport Ulm......................................... 68:87  Jón Axel Guðmundsson skoraði 4 stig og tók 2 fráköst.  Skautafélag Akureyrar gjörsigraði Fjölni í Hertz-deild kvenna í íshokkíi í Skautahöllinni á Akureyri í tveimur leikjum um helgina. Liðin mættust fyrst á laugardaginn og hafði SA þá betur 9:0. Saga Sigurðardóttir skor- aði þrjú, Inga Aradóttir tvö og þær Berglind Leifsdóttir, Katrín Björns- dóttir, Gunnborg Jóhannsdóttir og Védís Valdemarsdóttir allar eitt. Seinni leiknum, sem fór fram í gær, lauk svo með enn stærri mun er SA vann 17:0. Ragnhildur Kjart- ansdóttir og Arndís Sigurðardóttir skoruðu þrjú mörk hvor, Hilma Bergsdóttir og Saga skoruðu tvö. Þá voru sjö leikmenn með eitt mark, þær Berglind, Katrín, Gunnbjörg, Teresa Snorradóttir, María Eiríks- dóttir, Jónína Guðbjardsdóttir og Elín Þorsteinsdóttir. SA er með fullt hús stiga eftir fimm leiki en Fjölnir hefur unnið einn af fjórum. SR rekur lestina með þrjú töp í þremur. Morgunblaðið/Þórir Stórsigrar Berglind Leifsdóttir var á meðal markaskorara SA um helgina. Tveir stórsigrar fyrir norðan

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.