Morgunblaðið - 15.02.2021, Qupperneq 32
Ómar Garðarsson
Vestmannaeyjum
Himnesk hamingja mest í Vest-
mannaeyjum. Það er niðurstaða við-
horfskönnunar meðal íbúa sveitarfé-
laga um allt land. Margt þarf til og
margir að leggjast á árarnar til að ná
toppnum. Þar lætur starfsfólk Bóka-
safns Vestmannaeyja ekki sitt eftir
liggja í að auka hamingju Eyja-
manna. Bregða á leik af minnsta til-
efni og einn þeirra er Blint stefnumót
við bók.
Viðburður sem þau tengja við Val-
entínusardaginn, sem var í gær, en
nú þegar bolludagur, sprengidagur
og öskudagur koma beint í kjölfarið
er tilefnið orðið fjórfalt. Það er hægt
að skella sér á blint stefnumót vikuna
fyrir og eftir Valentínusardag til að
sem flestir geti látið koma sér
skemmtilega á óvart.
Í framlínunni eru Drífa Þöll Arnar-
dóttir og Sóley Linda Egilsdóttir,
sveitastelpur sem settust að í Eyjum
og una hag sínum vel. „Við byrjuðum
á þessu fyrir þremur árum, sáum
þetta á góðri síðu á netinu og fannst
tilvalið að prófa,“ segir Drífa Þöll.
„Fyrirkomulagið er þannig að við
pökkum inn bókasafnsbókum. Velj-
um bækur sem við höfum lesið og
finnst góðar eða heyrt að þær séu
þess virði að skella sér á blint stefnu-
mót með. Þetta eru allskonar bækur,
skáldsögur, fræðibækur, ævisögur og
glæpasögur.“
Þrjár vísbendingar
Bókunum er pakkað inn og á pakk-
ann eru skrifaðar þrjár vísbendingar
um hvað bókin er. Skellt á strika-
merki þannig að hægt sé að lána bók-
ina út. „Svo velur fólk sér bók og læt-
ur koma sér á óvart þegar heim er
komið,“ segir Sóley Linda. „Þetta
hefur verið vinsælt og fljótlega eftir
áramót var fólk farið að spyrja hvort
þetta yrði ekki örugglega aftur í ár.
Það sýnir að fólk er ánægt en það
kemur fyrir að þeir sem eru duglegir
að koma á bókasafnið velji sér óvart
bók sem þeir eru búnir að lesa.“
„Það er svo skemmtilegt að með
þessu fer fólk stundum út fyrir sinn
lestrarramma og les bækur sem það
hefði kannski annars ekki tekið. Eitt
dæmi er maður sem kemur reglulega
á safnið og fór á blint stefnumót við
bók í fyrra. Hann sagði okkur að
hann hefði aldrei valið þessa bók
sjálfur en gaf henni séns og var mjög
ánægður. Svona reynslusögur hvetja
okkur áfram,“ segir Drífa Þöll bros-
andi.
Þær eru sannfærðar um að þetta
efli ást á bókum. „Ekki skemmir ef
þetta framtak okkar kveikir ástar-
neista hjá okkar fólki. Það hittist líka
vel á núna, þegar minna verður úr há-
tíðarhöldum á vísi okkar að kjöt-
kveðjuhátíð í aðdraganda löngu föstu,
sem bolludagur, sprengidagur og
öskudagur eru. Þá er gott að grípa í
bók eftir nett ofát. Hefðir sem við
sveitastelpurnar höldum í,“ sögðu
þær að endingu hlæjandi.
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Vestmannaeyjar Drífa Þöll Arnardóttir og Sóley Linda Egilsdóttir bjóða upp á blint stefnumót á bókasafninu.
Hamingja og ást á
bókum og kjötið kvatt
Blint stefnumót við bók á bókasafninu í Vestmannaeyjum
Heppinn áskrifandi mun vinna nýjan Toyota Yaris
Hybrid Active Plus að andvirði 4.270.000 kr.
Allir áskrifendur eru sjálfkrafa í pottinum.
Toyota Yaris Hybrid Active Plus stendur fyrir allt
sem Morgunblaðið hefur að leiðarljósi – traustur
og fjölhæfur brautryðjandi.
Tryggðu þér áskrift strax í dag á mbl.is/askrift eða
í síma 569-1100.
Við drögum 25. mars
Í BÍLSTJÓRA-
SÆTINU
Áskrifandi
Morgunblaðsins
Eftir margra mánaða lokun vegna kórónuveirufarald-
ursins hefur gestum verið hleypt aftur til að skoða hið
víðfræga meistaraverk Leonardos da Vinci í klaustrinu
Santa Maria delle Grazie í Mílanó. Aðeins nokkrum er
hleypt inn í einu, að viðhöfðum stífum sóttvarna-
reglum, og verður hægt að skoða freskuna frægu fjóra
daga í viku á næstu tveimur vikum. Da Vinci málaði
veggmyndina á síðasta áratug fimmtándu aldar.
Gestir komast aftur að Síðustu
kvöldmáltíðinni í Mílanó
MÁNUDAGUR 15. FEBRÚAR 46. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Fram hafði betur þegar stórlið Fram og Vals mættust í
Safamýrinni í níundu umferð Íslandsmóts kvenna í
handknattleik, Olísdeildinni, á laugardaginn. Liðin hafa
skipst á að vera besta lið landsins undanfarin ár. Fram
vann tvöfalt árið 2018, varð Íslands- og bikarmeistari,
Valur lék þann leik eftir ári síðar og Framarar voru lík-
legir síðasta vor og að lokum krýndir deildarmeistarar
eftir að keppni var aflýst vegna kórónuveiru-
faraldursins. Að þessu sinni varð viðureign liðanna ekki
spennandi og Fram tók öll völd á vellinum. » 26
Fram tók öll völd þegar sigursæl-
ustu kvennalið síðustu ára mættust
ÍÞRÓTTIR MENNING