Morgunblaðið - 13.02.2021, Side 4

Morgunblaðið - 13.02.2021, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 2021 Fiskiker merkt Umbúðamiðlun eru eign félagsins og einungis ætluð undir ferskan fisk og ís Öll önnur notkun varðar sektum! 555 6677 | umb.is | Korngörðum 5, Reykjavík EIGNUM ANNARRA SITURÞÚÁ Vinsamlega skilið kerjum okkar á næsta fiskamarkað eða til Umbúðamiðlunar Niðurstöður af sívirkri vöktun á óæskilegum efnum í ætum hluta sjáv- arfangs á Íslandi fyrir árið 2020 liggja nú fyrir. Rannsókn, gagnasöfn- un og útgáfa skýrslu vegna vöktunar- innar er í höndum Matís ohf. Niðurstöður ársins 2020 sýna að öll sýni af sjávarafurðum til manneldis voru vel undir hámarksgildum ESB fyrir þrávirk lífræn efni, varnarefni og þungmálma. Sophie Jensen, sér- fræðingur í efnagreiningum hjá Mat- ís, er verkefnastjóri vöktunarinnar. Í samtali við 200 mílur segir Sophie sýni vera tekin árlega af sjávarfangi sem náð hefur markaðsstærð. Sýnin eru rannsökuð m.t.t styrks þung- málma, blýs, kvikasilfurs, kadmíns, arsens og tins, sem og styrks þrjátíu varnarefna og niðurbrotsefna þeirra, og einnig díoxíns, díoxínlíkra PCB- og PCB-efna sem eru ekki díoxínlík. Flest eru þetta þrávirk efni sem brotna ekki niður í umhverfinu held- ur stigmagnast í fæðukeðjunni og enda í fólki. Þá eru mörg þessara efna fitusækin og safnast upp í fitu fiska. Því er t.d. mikilvægt að vakta grálúðu sem nær tiltölulega háum aldri og hefur fituríkt hold. Sophie segir að þungmálmarnir blý og kvikasilfur mælist mjög lágir og mælist oftast nær undir greiningarmörkum. Styrk- ur þungmálma í íslensku sjávarfangi hefur haldist nokkuð stöðugur og lág- ur í gegnum tíðina að sögn Sophie. „Það sem stundum hefur verið vandamál á Íslandi er kadmín í t.d. kræklingi. Í þetta skipti mældist það lágt,“ segir Sophie. Hún segir að hár kadmínstyrkur sem áður hefur verið til vandræða á Íslandi stafi af nátt- úrulegu háu kadmínmagni í jarðveg- inum hér á landi. „Kræklingur vex þar sem er fjara, þar sem ferskvatn rennur gjarnan til sjávar og kadmín þar með,“ segir Sophie. karitas@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Kadmín hefur mælst hátt í íslenskum kræklingi vegna hárra gilda í jarðvegi. Lítið um óæskileg efni í sjávarfangi Kerfisbundin vöktun á óæskilegum efnum í ætu ís- lensku sjávarfangi hefur staðið yfir frá árinu 2003. Gildi á þungmálum hafa aldrei greinst yfir mörkum ESB við Ísland frá því að mælingar hófust. Karítas Ríkharðsdóttir karitas@mbl.is R agnar Jóhannsson, sviðs- stjóri fiskeldis hjá Haf- rannsóknastofnun, segir rannsóknir með hrong- kelsi í laxakvíum gengið vel. Hann segir þróun eldisins nokk- urn veginn vera komna og næstu skref í rannsóknum þessu tengdum vera tvö; annars vegar að finna hvernig nýta megi hrognkelsin eftir að þau hafa þjónað hlutverki sínu í laxakvíum. Hins vegar að vera með eigin klakfisk. Á Íslandi er einungis notast við hreins- unarhrognkelsi í laxeldi á Vest- fjöðrum. Eftir að hreinsunar- hrognkelsi hafa þjónað tilgangi sínum er þeim slátrað um leið og lax- inum í kvíunum. Unnin eins og úrgangur Hreinsunarhrognkelsunum er dælt upp með sama hætti og laxi í slátur- húsin, þar sem þau eru deyfð sér- staklega og slátrað. Þá eru þau flutt ásamt innyflum úr laxinum í Arctic Prótein í Borgarnesi þar sem þau eru brædd í lýsi og mjöl. Hrognkelsin eru því meðhöndluð eins og úrgangur úr vinnslu. Ekki er unnt að nota hreinsunar- hrognkelsi áfram vegna þess að þau hafa náð slíkri stærð að þau hafa ekki lengur lyst á lúsinni. Einnig myndi slíkt bjóða upp á smithættu en ekki er hægt að setja lifandi fisk á milli kvía upp á sjúkdómshættu. Lifunin á hrognkelsum sem notuð eru í hreinsun á laxi hefur batnað verulega frá því að tilraunirnar hóf- ust. Ragnar segir lifunina hafa verið vandamál til að byrja með en með bættu fóðri og bættri meðferð hefur hún stórbatnað. „Við þurfum þó að ná henni á það stig að dánartíðni hjá hrognkelsinu sé ekki meiri en dánar- tíðni hjá löxunum sjálfum.“ Einbeita sér að klakfiski Eftir slátrun stendur nokkur líf- massi eða hráefni, sem eru hrogn- kelsin. Þau eru ekki nema 200-300 grömm þegar að slátrun kemur. Nýt- ingin á hráefninu í afurð er því nokk- ur áskorun. Ragnar telur ekki raunhæft að selja hreinsunarfiskinn eftir slátrun, enda hafa hveljur af villtum hrogn- kelsum ekki skapað nægilega mikil útflutningsverðmæti hingað til þrátt fyrir að vera töluvert stærri. Hann segir Matís hafa unnið verkefni þar sem þess var freistað að vinna verð- mætari prótein til manneldis úr hrognkelsunum en ekki haft árangur sem erfiði. Líklega þurfi frekari af- urðaþróun að bíða betri tíma. Áður hafa verið gerðar tilraunir hér á landi og í Færeyjum við að vinna kollagen og gelatín úr villtum hveljum. Þá segir Ragnar að Hafrannsókna- stofnun muni einbeita sér að því að ala klakfisk fyrir hrognkelsin. „Núna er það þannig að við veiðum villt hrognkelsi sem eru hrognafull og hrognin síðan klakin úr villtum stofnum. Klakfiskarnir eru fyrst sett- ir í sóttkvíarstöð og mælingar gerðar til að sjá hvort einhverjir sjúkdómar séu til staðar,“ segir Ragnar. Framtíðaráformin eru þó að vera með eigið klakfiskeldi og vera mögu- lega með einhverskonar stofnfisk. Stofnfiskurinn yrði þá notaður við það að framleiða hrogn fyrir áfram- haldandi eldi. „Þá yrðum við laus undan þessari sjúkdómshættu og gætum mögulega farið að velja fyrir einhverjum hagstæðum eigin- leikum,“ segir Ragnar. Með því væri hægt að ná fram sóttfríum hrognum, á þeim árstíma sem hentar með ljósa- stýringu og nota sameinda- erfðafræðilegar aðferðir við val á for- eldrum með heppilegustu eiginleikana. Rannsóknir í Noregi lengra komnar Í Noregi glímir laxeldisiðnaðurinn við sama vandamálið. Árið 2019 voru yfir 39 milljónir hrognkelsaseiða seldar til laxeldis og eru hrognkelsi til hreinsunar á laxi þriðja mest alda fisktegundin í Nor- egi. Hvert seiði kostar um 20 norskar krónur, sem samsvarar um 300 ís- lenskum krónum. Matvælastofnun Noregs gerir ráð fyrir að um 40% hreinsunarfisks deyi kvíunum, sem byggt er á mati iðnaðarins sjálfs. Einnig fylgir því kostnaður að losa sig við hrognkelsin eftir notkun. Það er því til mikils að vinna ef hægt er að nýta hreinsunarfiskinn áfram eftir að hann hefur étið sig saddan af laxalús. Í Noregi vinnur Nofima rannsókn- arverkefnið „Frá úrgangi til matar – sjálfbær nýting hrognkelsa“ sem fjármagnað er af Rannsóknarráði Noregs. Fjármögnunin hljóðar upp á tæpar níu milljónir norskra króna sem samsvarar um 134 milljónum króna og stendur verkefnið til ársins 2023. Rannsóknaraðilar leitast við að svara spurningum um hvort hægt sé að vinna afurð til manneldis úr hreinsunarfiski. Ætlunin er að greina alla virðiskeðju hreinsunarfisks, allt frá flokkun og vinnslu að mögulegri arðsemi þess. Á sama tíma rannsakar Akvaplan Niva, dótturfélag norsku vatnsrannsóknastofnunarinnar, að- ferðir til þess að lokka fiskinn, sem þegar er orðinn of stór til að gæða sér á laxalús, úr kvíunum. Tilraunir hafa verið gerðar bæði með ljós og hljóð. Einnig kannar Akvaplan Niva aðferðir til að deyfa fiskinn á skilvirk- ari hátt fyrir slátrun. Þá er unnið í samstarfi við veit- ingastaði við að kanna möguleika þess að nýta hreinsunarhrognkelsi. Er möguleiki að nýta heinsunarhrognkelsin? Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun Hrognkelsisseiðin eru ekki bara krúttleg heldur líka gagnleg. Ragnar Jóhannsson Tilraunir með hrognkelsisseiði til að hreinsa lúsugan lax hafa verið gerðar frá árinu 2014. Hrognkelsin eru ekki nýtt eftir slátrun. Norð- menn spyrja sig hvort forsvaranlegt sé að ala fisk til að hann endi í bræðslu með úrgangi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.