Morgunblaðið - 13.02.2021, Side 12

Morgunblaðið - 13.02.2021, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 2021 Við stuðlum að verðmætasköpun í íslenskum sjávarútvegi Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is C harla Jean Basran, dokt- orsnemi við Rannsókna- setur Háskóla Íslands á Húsavík, hefur einmitt rannsakað þetta fyrir- bæri og sýna bráðabirgða- niðurstöður rannsóknarinnar að fjöldi hnúfubaka sem eiga viðkomu við Íslandsstrendur hafa á ein- hverjum tíma á lífsskeiði sínu flækst í veiðarfæri fiskiskipa. En hvernig varð það svo að Charla vildi rannsaka nákvæmlega þetta? „Ég hóf að rannsaka hvali í Kan- ada áður en ég flutti til Íslands. Þeg- ar ég flutti hingað varð mér ljóst hversu þýðingarmiklar fiskveiðar eru á Íslandi og hugsaði að það gætu verið einhverjir árekstrar að eiga sér stað milli sjávarútvegsins og hvala þar sem hvalastofnarnir við Ísland hafa stækkað undanfarin ár. Þannig að ég fékk mikinn áhuga á þessu og vildi í mastersnámi mínu skoða hvernig hægt væri að nálgast andstæða hagsmuni hvalanna og sjómanna með tilliti til sýnar beggja. Sem sjávarlíffræðingur hef ég oft- ast verið að skoða mál frá hlið hvalanna, en það er mjög áhugavert að rannsaka líka hina hlið málsins og skoða hvernig þetta er vandamál fyrir sjómennina líka.“ Fimmtungur hnúfubaka Fyrsta skref í rannsókninni var að komast að því hversu margir hnúfu- bakar hafa flækst í veiðarfæri og lif- að af. Fór sú kortlagning fram með því að skoða ör hvalanna, útskýrir Charla. Hægt var að skoða þau með því að stúdera þúsundir ljósmynda sem teknar hafa verið af sjómönn- um, almenningi og hvalaskoðunar- fyrirtækjum. „Okkar niðurstaða var að það séu að lágmarki 25% af íslenska stofn- inum sem hafa flækst í veiðarfærum og að þetta komi fyrir um 2% af stofninum á hverju ári. Áætlað er að fjöldi hnúfubaka við Ísland sé um tíu þúsund og má því telja að að minnsta kosti um 2.500 hvalir hafi lent í veiðarfærum fiskiskipa,“ segir hún. Þá sé alveg ljóst að hvert atvik er skaðlegt fyrir hvalina og hefur einn- ig neikvæð áhrif á veiðar fiskiskip- anna, að sögn hennar. „Það að þetta gerist um 200 sinnum á ári er eftir- tektarvert. Hins vegar vitum við ekki með vissu hvort atvikin sjálf eiga sér stað við Íslandsstrendur og það er mjög erfitt að komast að því enda ferðast hvalirnir langar leiðir. Þess vegna hóf ég að gera kannanir meðal þeirra sem stunda veiðar og tók viðtöl við skipstjóra í þeim til- gangi að komast að því hvert um- fangið sé við Ísland.“ Með könnunum og viðtölum kveðst Charla hafa fengið upplýs- ingar um hversu algengt sé að hvalir flækist í veiðarfærin og hversu mik- ið slíkt kunni að kosta útgerðaraðila. Hún segir eitt slíkt atvik geta kost- að upp í fjórar milljónir króna, eftir því hve alvarlegt tilfellið er. Ekki á einu máli um skráningu Halda mætti að með umfangsmikið skráningarkerfi eins og í íslenskum sjávarútvegi væri auðvelt að fletta því upp hversu margir hvalir fara í veiðarfæri fiskiskipa. Tilfellið er þó annað. Sé hvalur meðafli er skylt að tilkynna hann í gegnum afladagbók og þannig fara upplýsingar til Fiski- stofu. Það virðist hins vegar ekki vera sátt um hvernig ber að túlka ákvæði laganna, staðhæfir Charla. „Ef maður spyr vísindamenn segja þeir að hvert tilvik þar sem hvalur fer í veiðarfæri beri að skrá hvort sem hvalurinn lifir það af eða ekki. En samkvæmt niðurstöðum könn- unarinnar segjast þeir sem stunda veiðarnar ekki skrá hvali sem kom- ast undan. Hvert tilvik virðist því ekki vera tilkynnt, jafnvel þótt hval- urinn særist.“ Spurð hvaða áhrif þetta kunni að hafa á hvalastofninn, svarar Charla: „Við vitum meðal annars að sumir hvalir við Ísland gegna hlutverki í að halda uppi mjög litlum hvala- stofni við Grænhöfðaeyjar, sá hvala- stofn er talinn vera í útrýmingar- hættu.“ Þrátt fyrir að íslenski hvalastofninn sé mjög myndarlegur og í sterkri stöðu er ljóst að hvalir sem hafa orðið fyrir því að flækjast í veiðarfæri eru ólíklegri til að fjölga sér, þannig er hætta á að slík atvik við Ísland geti haft áhrif á stofna á öðrum miðum sem standa höllum fæti, útskýrir hún og bætir við að aðeins 200 dýr séu í stofninum við Grænhöfðaeyjar. Ástæða þessa er að hvalir sem flækjast eiga erfiðara með að ná í fæðu og hafa minni fitu- forða. Rannsóknir á tæknilausnum Charla telur fulla ástæðu til að leita leiða til að koma í veg fyrir að hvalir rati í veiðarfæri, en hún hefur einnig stundað rannsóknir á því sviði og þá einkum í sambandi við notkun sér- stakra hljóðgjafa eða Pinger-tækni sem ætluð er til að fæla hvali frá trollum. Hún segir loðnuútgerðirnar hafa frá upphafi sýnt tækninni sér- stakan áhuga. „Það kom líka í ljós í könnunum að það voru þeir sem stunda loðnuveiðar sem höfðu mestu áhyggjurnar og mestu vandamálin með skemmd veiðarfæri og tapaðan afla vegna hvala. Við höfum verið að vinna með þessa tækni sérstaklega hvað þetta varðar og líka í sambandi við netaveiðar.“ Uppsjávarskip Síldarvinnslunnar tók þátt í að prófa búnaðinn fyrir nokkrum árum á loðnuvertíð. „Þeir voru mjög ánægðir með Pinger- kerfið. Þeir fengu hvali í veiðarfærin sem þó komust út úr þeim án þess að valda skemmdum. Þetta virkaði því ekki alveg jafn vel og við von- uðum en skipið varð ekki fyrir neinu tjóni á veiðarfærum vegna hvala á þeirri vertíð. Þetta er klárlega eitt- hvað sem við viljum skoða betur. Ef hvalir eru að rata úr veiðarfærum vegna Pinger-kerfisins, þó svo það verði tjón í formi tapaðs afla, er til- efni til að sjá hvort við getum fengið þetta til þess að virka enn betur,“ segir Charla. Hún kveðst alls ekki á heimleið til Kanada á næstunni þrátt fyrir að doktorsnámi hennar sé að ljúka. Til stendur að halda áfram að rannsaka og prófa Pinger-tæknina hér á landi. Hnúfubakar umhverfis Ísland lenda oft í því að flækjast í veiðarfæri og er talið að að minnsta kosti 2.500 þeirra hafi orðið fyrir því óláni. Afleiðing- arnar eru töpuð veið- arfæri með tilheyrandi kostnaði fyrir sjómenn og útgerðir. Ekki eru afleiðingarnar betri fyr- ir hvalina sem kunna að kveljast og drepast. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðar Charla Jean Basran, doktorsnemi við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Húsavík, hefur skoðað þúsundir mynda af hnúfubökum. Ljósmynd/Freyr Antonsson Hnúfubakur í veiðarfærum í mars 2020. Net var vafið um sporð hvalsins. Vill forða hnúfubökum frá veiðarfærum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.