Morgunblaðið - 13.02.2021, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 13.02.2021, Qupperneq 6
Ómar Garðarsson fréttaritari í Vestmananeyjum H ún ólst upp við hefð- bundnar aðstæður í Vestmannaeyjum. Klár- aði grunnskólann, byrj- aði ung að vinna í fiski, stundaði og þjálfaði fimleika af krafti. Núna er hún verkstjóri yfir allri bolfiskvinnslu í Vinnslustöð- inni. Þar er í mörg horn að líta og vinnudagurinn oft langur. Ekki varð Covid-19 til að létta róðurinn en með samstöðu allra hefur tekist að sigla fram hjá öllum skerjum og enn sem komið er hefur starsfólkið og um leið Vinnslustöðin í heild sloppið vel í baráttunni við þennan ófögnuð. „Ég byrjaði að vinna hjá pabba þegar hann var yfir saltfiskinum í VSV og ég í áttunda og níunda bekk. Það gaf meiri pening og meiri vinnu en unglingavinnan. Góður félags- skapur, hresst og skemmtilegt lið og margir sem eru að vinna þarna enn þann dag í dag,“ segir Marta. En lífið er ekki bara saltfiskur. „Ég æfði fimleika í þrettán ár og þjálfaði í ein fimm eða sex ár. Var byrjuð að þjálfa með skóla og hélt því áfram þangað til ég var átján ára. Í dag er ég byrjuð aftur að æfa fimleika, svokallaða fullorðins- fimleika. Í nokkur ár vann ég í verslunum en einhvern veginn lá leiðin alltaf aftur í Vinnslustöðina.“ Marta byrjaði á gólfinu en svo lá leiðin upp á við. „Ég var í eftirlitinu, næst flokksstjóri á vöktum í síld, loðnu og makríl þar sem unnið var á vöktum allan sólarhringinn. Árið 2019 fannst mér nóg komið af vökt- um. Hentaði illa fyrir heimilislífið og dótturina og þá er mér boðin verkstjórastaðan í bolfisknum. Ég er yfir botnfisksalnum, humrinum sem og öðru. Við verkstjórarnir og flokksstjórar allra deilda vinnum þetta sem heild. Ég með áherslu á botnfisksalinn og hef yfirumsjón yf- ir vinnslunni sem er mitt aðalsvið. En það tengist á endanum í öllum deildum.“ Heppnar mæðgur Í dag eru á milli 60 og 70 manns í vinnslunni sem er hinn fasti kjarni. „Svo fjölgar á vertíðinni þegar vinnslan fer á fullt í saltfiski og loðnan sem við fáum loksins kallar á aukinn mannskap.“ Dagurinn er tekinn snemma í fiskinum og sjálf er Marta komin á fætur fyrir allar aldir. „Vinnslan er frá klukkan tíu mínútur í sjö á morgnana til tíu mínútur yfir þrjú eftir hádegi. Það er hefðbundinn vinnutími. Við mæðgurnar vöknum klukkan sex og ég er mætt ekki seinna en hálfsjö. Um hálfátta þeg- ar allt er komið í gang fer ég heim og græja Ragnheiði Rut fyrir skól- ann, sem tekur tíu mínútur. Við eig- um frábæra fjölskyldu hér í Eyjum sem hjálpar okkur mikið. Afi Gústi og amma Fríða skutla henni í skól- ann áður en þau fara í morgungöng- una sína og ég fer aftur í vinnu. Þegar ég þarf að mæta fyrr fær Ragnheiður Rut að sofa hjá ömmum sínum og öfum, ömmu Rut og afa Jonna og Fríðu og Gústa. Þau eru okkar kjarni hér í Eyjum og við er- um einstaklega heppnar mæðgur.“ Þetta breytist þegar vaktir eru. „Þá er unnið frá því fimm á morgn- ana til fimm eða hálfsex á daginn. Tólf tímar og getur verið meira.“ Samskipti á táknmáli Ef hægt er að tala um blandaða vinnu- staði á það við fiskvinnslu út um land allt. Í VSV er um helmingur starfs- fólksins útlendingar. „Mest eru þetta Pólverjar og Portúgalar og sam- skiptin ganga vel. Flestir kunna eitt- hvað í ensku og margir Pólverjarnir, sem hafa sest hér að og eru komnir með fjölskyldu og börn, hafa lært ís- lensku. Annars notar maður bara táknmál og helstu orð sem fólk skilur. Við erum með tvo pólska flokksstjóra. Annar talar reiprennandi íslensku og hinn ensku og það hjálpar mikið. Þetta er hörkuduglegt fólk sem gam- an er að vinna með. Það er góður mór- all, allir að vinna saman, hjálpast að og verkefnið er bara eitt, að klára daginn sem best.“ Miklar kröfur Fiskur sem fer um hendur fisk- vinnslufólks á Íslandi í dag er afurð sem oftar en ekki fer beint á disk neytenda og það eru gerðar miklar kröfur um nýtingu hráefnis, með- ferð og hreinlæti. „Við erum að vinna með mat og áherslan því mikil á hreinlæti. Tyggjó og eyrnalokkar eru bannaðir. Þú ferð aldrei inn í vinnsluna nema með hárnet og ekk- ert má standa út af. Karlar með skegg eru með skeggnet og allir með ermahlífar og þú snertir ekki afurðina án þess að vera í hönsk- um.“ Þegar talið berst að stöðu fisk- verkafólks almennt og viðhorfi fólks til starfa í sjávarútvegi segist Marta vera sátt. „Ég væri ekki í fiski ef ég væri ósátt, alls ekki. Mér líður vel og finnst vinnan skemmtileg. Hún er fjölbreytt og maður er alltaf að læra eitthvað nýtt. Mikið um að vera og líf og fjör. Ég get ekki kvartað undan starfsfólkinu okkar. Það virðir mig sem yfirmann en sem verkstjóri er ég ekki að setja mig á hærri hest en aðrir. Vil frekar hafa fólkið með en á móti. Þegar ég segist vinna sem verk- stjóri í fiski, spyr fólk hvað ég sé gömul. Ég svara því og þá er næsta spurning: Hvað ertu búin að vera lengi verkstjóri? Það vekur athygli að þrítug stelpa úr Eyjum sé í þess- ari stöðu hjá stóru sjávarútvegsfyr- irtæki,“ sagði Marta að endingu. Í lykilstöðu hjá stóru sjávarútvegsfyrirtæki Marta Möller, verkstjóri í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum (VSV), er Eyjakona í húð og hár, fædd 1990 og hefur komið sér vel fyrir með dótturinni, Ragnheiði Rut Ólafsdóttur Möller, í gömlu húsi við Vestmannabrautina. Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson „Í nokkur ár vann ég í verslunum en einhvern veginn lá leiðin alltaf aftur í Vinnslustöðina,“ segir Marta. Hún og dóttirin Ragnheiður Rut nýta gott veður til útivistar. 6 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 2021 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Útbreiðsla skollakopps í Hrútafirði, Bitrufirði, Miðfirði, Steingrímsfirði og við Grímsey var rannsökuð í lok september 2020 og hafa niðurstöður verið birtar á vef Hafrannsókna- stofnunar. Þar segir að 17 staðir voru rannsakaðir á fimm til 12 metra dýpi og var notaður ígulkeraplógur við veiðar. Alls fannst skollakoppur á 15 af þessum stöðum eða í 88% tilfella. Þá segir að ígulkerin voru yfirleitt í löndunarstærð og oft í töluverðu magni. Á 65% þeirra svæða sem voru skoðuð greindust kóralþör- ungar, en þó í mismiklu magni. Sunnanverður Steingrímsfjörður reyndist ákjósanlegasta veiðisvæðið og var fjöldi skollakopps þar mikill og ígulkerin yfir löndunarstærð, auk þess sem lítið var um kóralþörunga. Aflinn í Miðfirði var þokkalegur og ígulkerin stór „en þarna eru víða þekkt kóralþörungasvæði sem ber að varast“. Engar plógveiðar á svæðum með kóralþörunga Lítill þéttleiki var í Hrútafirði og Bitrufirði og skollakoppurinn sem þar veiddist lítill. Í fjörðunum tveim- ur var einnig mikið af kóralþörungi. „Greinóttir kóralþörungar mynda afar viðkvæmt og fjölbreytilegt bú- svæði með hátt verndargildi. Þau eru talin mikilvæg fyrir ungviði nytjastofna og ætti því ekki að stunda plógveiðar á slíkum svæð- um.“ Það var Þórishólmi ehf. í Stykk- ishólmi stóð fyrir leiðöngrunum og var ígulkeraveiðibátur þeirra, Sjöfn SH 707, notaður við könnunina og var Gunnar Víkingsson skipstjóri. Til rannsóknanna var notaður ígulkeraplógur, 2,5 m að breidd. Ljósmynd/Alaska Sea Life Center Skollakoppur er annað af tveimur algengustu ígulkerunum við Ísland. Skollakoppurinn í Steingrímsfirði stór

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.