Morgunblaðið - 13.02.2021, Síða 15

Morgunblaðið - 13.02.2021, Síða 15
LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 2021 MORGUNBLAÐIÐ 15 Karítas Ríkharðsdóttir karitas@mbl.is Skiptar skoðanir eru á frum-varpi Kristjáns Þórs Júlíus-sonar, sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra, um veiðistjórn grásleppu, sandkola og hryggleys- ingja. Málið var lagt fyrir á Alþingi um miðjan desember, mælti ráð- herra fyrir því þann 20. janúar og gekk það sama dag til atvinnuvega- nefndar Alþingis. Í grunninn gengur frumvarpið út á að tekin verði upp aflamarksstjórn við veiðar á grásleppu, sandkola í allri fiskveiðilandhelginni og sæ- bjúgum. Einnig er lagt til að heim- ilað verði að úthluta aflahlutdeild til veiða á staðbundnum nytjastofnum hryggleysingja þannig að sérstök aflahlutdeild komi fyrir hvert veiði- svæði. Alls hafa atvinnuveganefnd borist 48 umsagnir um málið úr ólíkum átt- um. Óhætt er að fullyrða að ekki séu allir á eitt sáttir. Ólíkar skoðanir sveitarfélaga Sveitarfélagið Skagafjörður sendi atvinnuveganefnd neikvæða umsöng um frumvarpið og leggst gegn breytingum sem lagðar eru til á veiðistjórn grásleppu. „Hvorki liggja fyrir byggðarleg né fiskifræði- leg rök fyrir kvótasetningu á hrogn- kelsum og leggst Sveitarfélagið Skagafjörður gegn því að það verði gert,“ segir í umsögn Sveitar- félagsins Skagafjarðar. Stykkis- hólmsbær sendi aftur á móti inn já- kvæða umsögn um málið og telur „að sú veiðistjórn sem felst í frum- varpinu muni koma til með að efla þær byggðir landsins sem þessar veiðar stunda og tryggja efnahags- lega, samfélagslega og líffrœðilega sjálfbærni í sem mestri sátt við um- hverfið.“ Þá er yfirlýst stefna Lands- samtaka smábátaeigenda að leggj- ast gegn kvótasetningu grá- sleppuveiða og hefur ítrekað verið ályktað um það, m.a. á aðalfundi sambandsins árið 20219 og 2020. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi segja í umsögn sinni að hlutdeild- arsetning sé almennt rétt nálgun þegar kemur að stjórn veiða úr nytjastofnum. Þó vilja samtökin að slík framkvæmd hamli ekki öðrum veiðum þar sem grásleppa hefur verið hluti aflans eins og til dæmis við veiðar á uppsjávarfiski. Sjávar- útvegsráðherra hefur áður gert til- raun til að leggja fram sambærilegt frumvarp á Alþingi en það hlaut ekki afgreiðslu þingflokka Framsóknar og Vinstri grænna. Skiptar skoðanir á framtíð fyrirkomulags grásleppuveiða Frumvarp sjávarútvegs- ráðherra um m.a. breytta veiðistjórn á grásleppu liggur nú hjá atvinnu- veganefnd þingsins. Morgunblaðið/Eggert Ljóst er að skiptar skoðanir eru um framtíðarfyrirkomulag á veiðistjórn grásleppu. Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Það hefur verið í nógu að snúast hjá Slippnum á Akureyri að undanförnu og kom frytitogarinn Blængur NK 125, sem gerður er út af Síldar- vinnslunni, í Slippinn til viðhalds seint í desember. Frá því er sagt á vef fyrirtækisins að fram fór almálning á skipinu, en í því felst málning á yfir- byggingu, þilförum, síðum og botni. Smíðaður var veltitankur á skipið og hann settur upp ásamt tengingum og stjórnbúnaði. Afgasketill var hreinsaður, ýmis innréttingarvinna í matsal og vistarverum skipverja var framkvæmd auk þess sem búnaður á vinnsluþilfari var yfirfarinn og önn- urhefðbundin viðhaldsverkefni klár- uð. Þá hefur grænlenska línuskipið Masilik, í eigu Royal Greeland, hald- ið til veiða eftir að hafa verið í slipp allan janúarmánuð. Í því skipi var unnið við endurbætur á klæðningum á vinnsludekki og það heilmálað. Skipið var jafnframt öxuldregið, unnið að ýmsum viðhaldsverkum í vélarrúmi og akkerishús lagfært, en stutt er frá því að skipið fékk á sig brot. Nú er Björg EA 7 komin í slipp og verður fram í miðjan mars í reglu- bundnu viðhaldi og þess sem nýjum lestarbúnaði verður komið fyrir. Gert er ráð fyrir að grænlenski tog- arinn Angunnguaq II komi í næstu viku og mun Slippurinn á Akureyri setja nýja aðalvél í skipið, endurnýja gír og margskonar vélbúnað í vélar- rúmi skipsins. Blængur við bryggju við Slippinn á Akureyri að lokinni yfirhalningu. Slippurinn á Akureyri tekur við fjölda skipa S J Á L F B Æ R N I O G U M H V E R F I H A F S Ý N U P P F Y L L I R K R Ö F U R F I S K V E I Ð I Y F I R V A L D A U M R A F R Æ N S K I L Á A F L A K Y N N T U Þ É R M Á L I Ð I N N Á W W W . H A F S Y N . I S

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.