Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.02.2021, Side 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.02.2021, Side 2
Hvernig kviknaði hugmyndin að leikritinu Útlendingurinn? Fyrir einu og hálfi ári flutti ég til Bergen í Noregi en kona mín fór þar í nám. Þar þurfti ég að aðlagast lífi þar sem ég hafði hvorki hlutverk né erindi. Ég fór að venja ferðir mínar í fallegan dal sem heitir Ísdalur. Ég komst að því að þar hafði fundist lík af konu fyrir hálfri öld. Líkfundurinn er einn umtalaðasti atburður sem átt hefur sér stað í Bergen í seinni tíð, en þetta mál hafði vakið heimsathygli og gerir enn. Nú hverfur fólk oft og finnst látið. Hvað er svona merkilegt við þessa konu? Einmitt, góð spurning. Líkið fannst brunnið og farangur konunnar fannst á lestarstöðinni. Þar mátti finna nokkra grunsamlega hluti, eins og dulargervi. Þar fannst líka vasa- bók með einkennilegum kóða sem reyndist vera ferðaáætlun. Hún ferðaðist undir dulnefnum. Margir héldu að hún væri njósnari en aðrir að hún væri veik á geði. Það tókst aldrei að leysa ráðgátuna um hver þessi kona var og margt sem vekur spurningar. Er þetta hluti af ráðgátuþríleik? Já. Ég skrifaði Club Romantica og það varð áhugi á að halda áfram með sama teymi í Borgarleikhúsinu. Þannig að ég skrif- aði Útlendinginn og mun koma með þriðja leikritið síðar, sem mun snerta á sama þema. Ég er að leita að merkingu í heimi sem virðist á köflum vera merkingarlaus. Ég er líka að halda á lofti minningu fólks sem annars mundi gleymast. Þú vilt ljá löngu liðnu fólki merkingu? Já, það er kannski frávörpun á eigin ótta við að gleymast. Morgunblaðið/Árni Sæberg FRIÐGEIR EINARSSON SITUR FYRIR SVÖRUM Óttinn að gleymast Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.2. 2021 STIGA ST5266 P 40 ár á Íslandi Hágæða snjóblásarar Fjölbreytt úrval Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is VETRARSÓL er umboðsaðili Gulltryggð gæði Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir Um daginn var ég stödd í röðinni í Bónus sem er ekki í frásögur færandi.Nema hvað, konan á undan mér snýr sér við og starir djúpt í augun ámér. Ég horfi vandræðalega til baka og hugsa: „Af hverju starir hún svona á mig?“ Ég lít aftur fyrir mig til að sjá hvort hún væri mögulega að stara á eitthvað annað og lít svo snöggt á hana aftur til að sjá hvort hún væri ekki far- in að snúa sér að öðru. En nei, það mætti mér aftur starandi og spyrjandi augnaráð. Það var engum blöðum um það að fletta að hún var að stara á mig. Í nokkrar sekúndur runnu á mig tvær grímur. Svo var eins og hulu væri lyft. Gardína dregin frá glugga. Ég þóttist kannast við konuna! Jú, þetta var hún besta vinkona mín síðan við vorum tíu ára; vinkon- ur í heil 44 ár. Og ég þekkti hana ekki þar sem hún stóð þarna með grímu! (Hún hafði ákveðið að sjá hvað það tæki mig langan tíma að þekkja sig og sagði því ekki orð). Svo var það konan sem heilsaði annarri konu kumpánlega í Krón- unni. „Blessuð, hvað er að frétta? Gaman að sjá þig hér!“ Hin svarar glaðlega: „Jú, allt fínt bara!“ Þær ræddu saman stutta stund þegar þær áttuðu sig báðar á því að þær þekktust hreint ekki neitt. Svona er þessi nýi grímuklæddi veruleiki; maður heilsar fólki sem maður þekkir ekkert og þekkir svo ekki bestu vinkonuna! Og hvernig í ósköpunum eiga einhleypingar að skoða hitt kynið, nú eða aðrir sem það gera? Ég spurði skiptinema sem hjá mér býr hvort það væru ekki sætir strákar í Versló. Hún sagðist hreinlega ekki vita það; það væru allir með grímu. Já, það er ekkert gaman að þessum grímum á neinn hátt, en við látum okkur þó hafa það enda lítil fórn í stóru myndinni. Gríman er óþægileg, krækist í eyrnalokkum, flækist í hári, móðar gleraugun og stundum líður manni eins og maður nái ekki andanum. Örugglega líka mjög slæm fyrir andfúla. Kostirnir eru auðvitað að maður getur vel farið út úr húsi þótt maður hafi vaknað með ljótuna. Það þekkir mann enginn hvort sem er. Hver hefði trúað því fyrir nákvæmlega ári að gríma yrði normið. Að fólk án grímu yrði litið hornauga! Svona er mannfólkið fljótt að aðlagast breyttum aðstæðum og taka upp nýja siði. En mikið verður dásamlegt þegar heimurinn getur andað léttar, laus við kórónuveiruna og laus við grímurnar. Þá verður engin hætta á að maður þekki ekki sína nánustu úti í búð! Grímuklæddur veruleikinn Pistill Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is ’ Gríman er óþægileg,krækist í eyrnar-lokkum, flækist í hári,móðar gleraugun og stundum líður manni eins og maður nái ekki andanum. Örugglega líka mjög slæm fyrir andfúla. Sigurveig Sara Björnsdóttir Já, sjö. Ég á afmæli sjöunda nóvember. SPURNING DAGSINS Áttu þér uppáhalds tölu? Leó Magnússon 29. Af því ég er fæddur 29. mars. Fjóla Ýr Ómarsdóttir Já, sex. Hann er ekki of framar- lega og ekki of aftarlega ef maður telur upp á tíu. Finnur Finnsson Já, sex. Ég er fæddur 2006, bróðir minn 1996 og pabbi 1966. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina tók Ásdís Ásgeirsdóttir Leikritið Útlendingurinn er nú sýnt á Litla sviði Borgarleikhússins. Friðgeir Einarsson er höfundur og leikari verksins. Með honum á sviðinu er Snorri Helgason sem flytur eigin tónlist. Miðar fást á tix.is.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.