Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.02.2021, Qupperneq 12
F
oreldrar eru fyrstu og mikilvægustu
kennarar barna og hafa úrslitaáhrif
á líðan þeirra og námsárangur,“
segir Ólafur Grétar Gunnarsson,
fjölskyldu-og hjónaráðgjafi, sem
lengi hefur velt fyrir sér vanda drengja í ís-
lenska skólakerfinu. Hann leggur áherslu á að
fara beint í grunninn til að freista þess að leysa
vandann. „Foreldrar sem eru öruggir í sínu
hlutverki og sækjast eftir sterkum tengslum
við börnin sín verja meiri tíma með þeim og
gera meira gagn. Það segir sig sjálft. Þetta er
grunnurinn sem síðan má byggja ofan á.“
Hann vill sjá betri stuðning og meiri fræðslu
fyrir foreldra og að faðir og móðir deili
ábyrgðinni á uppeldinu jafnt. „Kærleiksrík
fræðsla er ein besta leiðin til að vinna gegn
óöryggi. Með fræðslu á meðgöngu væri verið
að leggja áherslu á mikilvægi þess að foreldrar
taki jafna uppeldis- og umönnunarábyrgð og
stuðli þannig að betri heilsu og tilfinningalegu
jafnvægi barna og foreldra. Vitað er að þótt
bæði kynin geti verið óörugg og hafi mögulega
ekki fengið fræðslu og aðstoð sem verndar
geðheilsu þeirra og barnsins er móðirin að öllu
jöfnu af lífeðlisfræðilegum og jafnvel félags-
legum ástæðum betur til þess fallin að annast
ungbarnið en faðirinn. Aðgerðaleysi stjórn-
valda leiðir því oftar en ekki af sér að hún ann-
ast meira um barnið. Líta má á slíkt aðgerða-
leysi sem viðhaldandi afl við hefðbundin
kynhlutverk eldri kynslóða. Auk þess fær
móðirin mun meiri stuðning hjá heilbrigðis-
kerfinu á meðgöngu en faðirinn, samanber
mæðravernd en ekki foreldravernd.“
Forystuhlutverk í þjónustu
Ólafur Grétar bendir á, að jafnréttisfræðsla sé
viðurkennd aðferð til að breyta hefðbundnum
kynhlutverkum eldri kynslóða. Kröfur um að-
gerðir hafi verið háværar frá árinu 2007 þegar
aðgerðaáætlun varðandi börn og ungmenni
var fyrst samþykkt á Alþingi. Með fræðslunni
væri verið að taka forystuhlutverk í þjónustu
sem kallað er eftir, hvort sem það er mennta-
kerfið, velferðarkerfið eða atvinnulífið. „Ef við
sleppum fræðslunni og stuðningnum þá aukast
líkurnar á því að slökkviliðið beri að garði þeg-
ar húsið er þegar brunnið.“
Ólafur Grétar segir mikinn þrótt hafa verið í
þessum málum frá aldamótum en í hruninu
hafi þeim einfaldlega verið sópað undir teppið.
Nú sé hins vegar einhver kraftur og undiralda
að eiga sér stað á ný sem hann bindur vonir við
að komi til með að skila góðum árangri.
Ólafur Grétar bendir á, að nýjar rannsóknir
sýni að feður séu jafn mikilvægir geðheilsu
barna og mæður. Sem dæmi megi nefna að
þunglyndi og kvíði feðra strax eftir fæðingu
barns hafi mikil áhrif á börnin. Þau séu þá í
meiri hættu á að þróa með sér tilfinninga- og
hegðunarvanda síðar á ævinni, óháð heilsu
móðurinnar. „Sýnt hefur verið fram á að geta
föður til að vernda börn fyrir afleiðingum geð-
heilsubrests móður sé mikilvægur þáttur. Til
að bæta getu föður til að vernda börn og styðja
veika móður þarf hann fræðslu og aðstoð.“
Mikilvægt að byrja vel
Fjölþjóðlegar rannsóknir sýna, að sögn Ólafs
Grétars, að þegar þroski barns er undir með-
allagi fyrsta æviárið sé barnið mun líklegra til
að dragast enn meira aftur úr næstu árin, en
að það nái þeim sem fóru betur af stað. Mik-
ilvægt sé því að grípa strax inn í.
„Forvarnir sem miða að því að minnka heim-
ilisofbeldi, fækka skilnuðum, stuðla að jafnri
þáttöku mæðra og feðra við töku á fæðing-
arorlofi og sem jafnastri ábyrgð beggja foreldra
í uppeldi barna sinna er í anda nýrrar stefnu
barnamálaráðherra og hvatningar hans til sveit-
arfélaga. Barnamálaráðherra vill vera sannfær-
andi hvað varðar aðgerðir í að fækka erfiðum
fjölskyldumálum til muna á 10 til 15 árum með
því að vernda geðheilsu verðandi foreldra og
foreldra ungbarna,“ segir Ólafur Grétar og bæt-
ir við að óheilbrigðar aðstæður og skilnaður for-
eldra komi gjarnan harðar niður á drengjum en
stúlkum.
Ólafur Grétar hvetur foreldra sem sækja
ráðgjöf og fræðslu hjá honum að tileinka sér
hægari lífsstíl og flýta sér ekki að eiga annað
barn, sér í lagi ef fyrsta barnið er drengur.
Tölfræðileg gögn, allt frá síðustu öld, bendi til
þess að fæðing fyrsta barns í sambandi pars
geti verið ávísun á skilnað ef ekki er staðið
nógu vel að undirbúningnum. Fræðsla handa
verðandi foreldrum þjóni fyrir vikið þeim til-
gangi að efla fólk og gera það hæfara til að
axla foreldraábyrgð um leið og það styrkir
parsambandið þannig að umgjörðin sem barn-
ið fæðist inn í verði traustari.
Hann segir yngri foreldra þurfa á meiri
stuðningi að halda en fólk sem ákveðið hefur
að bíða með barneignir til að koma sér betur
fyrir í lífinu, félagslega og fjárhagslega og
undirbúa sig þannig betur.
Lengja þarf fæðingarorlofið
Brýnt er að halda áfram að lengja fæðingar-
orlofið um tvo mánuði á ári, að dómi Ólafs
Grétars, svo það verði orðið jafn langt og í Sví-
þjóð árið 2024, það er átján mánuðir. Það yrði
afgerandi leið til að auka þátttöku karla í
umönnun og uppeldi barna sinna. „Þegar horft
er á stöðu menntakerfisins er ekki hægt að
horfa fram hjá streitunni sem núverandi kerfi
hefur valdið foreldrum á meðgöngu og ung-
börnum. Í úttekt BSRB frá árinu 2017 kom í
ljós að íslensk börn voru að jafnaði um 20 mán-
aða gömul þegar þau komust inn á leikskóla.
Tólf mánaða fæðingarorlof dugar ekki.“
Hann leggur einnig til að mæður fái auka-
orlof seinasta mánuð meðgöngunnar, eins og
tíðkast í Noregi, og feður aukaorlof fyrsta
mánuðinn eftir barnsburð til að annast konu
sína og barn. Það styrki samband foreldranna
og samband þeirra við barnið, auk þess sem
það hjálpi föðurnum að skilja hlutverk sitt bet-
ur. Svo það sé á hreinu þá er hann að tala um
mánuð sem bætist við fæðingarorlofið en drag-
ist ekki frá því.
„Afleiðingar og eftirköst efnahagshrunsins
voru meðal annars fleiri léttburafæðingar og
hærri blóðþrýstingur meðal fæðingarkvenna.
Landlæknir varaði við alvarlegum afleiðingum
hrunsins á börn. Vitað er að afleiðingar streitu
og álags á meðgöngu og í frumbernsku vegna
Covid-19 gefa ástæðu fyrir svipaðar áhyggjur
og eru tilefni til forvarnaaðgerða,“ segir hann.
Styrkja þarf leikskólastigið
Ólafur Grétar segir að styrkja þurfi leik-
skólastigið með afgerandi hætti. Minnka þurfi
álag á starfsfólk og auka gæði starfsins með
þekkingu og skipulögðum stuðningi m.a í
formi handleiðslu. „Kúvending þarf að verða í
nálgun. Á sama tíma og halda verður áfram að-
gerðum til að fjölga menntuðum leik-
skólakennurnum og styrkja málörvun þarf að
huga að leiðum til að draga úr þörf á starfs-
fólki. Þær aðgerðir sem ég er búinn að nefna,
með foreldrum sem hafa betri forsendur og
átján mánaða fæðingarorlof gætu minnkað
þörf fyrir starfsfólk á leikskólum, starfsfólk
sem þegar er ekki til samkvæmt biðlistum, um
alla vega 25%. Foreldrar sem eru öruggari í
hlutverki sínu verja meiri tíma með börnum
sínum og sinna þörfum þeirra betur. Vel nærð
börn ganga minna á orkuforða starfsmanna
leikskólanna, sem er takmörkuð auðlind. Sama
á við um foreldra sem að auk fræðslu eiga
mögulega á að vinna styttri vinnudag. Þannig
að þetta er líka í anda styttingar vinnuvik-
unnar,“ segir Ólafur Grétar og bætir við að
óvissa um leikskólapláss sé að vonum streitu-
valdandi fyrir foreldra. Námsárangur og hegð-
unarvandi drengja kalli á aðgerðir sem byggj-
ast á bestu mögulegri þekkingu.
Foreldrar séu samstíga
Una María Óskarsdóttir, uppeldis-, mennt-
unar- og lýðheilsufræðingur og varaþingmað-
ur Miðflokksins, segir lykilatriði að foreldrar
hefji sína uppeldisvinnu strax; kynni sér
heppilegar uppeldisaðferðir og hafi þekkingu á
hverju einasta þroskaskeiði barna sinna. Þá sé
ekki síður mikilvægt að foreldrar séu samstíga
í uppeldisaðferðum sínum; að móðirin segi
ekki eitt og faðirinn annað. Að öðrum kosti
geti barnið eða börnin fengið misvísandi skila-
boð. „Það skiptir öllu máli að foreldrar hafi trú
á færni sinni. Ef maður vill þá getur maður!“
Una María segir grunnþætti eins og svefn,
næringu og líðan skipta miklu máli frá fyrstu
tíð. Eins séu hvatning og hrós mjög mikilvæg,
að því gefnu að það sé gert á réttum stöðum og
af réttu tilefni. „Ef börnum er hrósað of oft er
hætt við því að það missi marks,“ segir hún.
Una María hefur sannfæringu fyrir því að
grunnaðferðir í barnauppeldi gefist alltaf vel.
Á hitt beri þó að líta að börn séu mismunandi
að gerð og fyrir vikið sé erfitt að alhæfa í þessu
sambandi. Mikilvægast sé þó að hafa trú á
verkefninu og láta ekki hugfallast þótt á móti
blási.
„Hvernig vekurðu til dæmis syfjaðan ung-
ling?“ spyr hún. „Skiparðu honum að drulla
sér á fætur. Afsakaðu orðbragðið,“ segir hún
sposk. „Eða ferðu með meiri skilningi að hon-
um? Það getur verið erfitt að koma unglingi í
skólann á morgnana og mín skoðun er sú að
betra sé að nálgast hann á jákvæðninni og með
hægðinni, höfða til dæmis til áhugamála hans.
Heyrðu, er ekki æfing í dag? Þá kviknar gjarn-
an á perunni og unglingurinn fer fram úr.“
Að rjúfa vítahringinn
Þetta á auðvitað ekki bara við um morgun-
sárið; Una María segir almennt gott að sýna
áhugamálum unglingsins áhuga og skilning.
Það styrki tengslin.
Sumir unglingar vilja, eins og við þekkjum,
sem minnst afskipti frá hendi foreldra sinna.
„Hvert leita foreldrar þá? Í brjóstvitið eða eig-
ið uppeldi? Sumir alast upp við erfiðar að-
stæður, jafnvel harðræði, og geta lent í víta-
hring haldi þeir sig síðan sjálfir við slíkar
aðferðir í uppeldi á sínum eigin börnum. Aðrir
átta sig á þessu og leita eftir ráðgjöf út fyrir
heimilið. Oft með góðum árangri enda mikil-
vægt að rjúfa vítahringinn,“ segir Una María.
Gegnum aldirnar hefur ábyrgð á barnaupp-
eldi hvílt meira á mæðrum en feðrum en Una
María fagnar því að á seinni árum séu fleiri og
fleiri feður farnir að taka virkari þátt og axla
ábyrgð. „Það er sérstaklega mikilvægt að þeir
gefi sér tíma til að tala við syni sína, um námið,
áhugamálin, samskipti kynjanna og fleira, en
kenningar um félagsnám benda á að við til-
einkum okkur fremur hugmyndir og sjónar-
mið þeirra sem eru af sama kyni.“
Samstarf heimilis og skóla er Unu Maríu
einnig hugleikið. Foreldrar hennar voru báðir
kennarar, þannig að hún hefur velt þeirri hlið
mála fyrir sér frá fyrstu tíð. Á seinni árum hef-
ur Una María meðal annars verið formaður
Samkóp, samtaka foreldrafélaga grunnskóla í
Kópavogi, og formaður íþróttaráðs Kópvogs.
„Ég hef lengi komið að uppeldis- og félags-
málum og veit hvað það skiptir miklu máli að
talað sé vel um kennara inni á heimilunum.
Það hefur óhjákvæmilega áhrif á barnið ef tal-
að er illa um kennarann heima hjá því og
skólastarfinu sýnd vanvirðing. Það er miklu
happadrýgra að foreldrar styðji við bakið á
kennurum barna sinna en að þeir setji sig á há-
an hest gagnvart þeim og þykist vita betur. Ég
myndi frekar gera þetta svona og svona og þar
fram eftir götunum. Komi upp ágreiningsmál
er best að leysa þau með kennaranum og skól-
anum. Það er engin lausn að varpa ábyrgðinni
yfir á skólann. Samstarfið milli þessara
tveggja aðila þarf að vera gott; það tapar eng-
inn meira á ágreiningi en barnið.“
Spyrjið meira en minna
Hún hvetur foreldra til að spyrja meira en
minna, jafnvel þó að þeir óttist að spurningar
þeirra séu kjánalegar.
Una María reyndi þetta á eigin skinni en
sjálf var hún lengur að læra að lesa en margir
bekkjarfélaganna. „Þá fimm sex ára sagði ég
bara við mömmu að ég ætlaði að fá mér vinnu
Foreldrar hafi trú á færni sinni
Nú þrengir að drengjum í íslenska skólakerfinu, svo sem rakið var með tölulegum staðreyndum, tilvísunum í rannsóknir og
samtölum við sérfræðinga hér í blaðinu fyrir viku. Við tökum hér upp þráðinn og horfum nú öðru fremur til hlutverks foreldra
og heimilanna í þessu verðuga verkefni, það er að styðja drengina okkar til betri árangurs og samstarfs heimilis og skóla.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Ólafur Grétar Gunnarsson Arnar Ævarsson Una María Óskarsdóttir
’ Við getum lagað svo margt ef við leggjum okkur fram og stönd-um saman. Mín skoðun er sú að við eigum ekki að líta á vand-ann á þann hátt að hann sé óleysanlegur, heldur ganga í málið!Ekkert mál er svo slæmt að ekki sé hægt að finna aðgerðir sem virka.
ÚTTEKT
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.2. 2021