Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.02.2021, Page 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.02.2021, Page 17
samstarfið um evru næði að leiða það í endanlega efnahagslega glötun. Berlusconi forsætisráðherra reyndi að beina þessum kröfum yfir í millileið og að ítalska líran yrði tekin upp á ný við hlið evrunnar. Þeim í Brussel var mjög brugðið og sendu einn af kommissörum sínum, Mario Monti, til Rómar til að setjast í forsæti ríkisstjórnar „tæknimanna“. Ítalía sat undir hótunum sambandsins, sem hún réð ekki við. Berlusconi vék til hliðar og það var látið heita að forseti Ítalíu byði Monti og tæknimönnum hans að taka við stjórninni. Tæpu ári síðar var komið að kosningum á Ítalíu, Monti hafði gefið sver loforð um að hann myndi þá hverfa af vettvangi. En þegar nær dró snerist honum hugur og hann vildi halda í nýfengið vald og virðingu. Stofnaði hann flokk í kringum sig en sá fékk aðeins um 10% atkvæða og var þá draumur Monti úti. Stuðningur við ESB er tæpur á Ítalíu, og hefur minnkað enn eftir klúðrið með bóluefnið, sem segir svo mikla sögu. En það er ekki þar með sagt að Ítalir treysti sér í slag eins og þann sem Bretar tóku og munaði engu að hefðist. Tök kommissaranna í Brussel á Ítalíu eru mun öfl- ugri en var gegn Bretum, því þeim tókst að koma í veg fyrir að pundinu yrði fórnað fyrir evru. Blaðafulltrúar Það er með nokkrum ólíkindum hversu „blaða- fulltrúum“ eða „fjölmiðlafulltrúum“ hefur fjölgað í ráðuneytum og stofnunum hér á landi, svo ekki sé minnst á ósköpin í Ráðhúsinu. Bréfritari var í rúm 9 ár á borgarskrifstofunum og kom sér aldrei upp blaðafulltrúa og borgarstjóraskrifstofan var fámenn mjög miðað við ósköpin sem nú eru. Í beinu fram- haldi var sami í tæp 13 og hálft ár samfleytt í for- sætisráðuneytinu og sleppti því þann tíma að koma sér upp blaðafulltrúa. Það virtist ekki koma að sök. Rétt er að taka fram að aðrir forsætisráðherrar þar á undan höfðu stundum haft blaðafulltrúa sér til halds og trausts, en fjarri því allir. Blaðafull- trúaheitið er sniðugt því það snýr óneitanlega við myndinni um að meginhlutverk þessara sé í raun að draga upp eins geðþekka mynd af yfirboðurum sín- um og frekast er fært og viðfangsefnum þeirra. Þeir eru ekki fulltrúar blaða frekar en að umboðs- maður hefur nokkru sinni verið umboðsmaður Al- þingis. Frægir blaðafulltrúar Það kemur fyrir að þeir blaðafulltrúar sem eru mál- pípur helstu fyrirmanna veraldar verði sjálfir þekktir á heimsvísu, a.m.k. á meðan kastljósin hafa þá í punktinum, og sumir raunar upp frá því. Það gildir ekki síst um blaðafulltrúa forseta Bandaríkjanna. Á síðustu árum eru þeir ekki endi- lega lengi í sínum starfa enda getur gengið nokkuð á. Áður fyrr sáust þó gjörólík dæmi. Enginn mun þó ná að slá blaðafullrúa Franklins D. Roosevelt út. Sá gegndi starfi sínu fyrir sama forsetann í rúm 12 ár. Í skjóli stríðsins lét Roosevelt ekki duga að sitja út 8 árin. Hann var endurkjörinn eftir þau og aftur eftir 12 ár. Hann hefði því getað setið í 16 ár sam- fleytt, en varð bráðkvaddur 12. apríl 1945. Séu þeir sem fylgjast best með málum vestra beðnir að nefna tvo blaðafulltrúa forsetans (og þeir nýjustu undanskildir) þá koma tvö nöfn oftast upp. James Brady, blaðafulltrúi Ronalds Reagan, og Pierre Sal- inger, blaðafulltrúi Johns F. Kennedy. Skotárásir á húsbónda þeirra, forseta Bandaríkjanna, koma við þeirra sögu. Salinger var reyndar staddur í flugvél á leið til Japan ásamt Dean Rusk utanríkisráðherra þegar fréttir bárust um skotárás á Kennedy. Flug- vélinni var snúið við þegar í stað. Brady var hins vegar með Reagan forseta í Wash- ington á þeim stutta speli frá Hilton-hóteli þar inn í bílalestina, þegar skotárás var gerð af léttrugluðum manni, John Hinckley, sem taldi að morðtilræði við Reagan myndi hækka hann í áliti hjá leikkonunni Jodie Foster! Reagan fékk í sig skot og var nærri dauða þegar kom á sjúkrahúsið en læknum tókst að gera að og ná kúlunni burt. En Brady blaðafulltrúi slapp ekki nógu vel. Hann fékk kúlu í höfuðið og náði sér aldrei eftir heilaskaða og var bundinn við hjólstól. Þegar hann lést 33 árum síðar var sam- hengið talið augljóst og „myrtur“ var fært á dán- arvottorðið. Hann hafði aðeins gegnt embætti blaðafulltrúa í rúma 2 mánuði þegar þetta varð. En á meðan hann barðist fyrir lífi sínu og svo fyrir bættri heilsu var litið svo á að hann væri enn í fullu starfi sem blaðafulltrúi forsetans og það stóð út embættisskeið Reagans, í full átta ár. Löngu síðar gat hann verið viðstaddur, ásamt konu sinni, þegar þáverandi forseti, George W. Bush, tók á móti hon- um og öðrum fyrrverandi blaðafulltrúum í endur- gerðu fundarherbergi í Hvíta húsinu, sem bar síðan nafn Bradys. Sjálfur helgaði hann líf sitt baráttu gegn skotvopnum. Góð kynni af Salinger Pierre Salinger var mjög áhugaverður maður. Hann hafði samband við bréfritara 1988 áður en hann kom til Íslands. Var farið með hann og samferða- mann hans í Höfða og leiðtogafundurinn ræddur þar og áttum við svo notalegan kvöldverð á Hótel Holti. Hann gaf í lok hans áritaða bók sína „With Kennedy“ sem er áhugaverð og sendi bréfritara síð- ar boðsbréf um að sækja sig heim í London. Pierre Salinger hafði ætlað sér að helga tónlist- inni líf sitt. Þegar hann var barn að aldri (6 ára) hélt hann einleikstónleika með ótrúlega kröfuhörð verk á efnisskránni. Hann segir frá því að Kennedy forseti hafi ekki aðeins verið lítið fyrir tónlist, heldur verið beinlínis illa við hana. Taldi hana fara illa í sig og valda sér óþægindum. En blaðafulltrúinn fann bandamann í forsetafrúnni og lét forsetinn eftir þeim að stofna til tónleikahalds í Hvíta húsinu með fjölmörgum snill- ingum samtímans og mætti forsetinn þar og lét eins og hann nyti þess. Nefndi Salinger að það væri skondið að tónlistar- höllin góða í höfuðborginni bæri nafn forsetans. En að öðru leyti leyndi rík vinsemd og aðdáun á húsbóndanum sér aldrei í samtölum við hann. Fróðlegt er að lesa í þessari nú gömlu bók frá- sögn af löngum fundum Salingers með Nikita Krut- sjoff, einvaldi Sovétríkjanna. Og þegar horft er til dellukenninganna um að Rússar hefðu stuðlað að kosningu Trumps haustið 2016, er fróðlegt að lesa að aðalritarinn lýsti afskiptum sínum af málum sem voru ofarlega í samskiptum stórveldanna 1960 í að- draganda kosninganna og vonum Nixons sem keppti þá við Kennedy um tiltekin afskipti Krutsjoffs. Salinger segir þá við Krutsjoff á þessa leið: „Hefðir þú orðið við óskum í þá átt hefði Nixon unn- ið!“ „Það var þess vegna sem ég tryggði að það yrði ekki gert,“ svaraði kommúnistaleiðtoginn. Það er fátt nýtt undir sólinni. Morgunblaðið/Árni Sæberg 7.2. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.