Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.02.2021, Page 17
samstarfið um evru næði að leiða það í endanlega
efnahagslega glötun. Berlusconi forsætisráðherra
reyndi að beina þessum kröfum yfir í millileið og að
ítalska líran yrði tekin upp á ný við hlið evrunnar.
Þeim í Brussel var mjög brugðið og sendu einn af
kommissörum sínum, Mario Monti, til Rómar til að
setjast í forsæti ríkisstjórnar „tæknimanna“. Ítalía
sat undir hótunum sambandsins, sem hún réð ekki
við. Berlusconi vék til hliðar og það var látið heita
að forseti Ítalíu byði Monti og tæknimönnum hans
að taka við stjórninni. Tæpu ári síðar var komið að
kosningum á Ítalíu, Monti hafði gefið sver loforð um
að hann myndi þá hverfa af vettvangi. En þegar
nær dró snerist honum hugur og hann vildi halda í
nýfengið vald og virðingu. Stofnaði hann flokk í
kringum sig en sá fékk aðeins um 10% atkvæða og
var þá draumur Monti úti. Stuðningur við ESB er
tæpur á Ítalíu, og hefur minnkað enn eftir klúðrið
með bóluefnið, sem segir svo mikla sögu. En það er
ekki þar með sagt að Ítalir treysti sér í slag eins og
þann sem Bretar tóku og munaði engu að hefðist.
Tök kommissaranna í Brussel á Ítalíu eru mun öfl-
ugri en var gegn Bretum, því þeim tókst að koma í
veg fyrir að pundinu yrði fórnað fyrir evru.
Blaðafulltrúar
Það er með nokkrum ólíkindum hversu „blaða-
fulltrúum“ eða „fjölmiðlafulltrúum“ hefur fjölgað í
ráðuneytum og stofnunum hér á landi, svo ekki sé
minnst á ósköpin í Ráðhúsinu. Bréfritari var í rúm 9
ár á borgarskrifstofunum og kom sér aldrei upp
blaðafulltrúa og borgarstjóraskrifstofan var fámenn
mjög miðað við ósköpin sem nú eru. Í beinu fram-
haldi var sami í tæp 13 og hálft ár samfleytt í for-
sætisráðuneytinu og sleppti því þann tíma að koma
sér upp blaðafulltrúa. Það virtist ekki koma að sök.
Rétt er að taka fram að aðrir forsætisráðherrar þar
á undan höfðu stundum haft blaðafulltrúa sér til
halds og trausts, en fjarri því allir. Blaðafull-
trúaheitið er sniðugt því það snýr óneitanlega við
myndinni um að meginhlutverk þessara sé í raun að
draga upp eins geðþekka mynd af yfirboðurum sín-
um og frekast er fært og viðfangsefnum þeirra.
Þeir eru ekki fulltrúar blaða frekar en að umboðs-
maður hefur nokkru sinni verið umboðsmaður Al-
þingis.
Frægir blaðafulltrúar
Það kemur fyrir að þeir blaðafulltrúar sem eru mál-
pípur helstu fyrirmanna veraldar verði sjálfir
þekktir á heimsvísu, a.m.k. á meðan kastljósin hafa
þá í punktinum, og sumir raunar upp frá því.
Það gildir ekki síst um blaðafulltrúa forseta
Bandaríkjanna. Á síðustu árum eru þeir ekki endi-
lega lengi í sínum starfa enda getur gengið nokkuð
á. Áður fyrr sáust þó gjörólík dæmi. Enginn mun
þó ná að slá blaðafullrúa Franklins D. Roosevelt út.
Sá gegndi starfi sínu fyrir sama forsetann í rúm 12
ár. Í skjóli stríðsins lét Roosevelt ekki duga að sitja
út 8 árin. Hann var endurkjörinn eftir þau og aftur
eftir 12 ár. Hann hefði því getað setið í 16 ár sam-
fleytt, en varð bráðkvaddur 12. apríl 1945. Séu þeir
sem fylgjast best með málum vestra beðnir að
nefna tvo blaðafulltrúa forsetans (og þeir nýjustu
undanskildir) þá koma tvö nöfn oftast upp. James
Brady, blaðafulltrúi Ronalds Reagan, og Pierre Sal-
inger, blaðafulltrúi Johns F. Kennedy. Skotárásir á
húsbónda þeirra, forseta Bandaríkjanna, koma við
þeirra sögu. Salinger var reyndar staddur í flugvél
á leið til Japan ásamt Dean Rusk utanríkisráðherra
þegar fréttir bárust um skotárás á Kennedy. Flug-
vélinni var snúið við þegar í stað.
Brady var hins vegar með Reagan forseta í Wash-
ington á þeim stutta speli frá Hilton-hóteli þar inn í
bílalestina, þegar skotárás var gerð af léttrugluðum
manni, John Hinckley, sem taldi að morðtilræði við
Reagan myndi hækka hann í áliti hjá leikkonunni
Jodie Foster! Reagan fékk í sig skot og var nærri
dauða þegar kom á sjúkrahúsið en læknum tókst að
gera að og ná kúlunni burt. En Brady blaðafulltrúi
slapp ekki nógu vel. Hann fékk kúlu í höfuðið og
náði sér aldrei eftir heilaskaða og var bundinn við
hjólstól. Þegar hann lést 33 árum síðar var sam-
hengið talið augljóst og „myrtur“ var fært á dán-
arvottorðið. Hann hafði aðeins gegnt embætti
blaðafulltrúa í rúma 2 mánuði þegar þetta varð. En
á meðan hann barðist fyrir lífi sínu og svo fyrir
bættri heilsu var litið svo á að hann væri enn í fullu
starfi sem blaðafulltrúi forsetans og það stóð út
embættisskeið Reagans, í full átta ár. Löngu síðar
gat hann verið viðstaddur, ásamt konu sinni, þegar
þáverandi forseti, George W. Bush, tók á móti hon-
um og öðrum fyrrverandi blaðafulltrúum í endur-
gerðu fundarherbergi í Hvíta húsinu, sem bar síðan
nafn Bradys. Sjálfur helgaði hann líf sitt baráttu
gegn skotvopnum.
Góð kynni af Salinger
Pierre Salinger var mjög áhugaverður maður. Hann
hafði samband við bréfritara 1988 áður en hann
kom til Íslands. Var farið með hann og samferða-
mann hans í Höfða og leiðtogafundurinn ræddur
þar og áttum við svo notalegan kvöldverð á Hótel
Holti. Hann gaf í lok hans áritaða bók sína „With
Kennedy“ sem er áhugaverð og sendi bréfritara síð-
ar boðsbréf um að sækja sig heim í London.
Pierre Salinger hafði ætlað sér að helga tónlist-
inni líf sitt. Þegar hann var barn að aldri (6 ára) hélt
hann einleikstónleika með ótrúlega kröfuhörð verk
á efnisskránni.
Hann segir frá því að Kennedy forseti hafi ekki
aðeins verið lítið fyrir tónlist, heldur verið beinlínis
illa við hana. Taldi hana fara illa í sig og valda sér
óþægindum. En blaðafulltrúinn fann bandamann í
forsetafrúnni og lét forsetinn eftir þeim að stofna til
tónleikahalds í Hvíta húsinu með fjölmörgum snill-
ingum samtímans og mætti forsetinn þar og lét eins
og hann nyti þess.
Nefndi Salinger að það væri skondið að tónlistar-
höllin góða í höfuðborginni bæri nafn forsetans.
En að öðru leyti leyndi rík vinsemd og aðdáun á
húsbóndanum sér aldrei í samtölum við hann.
Fróðlegt er að lesa í þessari nú gömlu bók frá-
sögn af löngum fundum Salingers með Nikita Krut-
sjoff, einvaldi Sovétríkjanna. Og þegar horft er til
dellukenninganna um að Rússar hefðu stuðlað að
kosningu Trumps haustið 2016, er fróðlegt að lesa
að aðalritarinn lýsti afskiptum sínum af málum sem
voru ofarlega í samskiptum stórveldanna 1960 í að-
draganda kosninganna og vonum Nixons sem
keppti þá við Kennedy um tiltekin afskipti
Krutsjoffs.
Salinger segir þá við Krutsjoff á þessa leið:
„Hefðir þú orðið við óskum í þá átt hefði Nixon unn-
ið!“ „Það var þess vegna sem ég tryggði að það yrði
ekki gert,“ svaraði kommúnistaleiðtoginn.
Það er fátt nýtt undir sólinni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
7.2. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17