Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.02.2021, Qupperneq 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.02.2021, Qupperneq 20
Hekl í heimsfaraldri Það er allt svakalega fínt aðfrétta úr heklinu!“ segir TinnaÞórudóttir Þorvaldar heklari með meiru þegar blaðamaður leit inn til hennar í vikunni. Í stofunni má sannarlega greina að þar búi heklari. Dokkur af garni eru þar í hillum, fal- leg teppi, treflar og sjöl liggja í bunk- um og í horninu er góður hæg- indastóll og lítill lampi þar sem tilvalið er að sitja og hekla. Tinna, sem vinnur eingöngu sem hekllistakona, segir að aldrei hafi gengið betur en nú. „Það má finna bjartar hliðar á öllu. Nú í þessum heimsfaraldri er fullt af fólki lokað inni heima hjá sér og hvað gerir það þá? Nú, það heklar og horf- ir á YouTube!“ segir Tinna og hlær dátt. Uppskriftir slá í gegn „Fullt af fólki hefur fundið sér ný áhugamál núna og heklið og öll handavinna er svo græðandi og góð fyrir sálina. Það er svo gott að vinna með höndunum og skapa eitthvað nytsamlegt. Um leið og fólk hefur eitthvað fyrir stafni eins og að hekla, þá gleymir það áhyggjum. Það eru mjög margir sem hafa tekið upp hekl í heimsfaraldrinum,“ segir hún. Tinna þurfti að breyta öllum sínum plönum í fyrra, eins og fleiri. „Ég var að fara á túr til Bretlands, Írlands og Danmerkur með nám- skeið og á listahátíðir. Það varð auð- vitað ekkert úr því. Ég var einmitt í Skotlandi þegar Covid byrjaði og kom heim mjög stressuð. Þá fór ég að hugsa, hvað get ég gert? Ég var þá þegar með YouTube-rás og var með tuttugu þúsund áskrifendur og það hafði gengið ágætlega. Ég ákvað að gefa í og bjó til fleiri myndbönd og setti þar inn. Það bar þvílíkan árang- ur og nú fyrir árslok 2020 náði ég markmiðinu mínu og er komin með hundrað þúsund YouTube- áskrifendur sem ég er mjög ánægð með. Þetta vatt fljótt upp á sig,“ segir Tinna og segist vera með smávegis tekjur þaðan. En í kjölfarið rauk upp salan á uppskriftum svo um munaði. „Ég var ekki búin að gera mér grein fyrir afleiðingum af þessu áhorfi, en salan jókst gífurlega,“ seg- ir Tinna en hún selur hekluppskriftir á síðunni ravelry.com. „Ég er að vinna mikið með mósaík hekltækni og sló þetta í gegn í fyrra. Þetta bara rokgengur.“ Tíu þúsund í samhekli „Annað sem ég gerði var að stofna hóp á Facebook sem heitir Tinna’s Crochet Club og telur hann nú 37.000 meðlimi og ég er einnig á Instagram undir @tinnahekl. Einu sinni á ári er ég með samhekl, sem virkar þannig að ég gef út uppskrift í pörtum og fólk heklar þá á sama tíma. Það gekk svakalega vel og var mjög gaman en það voru yfir tíu þúsund manns sem tóku þátt í samheklinu. Af öllum sam- heklunum í heiminum í fyrra held ég að mitt hafi verið vinsælast; eða alla vega í topp þremur sætunum. Ég er byrjuð að undirbúa núna mitt þriðja alþjóðlega samhekl.“ Íslenska ullin með í pakka Ertu þá orðin fræg í heklheiminum? „Já, það er bara orðið þannig. Ég var eiginlega búin að gera allt sem ég gat gert hér heima. Það er tvennt ólíkt að vera með þrjú hundruð þús- und manna markað og svo allan heiminn. Ég er búin að gefa út fjórar bækur og halda endalaus námskeið hér heima en svo 2018 tók ég mig til og fór að selja á netinu og þá allt á ensku. Flestir sem kaupa uppskriftir eru frá Bandaríkjunum, Ástralíu, Bretlandi, Hollandi og Suður- Afríku,“ segir Tinna og segist sífellt vera að hanna nýjar uppskriftir og gefa út. „Ég held ótrauð áfram og hamra járnið á meðan það er heitt. Svo er ég líka búin að vera að kynna íslenska ull í hópnum mínum og hefur því ver- ið vel tekið. Næsta skref er að fara að selja pakka sem inniheldur uppskrift ásamt dokkum af íslenskri ull. Mér finnst gaman að geta borið út fagn- aðarerindi íslensku ullarinnar.“ Tvö í samsteypunni Tinna bjóst ekki við þessum miklu vinsældum en hefur nú stofnað fyrir- tækið TM-Enterprise í kringum heklið, YouTube-rásina og upp- skriftasöluna á netinu. Hún segir nafninu hafa verið slegið upp í gríni í byrjun en síðar fest, en TM eru upp- hafsstafir þeirra hjóna, Tinnu og Maikel. „Þetta hljómar eins og alþjóðleg samsteypa en er bara við tvö,“ segir hún og skellihlær. „Maðurinn minn er mjög klár að taka upp myndbönd og vinnur með mér í þessu. Við fórum einmitt síð- asta vor þegar engir voru ferðamenn- irnir og tókum upp flott myndefni við Jökulsárlón, Reynisfjöru og Skóga- foss. Maður verður að tjalda öllu sem er til. Útlendingar eru sjúkir í þetta.“ Vinsældir Tinnu Þóru- dóttur Þorvaldar hekl- ara hafa aldrei verið meiri og má segja að hún hafi lagt heiminn að fótum sér. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Morgunblaðið/Ásdís Tinna Þórudóttir Þorvaldar situr oft í þessu horni og heklar, en hún er nú að slá í gegn á heimsvísu. Þetta fallega marglita teppi hannaði Tinna fyrir samheklið 2020. ’Fullt af fólki hefurfundið sér ný áhuga-mál núna og heklið og öllhandavinna er svo græð- andi og góð fyrir sálina. Það er svo gott að vinna með höndunum og skapa eitthvað nytsamlegt. Ljósmynd/Maikel Medina 20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.2. 2021 HANNYRÐIR

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.