Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.02.2021, Side 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.02.2021, Side 29
Brando, Elizabeth Taylor, Rock Hudson eða Övu Gardner. Hvað þá Montgomery Clift, sem allir hefðu samt gott af að þekkja. Þegar ég var að vaxa úr grasi á ní- unda áratugnum í fásinninu á Akur- eyri var James Dean stjarna. Hann hafði þá að vísu legið í um þrjá ára- tugi í gröf sinni en frægð hans var samt á hvers manns vitorði, greinar voru skrifaðar um hann í íslenskum blöðum og veggmyndir að finna í Bravo, Pop Rocky og öðrum slíkum erlendum blöðum sem kaupa mátti í Bókabúð Jónasar. Ég man ekki bet- ur en að kappinn hafi um skeið verið uppi á vegg hjá mér í rauða leður- jakkanum sínum. Allir vissu að James Dean hafði týnt lífi með voveiflegum hætti í bíl- slysi aðeins 24 ára gamall. Vissu menn það ekki nennti maður ekki að tala við þá. Mikið meira lá svo sem ekki fyrir; þetta var löngu fyrir daga stafrænna myndbandsleigna og streymisveitna og aðgengi að þess- um örfáum myndum sem maðurinn lék í áður en hann andaðist afar tak- markað. Í einni af fyrstu Lundúnaferðum mínum, seint á níunda áratugnum, sá ég mér því leik á borði og festi kaup á East of Eden, Rebel Without a Cause og Giant í annaðhvort HMV eða Virgin Megastore á Oxford- stræti. Kom með þær heim ásamt haug vínylplatna enda ekki rukkað fyrir yfirvigt á þeim árum, að maður muni. Skyndilega skapaðist stór- kostleg hætta á því að þota hrapaði væri einu sokkapari ofaukið í tösk- unni hjá manni. Hvað eruð þið ann- ars að láta mig rifja þetta upp núna? Djöfull er mann farið að langa upp í flugvél! Myndi meira að segja sætta mig við lágfargjaldaflug, þar sem maður þyrfti að vera með hnén graf- in djúpt í bakinu á manninum í sæta- röðinni fyrir framan. Hér erum við auðvitað komin býsna langt frá okkar manni James Dean sem ugglaust hefur ekki farið í mörg flug um dagana, blessaður karlinn. Frægðin náði ekki almenni- lega í skottið á honum fyrr en hann var allur. En ég var að tala um bíómynd- irnar hans. Þær voru á VHS-spólum og fóru þráðbeint í tækið þegar heim var komið. Til allrar hamingju var pásuvídeóið hans Þórarins Sveins frænda þá úr sögunni en það hafði þann leiða ósið að skyrpa spólunum út úr sér annað veifið – óumbeðið. Þær magalentu bara á stofugólfinu undir blótsyrðum viðstaddra. Óvin- sæll gjörningur á síðkvöldi. Vinahópnum var smalað saman og menn látnir horfa á myndirnar, eina af annarri, með þeim rökum að eng- inn væri gjaldgengur í umræðum um poppkúltúr hefði hann ekki séð katalóginn hans James Dean. Hin eilífa ímynd „Og?“ spyrjið þið nú, með öndina í hálsinum. Sko. Ég ætla alls ekki að gerast neinn Höskuldur, hafið þið ekki séð þessar myndir, en þær eru ekkert hrikalega spes. Þannig lagað. Í öllu falli hafa þær ekkert verið að knýja dyra hjá mér á seinni árum. Eins gott svo sem, ég á ekkert nothæft myndbandstæki lengur. East of Eden er best en hún bygg- ist sem kunnugt er lauslega á skáld- sögu Johns Steinbecks. Flestum heimildum ber líka saman um að þarna hafi Dean verið upp á sitt besta en hann var tilnefndur til Ósk- arsverðlauna fyrir leik sinn. Rebel Without a Cause er samt frægari enda kallast hún á við hina eilífu ímynd Deans sjálfs sem ör- vinglaðs ungmennis sem lendir upp á kant við umhverfi sitt. „You are tearing me apart“-senan situr alltaf í mér en ég hef aldrei áttað mig al- mennilega á því hvort þar eru á ferð tilfinningaleg veisluhöld eða bara of- leikur. Maður þyrfti líklega að sjá þetta aftur í dag, þrjátíu árum síðar. Giant er í minningunni fyrst og fremst langdregin, allar 197 mín- úturnar. Hún fékk þó yfirleitt góða dóma. Þaðan er kúrekalíkingin lík- lega komin enda Dean með slíkan hatt á höfðinu og Giant skilgreind sem vestri enda þótt hvorki sé Clint Eastwood- né John Wayne-lykt af henni. Aftur var Dean tilnefndur til Óskarsverðlauna en hlaut þau ekki. Bæði Rebel og Giant voru frum- sýndar eftir að James Dean féll frá, þannig að sú umræða sem fram fer hér og víðar er honum auðvitað framandi. En goðsögnin lifir. Það er ljóst. Þökk sé Bríeti. Og fleirum. Rólegur kúreki. James Dean í hlutverki Jetts Rinks í Giant. Warner Bros. 7.2. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 NEI Tony Iommi hefur eytt orð- rómi þess efnis að Rob Halford, söngvari Judas Priest, komi til með að syngja á væntanlegri plötu bandsins hans, Heaven & Hell, og leysa þar með Ronnie James Dio af hólmi. Vinny Appice, trymbill H&H, hafði áður gefið þessum möguleika undir fótinn. „Það mun ekki gerast núna,“ sagði Iommi í samtali við Loudwire. Fram kom að hann sé þó að semja nýtt efni en ekki liggur fyrir hvort það verði gefið út undir merkjum H&H. Halford ekki með Iommi Tony Iommi er iðinn við kolann. AFP BÓKSALA Í JANÚAR Tekið saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda 1 Lífsbiblían – 50 lífslyklar, sögur og leyndarmál Alda Karen Hjaltalín/Silja Björk 2 Betri útgáfan Ingi Torfi Sverrisson, Linda Rakel Jónsdóttir 3 Borðum betur – fimm skref til langvarandi lífs- stílsbreytinga Rafn Franklín Johnson Hrafnsson 4 Yfir höfin Isabel Allende 5 Málsvörn Jóns Ásgeirs Jóhannessonar Einar Kárason 6 Snerting Ólafur Jóhann Ólafsson 7 Syngdu með Láru og Ljónsa Birgitta Haukdal 8 Dróninn Unni Lindell 9 Stjórnsýslukerfið Trausti Fannar Valsson 10 Málsmeðferð stjórnvalda Páll Hreinsson 11 Þess vegna sofum við Matthew Walker 12 Ketó – hugmyndir- uppskriftir-skipulag Hanna Þóra Helgadóttir 13 Úr myrkrinu Ragnheiður Gestsdóttir 14 Vetrarmein Ragnar Jónasson 15 Ungfrú Ísland Auður Ava Ólafsdóttir 16 Ketóflex 3-3-1 mataræðið Björg Þórhallsdóttir 17 Tíminn minn 2021 Þorbjörg Hafsteinsdóttir 18 Keto – hormónalausnin Gunnar Már Sigfússon 19 Brúðarkjóllinn Pierre Lemaitre 20 Ofurhetjan Hjalti Halldórsson Allar bækur Ég reyni alltaf að lesa meðfram námi, með misjöfnum árangri, en í fyrra lögðum við kærastan okkur sérstaklega fram við að lesa meira. Í hvatning- arskyni skráðum við bækurnar sem við lásum hvort á sinn listann sem héngu í svefn- herberginu okkar. Keppninni lauk með jafntefli en okkur tókst báðum að lesa tölu- vert meira í fyrra en árið á undan. Bækurnar sem standa helst upp úr hjá mér eru Líf meðal villimanna eftir Shirley Jackson, Nafn rósar- innar eftir Umberto Eco og Ka- ramazov-bræðurnir eftir Fjodor Dostojevskí. Líf meðal villimanna segir frá húsmóður í Vermont-fylki í Bandaríkjunum á sjöunda áratug síðustu aldar og hversdagsamstri hennar, t.d. vandræðagangi eigin- mannsins, uppátækjum barnanna þeirra, húsnæðisvandamálum og mörgu fleira. Höfundur lýsir fá- ránlegum uppákomum í heimilis- lífinu sem hvílir allt á herðum hús- móðurinnar og skrifar um leið hárbeitta ádeilu um þessa hefð- bundnu fjöl- skyldueiningu. Bókin er mein- fyndin. Seinni tvær bæk- urnar voru liður í því að „hámenningarvæða“ les- listann minn eftir að hafa sætt gagnrýni fyrir að lesa tvær Tinna- bækur í röð. Það kom skemmti- lega á óvart hvað báðar bækurnar hafa mikið afþreyingargildi. Nafn rósarinnar er fyrsta glæpasagan sem ég les í mörg ár. Bókin er bræðingur af Sherlock Holmes og miðöldunum með smá keim af Er- lendi rannsóknarlögreglumanni. Munkur finnst myrtur í ítölsku klaustri á miðöldum og aðkomu- munkur og hjálparsveinn hans ráðast í það að leysa glæpinn. Ka- ramazov-bræðurnir er aftur á móti réttarhaldadrama af bestu gerð með tilheyrandi siðferðis- spurningum. Þrír hálfbræður sem er öllum í nöp við föður sinn kom- ast í kast við lögin þegar faðirinn er óvænt myrtur og öll spjót beinast að einum bræðr- anna sem þverneit- ar að hafa framið glæpinn. Annars langar mig að nefna smá- sagnasafnið Vetr- argulrætur eftir Rögnu Sigurð- ardóttur sem stóð, að mínu mati, upp úr í íslenskri bókaútgáfu árið 2019. Í fimm sögum segir frá fimm ólíkum, listhneigðum ein- staklingum í krísu. Þ. á m. er lista- kona á sjötta áratugnum sem átt- ar sig á því að eiginmaður hennar lítur ekki á hana sem jafningja sinn í listsköpun, íslensk hefðarfrú sem hýsir gamlan skólafélaga sinn sem er landflótta á tímum nasista og leikskólakennari á 21. öld sem reynir að hafa uppi á barni sem týndist á hennar vakt. Að lokum vil ég vekja athygli á væntanlegri ljóðabók Þórðar Sæv- ars Jónssonar – Brunagaddi – sem las ég nýverið yfir. Bókin er veru- lega fyndin og sniðug og ég held að margir muni hafa gaman af henni. ODDUR SNORRASON ER AÐ LESA Jafntefli við kærustuna Oddur Snorra- son er MA- nemi íslenskri málfræði. Ertu með fæðuóþol? Mikilvægt er að melta fæðuna vel svo við getum tekið upp og nýtt næringu fæðunnar betur og fengið þannig meiri orku ásamt því að losna við bæði meltingarónot og ýmiskonar fæðuóþol. ● Hentar vel gegn ýmiskonar fæðuóþoli ● Styður við meltingu á glúteini, laktósa ogmjólkurpróteinum. ● Hentar allri fjölskyldunni Fæst í apótekum, heilsuhúsum og flestum stórmörkuðum „Ótrúlegt en satt þá fann ég mun frá fyrsta degi. Á skömmum tímaminnkuðu öll einkenni fæðuóþolsins til muna og mörg jafnvel hurfu. Svo hafa aukakílóin einnig farin að losa takið og greinilegt að Digest Spectrum verður hluti af lífi mínu áfram“. Guðbjörg Inga Guðmundsdóttir, kennari. Reynslusaga: Spectrum Meltingarónot, orkuleysi og þreyta orsakast oft af vöntun eða truflun á ensímframleiðslu líkamans. Digest

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.