Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2013, Blaðsíða 1

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2013, Blaðsíða 1
FRETTABREF ÆTTFRÆÐIFÉLAGSINS ISSN 1023-2672 4. tbl. 31. árg. - nóvember 2013 Meðal efnis íþessu blaði: Heimili Bjargar Guðjinns- dóttur og Ragnars Jónssonar í Reykjavík í kreppunni Ingibjörg Þ. Þorleifsdóttir: Ingibjörg Skaptadóttir Ijósmóðir „Guðhrœddar, frómar jómfrúr“ Þórhildur Richter: Sigríður Sigríðardóttir Hansdóttir Guðmundur Sigurður Jóhannsson: Um Málfríði Brandsdóttur og börn hennar Gísli Gunnarsson prófessor í sagnfrœði við Háskóla íslands: Sundurlausir þankar um œtt- frœði og fjölskyldusögu ofl. Hér situr unga parið Björg Guðfinnsdóttir og Ragnar Jónsson, bæði fædd 1912, með Erlu dóttur sína nýfædda í garðinum á Ásvallagötu 75, sumarið 1935. Þar í kjallaranum leigðu þau sitt fyrsta húsnæði. „Það var ein stofa með lágum glugga, raki í öllum hornum.“ skrifar Björg. „Eldunarpláss var fyrir framan dyrnar, í mjóum gangi sem lá inn í þvottahús.“„íbúðin var ekki leiguhæf.“ „Það kom vatn upp úr gólfinu svo flæddi allur kjallarinn.“ Þannig lýsir Björg fyrsta heimili þeirra Ragnars, sem var upphafið að margra ára erfiðri lífsbaráttu með atvinnuleysi, húsnæðisskorti, fátækt og basli. Lífskjör sem einkenndu tilveru svo fjölmargra fátækra fjölskyldna á kreppuárunum í Reykjavík. www.ætt.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.