Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2013, Page 5

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2013, Page 5
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í nóvember 2013 Lokastígur 16. Kjallari. Tvö herbergi. „Gólfið var svo lélegt að við urðum að setja spýtur yfir götin. Ekkert eldhús, en við máttum elda á bekk í vaskahúsinu ef ekki var verið að þvo og þurrka.“ spýtur yfir götin. Osk vann úti, við eitt og annað, og kom ekki heim fyrr en seint á kvöldin. Hún fór oft um fjögurleytið á morgnana í þvotta en ég var nú heima. Þarna var ekki neitt eldhús en ég mátti elda á bekk í vaskahúsinu ef ekki var verið að þvo og þurrka. Það var alveg bannað að elda inni í herbergjunum. Erla mátti helst ekki vera á lóðinni. Það var allt bannað. Það var leiðinleg og illgjörn kerling sem átti húsið. Við vorum þarna bara um sumarið. 5. Hverfisgata 59 (haustið 1937- sumarið 1939) Kjallari. Tvö herbergi og eldhús. Ósk var í öðru her- berginu. Þessi kjallari var allur niðurgrafinn. Glugginn var um 40 cm hár, alveg við götuna. Þess vegna var hann alltaf óhreinn. Eldhúsið var gluggalaust, aðeins örlítil skíma gegnum smágler í útitröppunum. Ofn var í okkar stofu sem þurfti að hita upp bæði herbergin. í húsinu uppi var miðstöðvarhitun. Þetta var stórt hús með verslun og mjólkurbúð. Við unnum af okkur húsaleiguna með því að hreinsa stigana og sjá um miðstöðina. Ragnar sá að mestu leyti um að kynda miðstöðina. Þar var falinn eldur á kvöldin og svo þurfti að hreinsa út á morgn- ana, bera út alla ösku og það átti að vera orðið heitt um kl 8. Þetta var risastór miðstöð fyrir fjórar hæð- ir. Ragnar mátti þurrka blauta kolapoka í miðstöðinni þegar ekki var verið að þvo. Hann fékk 5 aura á pok- ann. Þannig fengum við smá aukatekjur. En þetta var voðalega sóðaleg vinna. Ég hreinsaði stigana í húsinu bæði götu- og garð- megin. Ekkjan sem átti húsið, hún var vel efnuð, átti það til að koma fram með hvíta dulu og bregða henni á koparskinnurnar framan á tröppunum sem ég átti að fægja, til þess að vita hvort þetta væri nógu vel gert hjá mér. Ég varð að byrja á að hreinsa stigana kl 5 á morgnana því ég átti að vera búin kl 9 þegar búðin opnaði. Þennan vetur þvoði ég líka alla þvotta fyrir Skýringar Björg var ættuð vestan af Fellsströnd. Hún var ein tíu systkina og ólst upp hjá frændfólki sínu á rík- isheimilinu á Staðarfell fyrstu sex ár ævinnar, síð- an á efnaheimili í Túngarði til tólf ára aldurs og þar á eftir í fátækt hjá foreldrum sínum fram til sextán ára aldurs þegar hún fór suður og fór að vinna fyrir sér. Ragnar var Reykvíkingur og ólst upp í mik- illi fátækt hjá einstæðri móður. Hann var í 40 ár baðvörður í Austurbæjarskólanum. Hann lék árum saman fótbolta með meistaraflokki Fram. Þau Björg og Ragnar kynntust árið 1934. Elsta dóttir Bjargar og Ragnars var Erla Hólmfríður. Hún vann lengst af á Bæjarskrifstofunum í Reykjavík. Óli bróðir Bjargar hét Ólafur og var húsgagnasmiður og rak Húsgagnavinnustofuna Nýmörk í Bankastræti. Kona hans var Laufey Jónsdóttir. Bjössi bróðir Bjargar, er Björn Guð- finnsson prófessor. Halldóra, kona Björns, var Andrésdóttir. Hún var hjúkrunarkona. Fríða dóttir þeirra er blaðamaður og var lengi fram- kvæmdastjóri Blaðamannafélags íslands. Fríða systir Bjargar hét fullu nafni Hólmfríður. Ósk var elsta systir Bjargar. Hún vann við ýmiss störf, m.a. þvotta, í fiski og við heimilishjálp. Gestur bróðir Bjargar var afgreiðslumaður og síðar blaðamað- ur á Alþýðublaðinu. Hann var lengi fararstjóri hjá Ferðafélaginu og gaf út margar ljóðabækur. Geiri, bróðir Bjargar, hét Matthías Hildigeir og vann lengst af í Ölgerð Egils Skallagrímssonar. Palla var yngsta systir Bjargar. Hún hét Pálína og vann við saumaskap. Jóa Ólafs hét Jóhanna Ólafsdóttir. Hún var sveitungi Bjargar, frá Stóru-Tungu á Fellsstönd. Bjarni, sonur Guðrúnar Pétursdóttur, var Bjarni Benediktsson síðar borgarstjóri og forsætisráðherra. Sigurjón bóndi í Forsæti var Kristjánsson. Högni hjá Mjólkurfélaginu var Halldórsson. (ritstjóri) http://www.ætt.is 5 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.