Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2013, Page 6

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2013, Page 6
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í nóvember 2013 Hverfisgata 59. Niðurgrafinn kjallari. Tvö herbergi og eldhús. Ragnar og Björg unnu af sér húsaleiguna með því að hreinsa stigana og sjá um miðstöðina. „Ragnar mátti þurrka blauta kolapoka í miðstöðinni þegar ekki var verið að þvo. Hann fékk 5 aura á pokann.“ Guðrúnu Arinbjarnar. Hún bjó vestur í bæ. Það voru stórþvottar og ég varð að hafa Erlu hjá mér. Eg lét hana sitja uppi á borðinu. Fyrir þvottana fékk ég 5 kr. Einnig hreinsaði ég til hjá henni einu sinni í viku, fyrir það fékk ég eina krónu og fimmtíu aura. Hún var sparsöm kona þegar verkafólk átti í hlut. Þennan vetur fékk Erla lungnabólgu og oft kvef. Læknirinn sagði að húsnæðið væri heilsuspillandi og að við yrð- um að fá okkur annað betra. Ragnar hafði aldrei fasta vinnu meðan við vorum á Hverfisgötunni.. Það sem bjargaði okkur fyrri vet- urinn var að Björn bróðir minn var í mat hjá okkur og hann lét okkur taka út allan mat í sinn reikning. Annars hefðum við soltið heilu hungri. Sumarið 1939 fór Ragnar í keppnisferð til Danmerkur með meistaraflokki Fram. Til þess að spara húsaleiguna fór ég í kaupavinnu að Vatnsenda til Hjaltestedsfólksins, en þar var vont að vera. Erla, sem þá var fjögurra ára, var með mér og fékk hún varla að borða. Vinnuharkan var líka mikil. Eg fór þaðan í fússi. En nú áttum við ekkert heimili og ég átti í eng- an stað að venda. Eg fór þá til Jóu á Freyjugötunni en hún reyndist okkur systkinunum alltaf vel. Jóa gaf okkur að borða. Eg man enn hvað ég var svöng. Svo tók ég út 2 krónur sem ég átti á bók og þær dugðu rétt fyrir áætlunarbílnum austur í Hveragerði. En þangað vildi ég komast til Bjössa bróður og Halldóru en þau voru þar með hús eða bústað á leigu. Þau voru þá með Fríðu nýfædda. Ég man hvað það var gott að koma til þeirra og hvað þau voru okkur góð. Þar var ég í vikutíma eða svo með Erlu. Bjössi fór með okkur í sundlaugina á hverjum degi. Svo fór ég vestur um sumarið og var þar með Erlu. Þegar Ragnar kom heim úr siglingunni fór hann á síld norður á Siglufjörð. Þegar Erla var 4 mánaða fór ég fyrst með hana vestur í Litla-Galtardal til pabba og mömmu. Síðan fór hún vestur að Ormsstöðum til þeirra þegar hún var 3, 5, 6 og 7 ára, ýmist með mér eða Osk. Þegar Erla var 7 ára fór ég með hana vest- ur að jarðarför föður míns. Erla var eina barnabarnið hans sem hann sá. 6, Skólavörðustígur 11 (haustið 1939- vorið 1947) Lítið steinhús. Steinbær Þorbjargar Sveinsdóttur ljós- móður. Tvö lítil herbergi uppi og stofa og eldhús niðri, útikamar. Ég vann af mér leiguna öll tæpu átta árin á Skólavörðustígnum með því að sjá um þrif og kynd- ingu hjá þeim hjónum Guðrúnu Pétursdóttur frá Engey og Benedikt Sveinssyni. þau bjuggu á Skólavörðustíg 11 A. Á Skólavörðustígnum var gott að vera. Haustið 1939 fer allt að ganga betur. Ragnar fær vinnu við að steypa hitaveitulögn að Reykjum. 1941 fær hann svo vinnu við sorphirðu á veg- um Reykjavíkurborgar. Hann keyrði öskubílinn til 1946 en þá fær hann fasta vinnu sem baðvörður við Austurbæjarbarnaskólann. Þá spurðu allir hvort við ætluðum ekki að kaupa okkur húsgögn en við sögð- umst ætla að byrja á því að koma okkur upp húsnæði. Þið eignist aldrei eigið húsnæði, sagði Gestur bróð- ir minn. En ég vissi að það var til betra líf en sú fátækt sem við höfðum lifað við. Ég mundi alltaf björtu bernskuárin mín á Staðarfelli með rauðu plusssóf- unum og hvítu hekluðu dúllunum, postulínsservönt- unum með glæsimyndunum frá útlöndum og allar tunnurnar og kirnurnar í búrinu, sneisafullar af mat. Það var sko sannarlega til betra líf. 1944 er stofnað byggingafélagið Hofgarður og það stóð fyrir byggingu íbúða í Laugameshverfinu, nánar til tekið við Hofteig. Við áttum að leggja fram 5000 kr. í stofngjald og vorum búin að safna okkur fyrir þeirri upphæð. Svo kom í ljós að þessar lóðir þóttu eftirsóknarverðar og þá átti að hygla einhverjum og útvega þeim lóð. Allt í einu var tilkynnt að stofngjaldið væri 10.000 kr. og það áttum við ekki til. Þá fór ég til Guðrúnar Pétursdóttur, en Bjarni sonur hennar var þá áhrifamað- ur í þjóðfélaginu, og hann útvegaði okkur lán upp á þær 5000 kr. sem upp á vantaði, sagði að það þyrfti nú ekki að hafa áhyggjur af því að við stæðum ekki í skilum. Við eigum Skólavörðustígsfólkinu mik- ið að þakka. Aldrei fór styggðaryrði milli mín og http://www.ætt.is 6 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.