Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2013, Page 9

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2013, Page 9
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í nóvember 2013 Ingibjörg Þorleifs- dóttir greinarhöf- undur, 6. ættliður frá ljósmóðurinni Ingibjörgu Skapta- dóttur. Þau Skapti og Sigríður áttu auk Ingibjargar börnin Guðríði f. 1793, Guðrúnu f. 1802 og Skapta f. 1805. Margrét Guðmundsdóttir, dóttir Guðríðar, var yf- irsetukona á Eiði á Seltjamarnesi. Skapti yngri var aðstoðarmaður landlæknis þótt ekki væri hann lækn- ismenntaður og sendi Jón Hjaltalín landlæknir hann oft í vitjanir þegar hann var sjálfur upptekinn. Guðrún dóttir Skapta yngri varð ljósmóðir. Hún var fædd 1863 og lést 1937. Þau Sigríður og Skapti, foreldrar Ingibjargar, létust bæði með nokkurra vikna millibili, sumarið 1821. Frómlyndur reipari En víkjum nú sögunni að Ingibjörgu. Hún ólst upp hjá foreldrum sínum á Eiði. í Mt 1816 er hún 22 ára og vinnukona í Robbshúsum í Reykjavík og svo kynn- ist hún mannsefninu sínu, Jóhannesi sem var sunnan úr Njarðvík. Jóhannes var Sigurðsson, fæddur í Ytri-Njarðvík 24. 4. 1795. Hann var reipslagari, (reipari) og smiður góður, sagður frómlyndur, hreinskilinn og vel látinn af öllum. Þau rugluðu saman reytum sínum og fluttu suður með sjó. Svolítið lengra en í Njarðvíkurnar - fyrst bjuggu þau í Leirunni, síðan í Gufuskála Vesturkoti en flytja þá í Garðinn. Fyrst bjuggu þau í Lónshúsum og síðan settust þau að á Meiðastöðum. Síðustu æviárin bjuggu þau íLitlabæ við ívarshús. Þau gengu í hjónaband í desember 1821 og var þá Guðný elsta dóttir þeirra fædd. S varamaður Jóhannesar var Jón Sighvatsson kallaður propoclær en hennar Ole Sandholt factor. Sennilega voru þau Ingibjörg og Jóhannes í vinnumennsku hjá Sandholt í Keflavík. „Examineruð“ Um það leyti sem tvö elstu börnin fæddust var gef- in út tilskipun frá landlækni um menntun ljósmæðra - og voru konur valdar til þess að leggja stund á ljós- mæðranámið. Þessar konur þurftu að njóta trausts í sinni heimabyggð - og Ingibjörg var valin. Hvort það var vegna kunningsskapar landlæknis við fjölskyldu hennar eða einhvers annars er ekki gott að segja - en Suðurnesjamenn treystu henni. Námið var ekki langt en veitti réttindi og fæðandi konum öryggi. Hún útskrifaðist sem ljósmóðir árið 1823 og tók próf sitt hjá Oddi Hjaltalín landlækni. I Mt 1835 er hún sögð yfirsetukona „examineruð“. Hún var skráð ljósmóðir í Gullbringusýslu en sinnti aðallega Rosmhvalaneshreppi. Hún starfaði sem ljós- móðir frá 1823-1874, til dánardags. 580 börn Ingibjörg hefur vafalaust verið vel gift því í starfi hennar var fólgin heilmikil fjarvera frá heimilinu. Sængurkonum þurfti oftast að sinna dögum saman og á hvaða tíma sólarhrings sem var og hvemig sem veð- urguðirnir höguðu sér. Og ekki var svæðið áuðvelt yf- irferðar - inn eftir öllu Reykjanesi - upp í Grindavrk og suður í Hafnir. Ekki skaut Ingibjörg sér undan ábyrgð því á lífs- leiðinni tók hún á móti 580 börnum og var ljósmóð- ir í 50 ár. Hún virðist einnig hafa haft óformlegt leyfi til að annast sjúka og gefa lyf því Suðurnesjamenn leituðu til hennar þegar þegar þeir þurftu á lækni að halda og hún var sagður læknir af guðs náð. Til Kongen Ingibjörg var örugglega fylgin sér, því til eru papp- írar á Þjóðskalasafni frá árinu 1838 þar sem hún sæk- ir um styrk til konungs. Umsókninni fylgdi m.a. vott- orð um Ingibjörgu frá Jóni landlækni Thorsteinsen. Ég hef ekki fundið út hver niðurstaðan varð vegna umsóknarinnar. Það er ótrúlegt að sjá þetta langa bréf undirritað af henni langalangalangalangömmu minni með fallegri skýrri hönd, þótt það sé trúlega skrifað af öðrum. En það hefst með orðunum Til Kongen! Það er gaman að sjá rithönd formóður minnar frá þeim tímum sem fæstar konur lærðu að skrifa. Þegar Ingibjörg sótti um styrk til konungsins árið 1838 voru ávarpsorðin í bréfinu Til Kongen Hér er undirskrift Ingibjargar Þorleifsdóttur í bréfinu tii konungs. http://www.ætt.is 9 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.