Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2013, Blaðsíða 12

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2013, Blaðsíða 12
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í nóvember 2013 „Guðhræddar, frómar jómfrúr66 Eins og fram kom í grein Ingibjargar Þorleifsdóttur þá var Ingibjörg formóðir hennar í mannatali titluð yf- irsetukona „examineruð“, en hún tók sitt ljósmæðra- próf 1823. Formleg ljósmæðrafræðsla hófst um 1760 en áður var það skylda prestanna að annast uppfræðslu þeirra og taka af þeim embættiseið. Bjarni Pálsson, fyrsti landlæknirinn. réði til Islands danska ljósmóður til þess að sjá um verklega kennslu ljósmæðra. Bjarni kom því til leiðar, „þótt seigt gengi“ að uppfræddar og examineraðar yfirsetukonur væru í hverri sýslu og fengu þær árlega 100 ríkisdali af Kóngi. Bjarni annaðist að mestu einn prófun ljósmæðra meðan hans naut við, en eftir hans dag fór það í vöxt að fjórðungslæknar prófuðu þær. I bréfi frá 1833 segir að verja megi fé úr Jarðarbókarsjóði til þess að kaupa grindarlíkön til ljósmæðrafræðslu. Forundrar mig... Bjarni Pálsson átti í skoðanaskiptum við Finn biskup Jónsson um æskilega hjúskaparstöðu verðandi ljós- mæðra og afsakar við hann að hann hafi leyft „jómfrú Þórunni Högnadóttur yfirsetukonu í Rangárvallasýslu að gangast undir próf þótt ógift sé, með því hún sé farin að eldast, svo að óvíst sé, hvort hún giftist, en þekkt að sómasamlegri hegðan og af góðu fólki kom- in.“ Annars kveðst hann mótfallinn því að taka ung- Til fyrirmyndar Ritstjórinn brá sér í haust austur í Þykkvabæ með barnabörnunum til þess að taka upp kartöflur og sameinaði það ökuferð um sveitina. Þá blöstu við honum á öðrum hverjum bæ gamlar myndir, tekn- ar um 1940 af Helga Hannessyni. Ljósmyndirnar eru festar á staur með nafni bæjanna og sýna flest- ar gamla torfbæi og gömul útihús. Þetta framtak er til mikillar fyrirmyndar og gaman væri ef fleiri sveitir tækju þetta upp. frúr til slíkra starfa, enda sé það eitt af inntökuskil- yrðum við Fæðingarstofnunina í Kaupmannahöfn, að konurnar séu giftar og hafi eignast böm. En Finnur biskup er á öðru máli: „Öldungis for- undrar mig á yður, svo hálærðum, háfornuftugum og gagnverseruðum manni, að skulið fordæma guð- hræddar, frómar jómfrúr frá yfirsetukvennaskólanum Svo mun ég deyja að aldrei mun ég gera það.“ Þetta hefur haft áhrif því í síðari bréfum sínum dregur Bjarni mjög úr fyrri ummælum sínum um jómfrúmar. Brjálæðiskennd feimni Námstími ljósmæðranna á tímum Bjama Pálssonar virðist hafa verið alveg óákveðinn, stundum ekki nema fáeinir dagar fyrir prófið. Fyrir miðja 19. öldina er tal- að um að námstíminn sé um einn mánuður og það hef- ur þá trúlega verið sá tími sem Ingibjörg Skaftadóttir fékk fyrir sína fræðslu. Jón Hjaltalín (1855-1881) lengdi tímann í sínu héraði upp í þrjá mánuði og með yfirsetukvennalögum frá 1875 var námstíminn ákveðinn þrír mánuðir. Þegar Yfirsetukvennaskólinn var stofnaður árið 1912 tók landlæknir við kennslunni og þá var námstíminn lengdur í sex mánuði. Fyrsta kennslubókin í ljósmóðurfræðum á íslandi „Yfirsetukvennaskólinn“ var gefin út á Hólum af Halldóri biskupi Brynjólfssyni, ellefu ámm áður en Bjarni Pálsson varð landlæknir. Bjarna var það mik- ið gremjuefni hversu illa gekk að fá ljósmæður til þess að kynna sér efni bókarinnar. „Veldur því brjál- æðiskennd feimni og blind óbeit á öllu nýju“ seg- ir Bjarni. Elsta próf í ljósmóðurfræðum, sem varð- veist hefur, var lagt fyrir Rannveigu Egilsdóttur á Staðarfelli á Fellsströnd. 9. maí 1768. Starfsheiti í fornsögum eru þær stundum nefndar þjónustukon- ur. Yfirsetukona, nærkona og náverukona em ljós- móðurheiti sem koma fyrir í gamalli biblíuþýðingu frá 13. öld. Fyrirsetukona og léttakona var einnig not- að. Talið er að starfsheitið ljósmóðir komi fyrst fyrir í Guðbrandarbiblíu árið 1584. Heimild: Ljósmœðratalið Samantekt: Guðfinna Ragnarsdóttir Beygðu kvistinn meðan hann er ungur en brjóttu hann ekki http://www.ætt.is 12 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.