Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2013, Page 14

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2013, Page 14
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í nóvember 2013 til heimilis árið 1826. Hún var síðan árum saman til heimilis á Arbakka í sömu sókn, en er komin að Vakursstöðum 1868. Sigríður deyr síðan 66 ára að aldri og að öllum líkindum á Vakursstöðum. (Andlát hennar fannst ekki skráð í kirkjubók). I islendingabok. is má sjá, að Sigríður Vigfúsdóttir andast þann 23. júní 1869. Um Sigríði má lesa í bók Margeirs Jónssonar, að hún hafi „hvorki getað lært að prjóna, spinna, bæta bót, eða þjóna sjálfri sér.“ Hún hafi aðeins verið fær um að sinna mjög fábrotnum störfum og þá undir eftirliti og enga bóklega þekkingu mun hún hafa náð að tileinka sér. Öruggt má því telja, að Sigríður hafi þurft á mikilli aðstoð samferðafólks síns að halda. Því miður er afar lítið hægt að gera sér grein fyrir ævi Sigríðar. Við munum aldrei fá vitneskju um hvaða hugsanir bærðust innra með henni, en þó er hægt að geta sér þess til, að hún hefur ekki verið öfundsverð af hlutskipti sínu í tilverunni. Víst er, að niðursetning- ar hafa aldrei verið hátt skrifaðir og að öllum líkind- um hefur ekki ævinlega verið tekið nægilegt tillit til fötlunar hennar. Ómagi Greinilegt er á athugasemdum presta í sókninni, að Sigríður hefur búið við andlega skerðingu, en hvað hefur valdið þessari skerðingu er ómögulegt að dæma um. Kannski var hún fötluð frá fæðingu, kannski voru einhver veikindi ástæðan, eða jafnvel harkaleg með- ferð á unga aldri. Hver veit? Því miður mun það víst ósjaldan hafa átt sér stað, að börn hafi verið beitt það miklu harðræði, að þau báru þess aldrei bætur síð- ar meir. Hér má sjá nokkrar glefsur úr sóknarmannatölum: 1826 er Sigríður á Finnastöðum, þá skráð „niðurseta, vitskert." 1829 er hún á Árbakka sögð niðurseta, óles- andi. 1834 er skráð um Sigríði, að hún sé „ómagi, vit- skert.“ Árið eftir er skráð um hana að hún sé „nið- urseta, fábjáni.“ 1848: „niðursetningur, fábjáni.“ 1851: „ólæs, fábjáni.“ 1854 er skráð „hreppsómagi." 1857: „hreppsómagi, ekki fullvita.“ 1861 er skráð „ólæs, vantar algjörlega kristindómskunnáttu og uppfræðing.“ 1865 er skráð um Sigríði: „niðurseta, ólæs.“ 1866 og 1867: „hálfviti á sveit.“ í fólkstali í ministerialbók frá 1868, er Sigríður sögð 64 ára, ólæs niðurseta á Vakurstöðum. „Hefur ekki getað lært í kristindóminum, er fáráðlingur (hálfviti) Hallgrímur og Arent Hallgrímur Jónsson var fæddur 24. febrúar 1787, dáinn 26. janúar 1860. Hann var læknir og bóndi Miklagarði á Langholti, Skag. og víðar. Foreldrar: Jón „elsti“ Sigurðsson, f. 1737, bóndi Lómatjörn og Borgargerði Laufássókn. Síðari kona hans var Guðrún Eiríksdóttir, f. 1760, d. 21. apríl 1843. Hallgrímur var gáfaður maður, hann stundaði lækningar. Hann var sjálflærður, en þótti hafa góða þekkingu á lækning- um. Hallgrímur var við margar konur kenndur og all- mörg börn átti hann, bæði innan og utan hjónabands. í islendingabok.is má lesa: „Skarpur og skáld gott, en kvennamaður mikill.“ ArentArentsson var fæddur 24. marz 1818. í min- isterialbók er skráð um foreldra: „Madwe Schram lýsir Landmaaler Arent Aschlund, ógiftan - en hún er gift.“ Guðfaðir: „Sýslum. í Strandasýslu, Canceli sekreter JJ. Bondesen.“ Arent fermist 1833. Fósturforeldrar: „Árni Ólafsson, meðhjálpari og Jórunn Jónsdóttir á Árbakka.“ Umsögn: „Kann og skilur prýðilega, skikkanlegur." Um Arent má lesa í fyrsta bindi af Borgfirzkum æviskrám, en hann bjó á Bjargarsteini í Stafholtstungum í Borgarfirði. Arent var kvæntur og átti nokkur börn, en ekki er þó Sigríður skráð þar meðal barna hans. Sigrídur föðurlaus Nafnið Sigríðurföðurlaus má sjá í dálkinum um fædd- ar meyjar árið 1840 í kb. Hofs- og Spákonufellssóknar. Fæðingardagur er skráður lO.jan. Móðir: „Sigríður Vigfúsdóttir, vitskert á Árbakka “ Vitundarvottar eru Jón Jónsson og Una Árnadóttir á Árbakka. Þessi færzla er nokkuð frábrugðin öðrum tilsvarandi færzl- um frá þessu ári, þar eð þarna er ekkert skráð um hvar, eða hvenær telpan er skírð - og á þetta aðeins við um Sigríði. Annað er og nokkuð undarlegt: Nöfn allra hinna firnm stúlknanna, sem fæðast þetta ár, eru skráð í réttri tímaröð, en nafn Sigríðar er skráð á eftir nöfnum tveggja stúlkna sem fæðast í maí, en á undan nöfnum stúlknanna þriggja, sem fæddar eru á síð- ari helmingi ársins. Helzt hefur hvarflað að mér, að þar eð um afskrift áðurnefndrar kirkjubókar er hér að ræða, hafi upphaflega verið skrifað 10. júní og að það sé hinn rétti fæðingardagur Sigríðar. Niðurseta Strax á fyrsta ári, eða árið 1840, er Sigríður komin í fóstur til Jóhannesar Guðmundssonar, 53 ára og Helgu Sveinsdóttur, 48 ára á Steinarstöðum í Hofssókn (ath. ætti að standa Steinnýjarstöðum, en þetta bæjarheiti má sjá skráð á ýmsa vegu)! Þar er hún sögð niðurseta árið 1845. Árið 1850 másjá,að Sigríðurföðurlaus, 10 ára niðurseta á Steinarstöðum, stautar. Síðar má lesa, að Sigríður Sigríðardóttir á Steinnýjarstöðum, „fædd á Árbakka,“ fermist 17 ára í Hofssókn þann 14. júní 1857. Fósturfaðir: Jóhannes bóndi Guðmundsson. Kunnátta Sigríðar er sögð sæmileg og hegðun henn- ar góð. Sigríður er síðan skráð Sigríðardóttir fram undir 1. janúar 1869. Eftir það Hansdóttir. Hún er sögð „ljett- astúlka“ á Steinnýjarstöðum á árunum 1855 til 1857. Sigríður er á sama bæ 1859 og enn 1865 og 1866, (hér er bærinn nefndur Stenjarstaðir)! sögð læs vinnukona. í fólkstali ministerialbókar frá marz 1868, er Sigríður skráð 28 ára vinnukona á Keldulandi. Þar á bæ er einnig 24 ára vinnumaður að nafni http://www.ætt.is 14 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.