Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2013, Síða 15
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í nóvember 2013
Spákonufell í Austur-Húnavatnssýslu. Nafnið Sigríður föðurlaus má sjá í dálkinum um fæddar meyjar árið 1840 í kb.
Hofs- og Spákonufellssóknar. (Ljósmynd Björn Jónsson skólastjóri).
Þorsteinn Björnsson. (Sjá um hann síðar). 1. janúar
1869 er Sigríður skráð 29 ára vinnukona á Litla-Bakka
í Hofssókn. Skv. mt. 1880, þegar Sigríður er 40 ára, er
hún vinnukona í Háagerði, Spákonufellssókn, Hún.
Sigríður giftist ekki, en barnsfeður hennar voru
tveir, Þorsteinn Björnsson og Þorleifur Frímann
Björnsson. Sambúðin með þeim hefur ekki staðið rétt
lengi. Og hvað dætur Sigríðar varðar, virðist sem þær
hafi ekki vaxið upp í skjóli móður sinnar, enda hæp-
ið, að hún hefði getað séð þeim farborða, þar eð laun
vinnukvenna, á þessum tíma, munu hafa verið afar
lág.
Barnsfeður Sigríðar
Þorsteinn Björnsson var fæddur 30. ágúst 1844 og
dáinn 1. febrúar 1919. í Mt. 1850 má lesa: Þorsteinn
Björnsson er 6 ára í Ásgerðarstaðaseli, hjáleigu,
Myrkársókn, Eyjafjarðarsýslu. Foreldrar hans
eru Björn Benediktsson, 34 ára, bóndi og Guðrún
Guðmundsdóttir, 36 ára, kona hans. Fæðingarstaður
þeirra allra er þar í sókn. í SÆ er skráð, að Þorsteinn
hafi verið í Víkum á Skaga 1880. í islendingabok.is
stendur: „Var í Ásgerðarstaðaseli, Myrkársókn, Eyj.
1845. Vinnumaður í Keldulandi, Hofssókn, Hún.
1870. Bóndi á Skeggjastöðum.“
Þorleifur Frímann Björnsson, var fæddur 13.
desember 1851, dáinn 4. september 1905. Um hann má
sjá í Mt. 1855: Þorleifur Frímann Björnsson er 4 ára í
Harastaðakoti, heimajörd, Hofssókn, Húnavatnssýslu.
Foreldrar hans eru Björn Guðmundsson, 33 ára bóndi
og Hólmfríður Sigurðardóttir, 27 ára kona hans. í
islendingabok.is stendur: „Vinnumaður á Syðri-
Hóli, Höskuldsstaðarsókn, Hún. 1870. Vinnumaður á
Höfnum,Hofssókn,Hún. 1880.íFossseliíSkagaheiði.
Bóndi á Kjalarlandi á Skagaströnd 1901.“
Dætur Sigríðar
Nöfn eftirtalinna þriggja dætra Sigríðar fundust í min-
isterialbók Hofs- og Spákonufellssóknar:
Arnbjörg Þorsteinsdóttir fæðist 25. júlí 1872.
Foreldrar hennar eru „Þorsteinn Bjömsson og Sigríður
Hansdóttir, bæði ógipt og búlaus á Litlabakka.“ I
Mt. 1890 má lesa, að Ambjörg Þorsteinsdóttir er
18 ára vinnukona Syðra-Hóli, Höskuldsstaðasókn,
Húnavatnssýslu. Eftirfarandi má svo sjá í min-
isterialbók sömu sóknar: „Hjón gefin saman 1895.
Guðlaugur Guðmundsson, yngismaður á Syðrahóli,
24 ára og Arnbjörg Þorsteinsdóttir, yngismey á
Syðrahóli, 22 ára.“ í islendingabok.is stendur: „Var
á Vakursstöðum, Hofssókn, A-Hún. 1930. Var í
Sævarlandi, Höfðahr., A-Hún. 1957“ Ambjörg and-
aðist 13. nóvember 1963. -Sjá meira um hana síðar.
Helga Þorsteinsdóttir fæðist þann 18. desember
1873 á Fjalli, skírð 19. desember á Brandaskarði.
Foreldrar: „Guðrún (en athugandi er, að nafn móð-
ur er skráð svo í kirkjubók) Hansdóttir, Fjalli, ógift,
lýsir föður Þorstein Björnsson á Bakka.“ Helga
Þorsteinsdóttir frá Álfhóli deyr 'A árs þann 6. júní
1874, skráð ómagi. I athugasemd stendur: „Foreldrar
lifa.“
GuðlaugHelgaÞorleifsdóttir fæðist 22. nóvember
1876. Foreldrar: „Sigríður Hansdóttir og Þorleifur
Björnson, ókvæntr á ÁlfhólI mt. 1880, þeg-
ar Guðlaug er þriggja ára, er hún skráð tökustúlka
Stenjastöðum (Steinnýjarstöðum) í Hofssókn og enn
var hún skráð tökustúlka, þegar hún fer frá Saurum
í Vindhælishreppi til Vesturheims 1889. í islend-
ingabok.is stendur meðal annars: „Mun hafa verið
gift manni með eftirnafnið Sigurdson.“
Eftir 1885
I skránni yfir brottflutta úr sókninni 1885, er
Sigríður, 44 ára vinnukona á Bakka, sögð fara að
Heiði (Fagranessókn)? Árið 1890 er Sigríður sögð
52 ára vinnukona á Hrauni á Skaga í Ketusókn og
þar er hún enn skráð vinnukona í árslok árið 1900, þá
sögð 62 ára. Hún fer síðar til Kanada, e.t.v. árið eft-
ir, en í Kanada er fyrir dóttur hennar, Guðlaug Helga
http://www.ætt.is
15
aett@aett.is