Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2013, Síða 16

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2013, Síða 16
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í nóvember 2013 Árið 1890 er Sigríður sögð 52 ára vinnukona á Hrauni á Skaga í Ketusókn og þar er hún enn skráð vinnukona í árslok árið 1900, þá sögð 62 ára. Hún fer síðar til Kanada til dóttur sinnar Guðlaugar Helgu Þorleifsdóttur. (Ljósmynd Björn Jónsson skólastjóri). Þorleifsdóttir. Þess má geta, að nafn Sigríðar, finnst ekki í manntali árið 1901 og nafn hennar finnst heldur ekki skráð í Vesturfaraskrá. f Skilaboðaskjóðu Ættfræðifélagsins í júlí árið 2005, óskaði ættingi Sigríðar, að nafni Kristjana, eft- ir upplýsingum um hana og Guðlaugu Helgu, dótt- ur hennar, eftir að þær voru fluttar úr landi og sagði hún þær mæðgur hafa skrifað frá Winnipeg í nokk- urn tíma eftir komuna þangað. í islendingabok.is má finna dánardægur mæðgnanna, þannig að víst er, að einhver tengsl hafa verið við þær í Kanada. Margir niðjar Að lokum má þess geta, að niðjar Sigríðar Hansdóttur hér á landi eru allmargir, en Arnbjörg Þorsteinsdóttir, dóttir hennar, giftist Guðlaugi Guðmundssyni, f. 14. september 1870, d. 6. febrúar 1951. Þau áttu heima á Sæunnarstöðum í Hallárdal í Vindhælishreppi og eignuðust níu börn. Foreldrar Guðlaugs voru Guðmundur Helgason og Efemía Gísladóttir. Skv. Mt. 1870, er Guðmundur 40 ára húsmaður á Svangrund, Höskuldsstaðasókn, Húnavatnssýslu og Efemía, kona hans er 35 ára. Bæði eru þau fædd þar í sókn. Illa fenginn auðinn þinn, áður en lýkur nösum, aftur tínir andskotinn upp úr þínum vösum. Höfundur: Páll Olafsson *** Lífs míns sól fer lækkandi loks hún hverfur sýnum. Fer því óðumfækkandi framhjátökum mínum. Höfundur: Ragnar Ásgeirsson ráðunautur Lokaorð Nú er væntanlega kominn tími á að ljúka þessu verki. Allnokkrum þeirra spurninga, sem komu fram í hug- ann, þegar ég var að kanna æviferil mæðgnanna, þeirra Sigríðar Vigfúsdóttur og Sigríðar Hansdóttur, tel ég mig hafa fengið nokkur svör við, en þó ekki við þeim öllum. Hitt er annað mál, þegar leitað er upp- lýsinga um þá, sem horfnir eru á vit feðra sinna fyr- ir margt löngu, geta komið fram í hugann afskaplega margar spumingar, sem ekkert þýðir að vænta svara við, t.d. hvernig var hugsanagangi fólks þessa háttað, sem leitað er upplýsinga um, skapferli þess eða útliti? Hvernig var t.d. “venjulegur dagur“ í lífi þessara ein- staklinga? Hvað er líka hægt að fá að vita um gleði fólks þessa eða sorgir? -Já, þá finnast fá svörin! Helztu heimildir: Gísli Konráðsson: Saga Skagstrendinga og Skaga- manna. Margeir Jónsson: Ögmundarstöðum. Heimar horfins tíma. Útg. 1989 BÆ. Borgfirzkar æviskrár 1. bindi SÆ. Skagfirzkar æviskrár, 1850 til 1890, 6. bindi Guðmundur Sigurður Jóhannsson. ÆAH. Ættir Austur-Húnvetninga. Júlíus H. Kristjánsson: Vesturfaraskrá 1873-1914. Útg. 1983. Manntal 1816, 1850,1855, 1870, 1880 og 1890. Islendingabok.is: Ymis ártöl og dagsetningar. Skilaboðaskjóða Ættfræðifélagsins í júlí árið 2005 Kb. Hjaltabakka, Höskuldsstaðasóknar, Hofs- og Spákonufellssókna, Austur-Húnavatnssýslu, Ketu- sóknar og Hvammsprestakalls í Skagafirði. Akureyri, 20. febrúar til 13. maí 2013. Einn kemur þá annar fer Höfundur: Ragnar Ásgeirsson ráðunautur http://www.ætt.is 16 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.