Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2013, Page 17
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í nóvember 2013
Guðmundur Sigurður Jóhannsson:
Um Málfríði Brandsdóttur
og börn hennar
Málfríður Brandsdóttir fæddist um 1768 á
Kárastöðum á Vatnsnesi. Hún var dóttir hjónanna
Brands Brandssonar (f. um 1742, d. 1792) og
Kristínar Helgadóttur (f. um 1730, d. 27. ágúst
1814) sem bjuggu í Skarði á Vatnsnesi frá því
fyrir 1773 og til 1774, en síðan á Illugastöðum á
Vatnsnesi til æviloka Brands.
Málfríður ólst upp hjá foreldrum sínum á
Illugastöðum ásamt systrum sínum tveimur, Kristínu
Brandsdóttur (f. um 1766, d. 20. júlí 1843) og Elínu
Brandsdóttur(f. um 1772,d. 1. september 1859). Voru
þær allar þrjár í foreldrahúsum þar til faðir þeirra dó,
en fóru þá í vinnumennsku, Málfríður væntanlega í
austurpart Húnavatnssýslu, en Kristín og Elín á bæi
í nágrenninu. Hvorug þeirra síðastnefndu giftist eða
átti afkomendur, það séð verður í fljótu bragði, en um
Elínu ritar prestur eftirfarandi athugasemd í kirkjubók
við greftrun: „Var blind frá því hún var 6 vetra“.
Árið 1794 var Málfríður orðin vinnukona á
Holtastöðum í Langadal og átti þá dóttur með giftum
manni, Árna Jónssyni, sem var hjú á sama heimili.
Þá var hún álitin það vel stæð, að hún var talin borg-
unarmaður fyrir sektinni sem henni var dæmd fyrir
skírlífisbrotið. Tveimur árum síðar, hinn 6. október
1796, gekk Málfríður í hjónaband með Jóni Ólafssyni
í Blöndudalshólaprestakalli í Húnavatnssýslu. Þau
virðast hafa verið í vistum eða húsmennsku í upp-
sveitum fyrstu hjúskaparárin, en fengu svo jarðnæði
til ábúðar á Kálfshamri á Skagaströnd. Hófu þau þar
búskap annað hvort 1798 eða 1799. Jóns naut ekki
lengi við því hann drukknaði á Húnaflóa 14. maí
1800 ásamt Guðmundi Einarssyni bónda á Saurum á
Skagaströnd, og virðast þeir hafa farist í fiskiróðri.
Dætur í lausaleik
Málfríður og Jón eignuðust fjórar dætur og fædd-
ist sú yngsta eftir lát föður síns. Fjölskyldan sundr-
aðist við dauða Jóns, og fóru þrjár eldri dætumar til
vandalausra. En dóttir Málfríðar og Árna Jónssonar
ólst upp með föður sínum meðan hans naut við,
og var svo tekin í fóstur af heiðurshjónunum Jóni
Benediktssyni og Ingiríði Jónsdóttur í Sólheimum í
Svínavatnshreppi.
Aldamótaárið 1800 brá Málfríður búi á Kálfshamri
og fór í húsmennsku að Höfnum á Skaga með yngstu
dóttur þeirra Jóns. Má vera að hún hafi þá hafst við
í Kolkubúð eða Rifi, en þessar gömlu hjáleigur frá
Höfnum, sem í daglegu tali voru nefndar Hafnabúðir,
voru stundum í byggð, en eins oft í eyði.. Eftir að
Málfríður varð ekkja eignaðist hún tvær dætur í
lausaleik, væntanlega með sama manni, en ekki finnst
stafkrókur um þær barneignir í legorðsmálaskjöl-
um úr Húnavatnssýslu. Má það undrum sæta, því
slík skjöl virðast hafa verið samviskusamlega færð í
Húnavatnssýslu á árunum upp úr 1800. Málfríður var
í húsmennsku í Háagerði á Skagaströnd 1805-1806
með yngstu dóttur sína.
Varð úti
Nokkrum árum seinna hefur tekið að halla undan fæti
hjá henni og hún neyðst til að kalla eftir framfæri hjá
fæðingarsveit sinni, Kirkjuhvammshreppi. Síðustu
árin var Málfríður á sveitarframfæri á Gauksmýri í
Línakradal 1812-1813, á Almenningi á Vatnsnesi
1813-1814 og á Gauksmýri aftur 1814-1815, en í
vinnumennsku í Stapakoti á Vatnsnesi 1815-1816.
Allra síðast var hún á sveitarframfæri í Múla í
Línakradal 1816 til æviloka. Hún dó20.janúar 1817,
„Ekkjauppflosnuð í niðursetu áMúla,48 [ára],dó úti
í stórkafaldshríð", ritar prestur í kirkjubók við greftr-
un hennar.
Börn Málfríðar
Nú verður gerð grein fyrir börnum Málfríðar og feðr-
um þeirra, eftir því sem heimildir hrökkva til.
Barnsfaðir: Árni Jónsson, f. um 1745, d. 16.
nóvember 1802 á Litla-Búrfelli í Svínavatnshreppi,
vinnumaður á Holtastöðum í Langadal. Foreldrar:
Jón Bjarnason bóndi í Syðri-Tungu í Staðarsveit 1762
og kona hans Þuríður Árnadóttir. Árni var lausamaður
í Sólheimum í Svínavatnshreppi manntalsárið 1801,
en síðast á Litla-Búrfelli.
Barn: Málfríður, f. 1794 á Holtastöðum, d. 18.
apríl 1838 á Vörðufelli á Skógarströnd, gift fyrr Katli
Jónssyni bónda á Vörðufelli, síðar Jóni Jóhannessyni
bónda á Vörðufelli.
Eiginmaður, gift 6. október 1796, Jón Ólafsson,
f. um 1753, dr. 4. maí 1800 á Húnaflóa, bóndi á
Kálfshamri á Skagaströnd. Óvíst er um ætterni
hans, en aldurs vegna gæti hér verið um að ræða Jón
Ólafsson, sem var hjá foreldrum sínum á Sævarlandi
í Laxárdal ytri manntalsárið 1762, sagður 9 ára, son
http://www.ætt.is
17
aett@aett.is