Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2013, Page 18

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2013, Page 18
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í nóvember 2013 Ólafs Guðmundssonar og Helgu Jónsdóttur, búandi hjóna á Sævarlandi. Börn: Margrét, f. um 1796 á Holtastöðum, d. 13. mars 1848 á Sveinsstöðum í Þingi, gift Jóni Jónssyni bónda á Húnsstöðum á Asum 1834-1835 og á Skinnastöðum á Ásum 1835-1841. Guðbjörg, f. um 1798 á Stóru-Mörk á Laxárdal fremri, d. 28. maí 1883 á Brúsastöðum í Vatnsdal, bústýra hjá Jóni Jónssyni bónda á Hóli í Sæmundarhlíð 1844- 1849, í Móbergsseli í Litla-Vatnsskarði 1849-1854, á Stóru-Mörk 1857-1859 og í Móbergsseli aftur 1859-1860. Hún var ógift og barnlaus. Kristín, f. 2. júlí 1799 á Kálfshamri, d. 1. júlí 1878 í Litladal í Svínavatnshreppi, gift Jörundi Björnssyni bónda á Syðri-Reykjum í Miðfirði 1834-1835. Ingibjörg, f. 1800 (sk. 19. ágúst 1800) á Kálfshamri, d. 1828 (gr. 5. maí 1828) í Höfnum á Skaga, var á sveitarframfæri í Höfnum. Hún var ógift og barnlaus. Yngstu börn MálfríðarBrandsdóttur voru: Sigríður Vigfúsdóttir, f. um 1803 á Kagaðarhóli á Ásum, d. 23. júní 1869 á Njálsstöðum á Skagaströnd, var á sveitarframfæri á Árbakka á Skagaströnd 1845. Hún var ógift, en átti eina dóttur. Sigurlaug Vigfúsdóttir, f. 1804 eða 1805, d. 10. febr. 1806 í Háagerði á Skagaströnd, var hjá móður sinni í Háagerði. Það er freistandi að geta sér þess til að þessar stúlk- ur hafi verið samfeðra. En hver var faðirinn? Einn maður virðist hér öðrum fremur geta komið til greina. Það er Vigfús Rafnsson, f. um 1773, d. 1. janúar 1830 í Skipanesi í Leirársveit, sonur hjónanna Rafns Snorrasonar og Sigríðar Jónsdóttur, sem bjuggu á Grímarsstöðum í Andakíl. Vigfús var vinnumað- ur á Vindhæli á Skagaströnd manntalsárið 1801, en á Hreðavatni í Norðurárdal 1818. Ólafur Snóksdalín staðhæfir að Vigfús Rafnsson hafi átt laundóttur með Sigríðarnafni. (Ættatölub. Ólafs Snóksdalíns, 260). En í þessu tilliti gæti þó hugsanlega annar maður einnig komið til greina. Það er Vigfús Jónsson, f. um 1744, d. 26. ágúst 1825 á Hvítadal í Saurbæjarsveit, sonur Jóns Hannessonar vinnumanns á Vesturlandi og barnsmóður hans Oddnýjar Helgadóttur vinnukonu á Vesturlandi, sem giftist síðar Gísla Sigurðssyni bónda á Staðarhóli í Saurbæjarsveit 1762. Vigfús var all- lengi Vesturlandspóstur, en manntalsárið 1801 var hann hættur póstburði og kominn í húsmennsku að ívarshúsum á Akranesi. Hann fór síðar norður og var í húsmennsku á Bakka á Skagaströnd 1805-1807 og á Hróarsstöðum á Skagaströnd 1807-1808. Hann gekk í hjónaband með seinni konu sinni, Valgerði Jónsdóttur, hinn 5. júlí 1806 í Hofsprestakalli í Húnavatnssýslu. Áður en skilið er með öllu við Vigfúsana, má geta þess að 27. júlí 1810 dó ungbarnið Guðrún Vigfúsdóttir á Spákonufelli á Skagaströnd, sögð „0 [ára], óegtab[arn]“. Um foreldra hennar er ókunnugt, því færsla um fæðingu og skírn hennar finnst ekki í kirkjubókum. Hálf gátan leyst Ætterni Sigríðar Vigfúsdóttur hefur lengi vafist fyrir mönnum og er það einskær tilviljun og happ að tekist hefur að ráða þá gátu til hálfs, það er að segja hvað móðurlegginn varðar. Á blaðsíðum 381- 384 í Hreppsbók Vindhælishrepps í Húnavatnssýslu 1790-1830, er skrá yfir þurfafólk, færð í bókina milli tíundarreikninga áranna 1823 og 1824. Þar í er þessi póstur á blaðsíðu 382: „Christín Jónsdóttir, fædd á Kálfshamri, vinnur nú í Bólstaðahlíðarhrepp, henn- ar alsystir Ingibjörg á Höfnum sem verður ómagi alla æfi, en hálfsystir er Sigríður Vigfúsdóttir á Finnstöðum eins ómagi.“ Dótturdóttirin Ekki verður skilist við Málfríði Brandsdóttur án þess að gerð verði nokkur grein fyrir dótturdótt- ur hennar Guðrúnu Jónsdóttur. Hún fæddist 28. ágúst 1827 á Auðunarstöðum í Víðidal og and- aðist 15. maí 1876 í Reykjaseli í Mælifellsdal, dótt- írv'- 7 jy R {'f/ « - Þ/t/I dTtl.l u—> op . - /o Ljýir-jo&sr 'Jertöixur'Jitííu 6'itfcT. % JJxffrpSjj a k e rf irutn '’jlunsuvafaj.a/t/á -4htrúr\íÝ^. Síar/iLU,c(birv\ . i ‘ nin, rrf . Jrúéu.éj/frS céenrti, ‘Ma, ■ - : . l .i'.rv.. ?nd. . eJariv . ' P /'fi ítfnu iy J/r/neijy \f-ejfécLKónUjfcllr f t , iKf i, C&UrLn, Lzjiarffyéhr' ^bi ^ é.ó. ~"T 1 — u — „ —» - — 1 ' n — t' ~ » " - ~ 11 fi f. cp) JtCÍnilYl buJmumrd mtÉMfS ■ xiPv}/* rrvt-dir-xAnt, ‘ tx, . í/cferr- - 4' . —■ * - * ■ ' Lsttxm. éérniJeyiJjóru qT ! <V,.vUÍ tVt&rf--. ■ ~H - V - V. — _._lL '{^7 ‘í-ee. : Legorðsskýrsla úr Húnavatnssýslu 1794 (upphaf). Þar er neðst á myndinni færsla um legorðsbrot Árna Jónssonar og Málfríðar Brandsdóttur í Holtastaðasókn. (Sýsluskjöl Húnavatnssýslu X, 3.b.). http://www.ætt.is 18 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.