Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2013, Qupperneq 21

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2013, Qupperneq 21
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í nóvember 2013 Og inn í þetta vefur hann Nóa, Sigurði Fáfnisbana, Sæmundi fróða, Haraldi hilditönn, Lofti ríka, Akra- Finni og svo ektabrúðum, launbörnum, gildum frúm, dyggum dætrum, þriflegum ektajóðum, hetjum, barnaláni og Steinunni stilltu og fríðu, og lætur ekki staðar numið fyrr en eftir 188 vísur og hefur þá kom- ist að því að: Fimmtán kóngar finnast þar fimm spekingar nafnfrœgir fimm ríkustu frónsbúar og fimm þjóðskáldin áður hér. Nei, hann þurfti ekkert Espólíntölvuforrit fyrir ætt- arfróðleikinn sinn hann Sigurður blessaður Daðason enda uppi frá um 1759 til 1820. Páll skáldi Til eru ágætar vísur sem bóndasonur einn á Rangárvöllunum orti,en það voru áhöld um það hvort faðir hans væri rétt feðraður, en ýmsir þóttust í hæfi- leikum hans og föður hans sjá spor eftir Pál skálda en einhvemtíma kvu Páll skáldi hafa litið við hjá ömmu hans sem þá var bæði ung og lífsglöð og allmiklu yngri en maður hennar. Af þessu tilefni orti bóndasonurinn: Ættartölustigi er stundum háll og steypir mörgum œttfrœðing í vanda. Hvort afi minn hét Pétur eða Páll pú, ég held það megi á sama standa. en bætti svo við: Sonarsonur séra Páls sagður er ég vera. Amma á Hofi missti máls en mátti til að bera. En það eru nú ekki allir sammála um að það standi á sama hvort afinn heitir Pétur eða Páll, allra síst lækna- vísindin sem keppast nú við að grúska í genunum og gætu þess vegna flett ofan af hverju framhjáhaldinu af öðru ef genagrúskið væri ekki allt hulið leynd og þagmælsku. Svo að menn geta hér eftir sem hingað til brugðið sér af bæ án þess að upp komist. Húskveðjan Lengi vel tíðkaðist það að hafa húskveðjur heima á bæjunum, þar sem hinn látni var kvaddur af sín- um nánustu áður en hann var fluttur til kirkju. í hús- kveðjunum, sem auk prestanna voru fluttar af leik- mönnum, nágrannabændum eða vinum var oft fólg- inn mikill fróðleikur og samantekt á lífi hins látna. En sjálfsagt hefur það fylgt húskveðjunum eins og mörgum eftirmælum að hið jákvæða fékk yfirhönd- ina og gaf heldur betri mynd af viðkomandi en hann átti skilið. Það fannst að minnsta kosti Daníel Jónssyni fyrr- um bónda á Eiði á Langanesi en hann var fæddur 1853 og dó 1930, en hann tók sig til og samdi sína eigin húskveðju og mæltist til þess að hún væri les- in upp að honum látnum og það var sannarlega eng- in lofræða. Eftir að hafa þakkað guði og mönnum góðar við- tökur í heiminn léttir hann á hjarta sínu og iðrast synda sinna. Hann hafi verið elskulegri móður sinni erfiður og óhlýðinn sonur sem hafi illa haldið sín lof- orð. Hann hafi ginnt systkin sín út á þunnan ís eða hátt upp á hús og verið bæði baldinn og ódæll. Yndislegri konu sinni hafi hann verið vondur og hann skamm- ast sín fyrir hversu illa hann síðan reyndist ungri og saklausri bamsmóður sinni. Hann veltir fyrir sér sam- búðarörðugleikum og hjónaást og kemst að raun um að mesti örðugleikinn sem hann hefur átt við að stríða hefur verið fólginn í að sigra sjálfan sig, illar hneigðir og ófullkomleik. I lok langrar húskveðju kveður hann heimilisfólkið og sína nánustu en einnig skepnumar sínar sem hafa klætt hann og fætt. Melabjargið Ofan við Mela á Skarðströnd er Melabjargið. Það er snarbratt og um 450 m hátt. Einhverju sinni voru þeir í leitum Guðmundur Jóhannesson á Reynikeldu og Sigurjón Sveinsson á Sveinsstöðum/Kvenhóli (föð- urbróðir Svavars Gestssonar f. v. sendiherra) og fleiri. Sigurjón manaði Guðmund til þess að skíta fram af bjargbrúninni, Guðmundur tók áskomninni - og tókst það! Nafnavísa Þegar níræð frænka mín, Agnes (Bjömsdóttir) Holteman-Knudsen, fædd og búsett í Noregi alla tíð, heimsótti Island í sumar fór hún með eftirfarandi vísu, sem var nánast það eina sem hún kunni í íslensku. Vísuna hafði langafi hennar, Olafur Björnsson, lengst af bóndi víða í Hrútafirði ort um barnabörnin sín. Vísan er trúlega ort á bilinu 1885-1888, en 1888 fæddist yngsta systirin Olöf Sigurrós og hennar nafn er ekki í vísunni. Agnes, Björn og Olafur Inga, Valli, Hallgrímur. (Ingibjörg og Hallgrímur Valgeir) Gvendur, Jón og Guðfinnur (Guðmundur og Guðfinnur Jón) Gústa, Steinunn, Hólmfríður. (Hólmfríður Ágústa og Steinunn) Eigi er mögur nema móðir sé http://www.ætt.is 21 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.