Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2013, Qupperneq 22

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2013, Qupperneq 22
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í nóvember 2013 Gísli Gunnarsson prófessor í sagnfræði við Háskóla íslands: Sundurlausir þankar um ættfræði og fjölskyldusögu Sennilega eru engin frœði betri til að gefa mynd af samfélagi liðinna alda en einmitt ættfræð- in. Síðan bætist skemmtanagildið við sem bón- us. Þetta segir Gísli Gunnarsson prófessor við Háskóla Islands íeftirfarandi grein.Hann fjallar einnig um œitardramb, frœndsemi, œttrakningar, áafjölda, endurnýjun þjóðar og „útdauðar ætt- ir“. Gísli telur einnig hæpið að rekja ættir sín- ar til einhvers ættföður sem lifði á þjóðveld- istímanum, eins og Snorra Sturlusonar og Egils Skallagrímssonar, því allir núlifandi Islendingar hljóti að vera afkomendur þessara merkismanna á hundruð efekki þúsundir mismunandi vegu. Ég flutti á fundi Ættfræðifélagsins 25. mars sl. er- indi, sem er samhljóða titli þessa greinarkorns. Ekki er mögulegt að birta erindi þetta „orðrétt“; það fólst í því að ég sýndi myndir á tilhlýðilegum varpa og tal- aði ég síðan blaðlaust út frá þeim. Myndirnar sýndu ættartöflur ýmiss konar, líkön af áafjölda í fyrri kyn- slóðum og hugsanlegan hámarksfjölda þeirra, um hugtakið „útdauð ætt“ og hættuna af því að rekja að- eins ættir í beinan karllegg eins og venja er meðal margra ættfræðinga erlendis. Erindið fjallaði þannig að stórum hluta um ýmsa misnotkun á ættfræði sem bæri að varast. Dæmi var tekið hvernig þýskir nasistar hefðu fært sér íhalds- sama ættfræði í nyt í pólitískum tilgangi. Bent var á að allir íslendingar hlytu að eiga meira eða minna sameiginlega áa ef nógu langt væri rakið, oftast dygði að rekja í 11 til 14 kynslóðir eða til 16. og 17. alda, I apríl 1996 birtist í Fréttabréfi Ættfrœðifélagsins grein eftir Gísla Gunnarsson prófessor í sagn- fræði við Háskóla Islands, sem hann kall- aði Sundurlausir þankar um œttfrœði og fjöl- skyldusögu. Greinin byggði á erindi sem Gísli flutti á Ættfrœðifélagsfundi í mars sama ár. Þar er að finna afar skemmtilega sýn á hugtök eins og œtt- ardramb, frœndsemi, œttrakningar, áafjölda og „útdauðar ættir“. Gísli veitti Fréttabréfinu góðfúslegt leyfi til þess að endurprenta þessa ágætii grein. Inngangur og millifyrirsagnir eru nýjar og á ábyrgð ritstjóra. ekki ósjaldan miklu minna. Allir værum við að meg- instofni afkomendur allra þeirra sem lifað hefðu á fyrri hluta 16. aldar og sem átt hefðu niðja að ein- hverju ráði. Ættardramb Af þessari staðreynd mætti draga ýmsar niðurstöð- ur: ættardramb er út í hött þegar til langs tíma er lit- ið. Ef orðið frændsemi á að hafa einhverja merkingu hljótum við að nota það með varkámi, annars ættum við öll hundruð þúsunda af „frændum og frænkum“. Ráðlegt væri að takmarka frændsemishugtakið við fjórmenninga og þaðan skyldara fólk. Hæpið er að rekja í verulegri alvöru ættir sínar til einhvers ættföður sem lifði á þjóðveldistímanum, eins og til Snoma Surlusonar, Egils Skallagrímssonar eða Haraldar hárfagra! Allir núlifandi íslendingar hljóta að vera afkomendur þessara merkismanna á hundruð ef ekki þúsundir mismunandi vegu en þó er ólíklegt að hlutur hvers þessara áa okkar í litningafjölda hvers okkar sé meiri en 1 af 5000-10 000! Það gerir íslenska ættfræðihefð merkari en ætt- fræði víða erlendis að hér á landi hafa ættir nær alltaf verið raktar bæði í föður- og móðurlegg. Galli er hins vegar að sumir ættfræðingar hafa hætt ættrakningu ef tiltekinn ái reyndist á engan hátt vera merkur mað- ur. Til allrar hamingju hefur dregið úr þessari áráttu. Einnig hafa æ fleiri áttað sig á tilgangsleysi þess að halda á lofti ættartöflum allt til miðalda, þótt ekki sé nema vegna blessaða heimildaskortsins! Raunar er ákveðið lán ættfræðinga að heimildir leyfa ekki verulega ættrakningu lengur en vit er í, það er að reyna að rekja allt áatal sitt aftur til fyrri hluta 18. aldar. Metnaður hvers ættfræðings ætti einmitt að liggja sérstaklega í því að finna út alla áatölu sína í sjö til átta liði. (Það er allt í lagi að halda lengra aftur, það hefur stundum skemmtanagildi, en best er þá að hafa allan vara á.) Engin fræði betri Góð ættfræðirakning getur verið ómetanlegur þáttur í alls kyns rannsóknum á sögu þjóðarinnar, ekki síst í félagssögu. Hún getur einnig nýst öðrum vísindagrein- um, t.d. læknisfræði eins og dæmin sanna. En síðast en ekki síst er góð ættfræði merk vísindi með gildi af sjálfri sér einni, án tillits til annarra fræðigreina. Sennilega eru engin fræði betri til að gefa mynd af http://www.ætt.is 22 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.