Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2013, Blaðsíða 24

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2013, Blaðsíða 24
FRETTABREF ^TTFRÆÐIFÉLAGSINS Armúla 19, 108 Reykjavík, Heimasíða: http://www.aett.is, Netfang:aett@aett.is Opnunartími Þjóðskjalasafns Lestrarsalur Þjóðskjalasafnsins er opinn sem hér segir: Kl. 10:00 - 17:00 þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga allt árið. Kl. 10:00 - 16:00 á föstudögum á vetrartíma (1. septembertil 31. maí). Kl. 10:00 - 14:00 á föstudögum á sumartíma (1. júní til 31. ágúst). Sumarlokun og lokun yfir hátíðar er auglýst sérstaklega. Skjöl eru afgreidd tvisvar á dag úr geymslum safnsins,kl. 10:30 og 14:30. Opið hús á laugardögum Ákveðið hefur verið að hafa Opið hús á skrifstofu Ættfræðifélagsins að Ármúla 19,2. hæð, á laugardög- um í vetur. Þar verða kynntar til sögunnar ýmsar ættir, niðjatöl og héruð, nýútkomnar ættfræðibækur og fleira ættfræðitengt. Eins og áður eru allir velkomnir með spurningar og svör, gott skap og fróðleik. Heitt kaffi á könnunni! Opið verður milli klukkan 13:00 og 15:00 og lengur ef óskað er. Opið hús verður fram til loka maí. Vilt þú koma og segja frá? Vilt þú kæri félagsmaður koma og segja frá þínu ættfræðigrúski á Opnu húsi. Við erum til í að hjálpa við að senda út auglýsingu. Áhugasamir hafi samband við Kristin, í síma 8674347 og 5882450, eða sigkri@hive.is eða Önnu Kristjánsdóttur á annakk@simnet.is Ekki hafa allir þeir sem fengið hafa Fréttabréfið greitt árgjöld fyrir 2012. Stjórnin skorar á alla sem eiga eftir að greiða félags- gjöldin að greiða fyrir aðalfundinn. Allir skilvísir félagar fá þakkir frá stjórninni fyrir að auðvelda starfið. STORLÆKKAÐ VERÐ Á MANNTÖLUM Nú er lag að kaupa manntölin. Þau eru aðeins til í takmörkuðu upplagi og verða ekki endurútgefín. Mörg hefti og bindi eru nú þegar uppseld. Ákveðið hefur verið að stórlækka verðin á manntölunum svo allir geti eignast þessi bráðnauðsynlegu hjálpartæki við ættfræðirannsóknir. Tilvalið er að gefa jafnt ungum sem öldnum manntöl í afmælisgjafir. Verðskráin lítur svona út: Manntal 1910 1. bindi: Vestur-Skaftafellssýsla, 1.000 kr 2. bindi: Árnessýsla, 2.000 kr 3. bindi: Rangárvallasýsla, 2.000 kr 4. bindi: Gullbringu- og Kjósarsýsla, 2.000 kr 5. bindi Reykjavík 1 og 2, 8.000 kr Manntal 1845 1 .-3. bindi 1.000 kr hvert bindi Manntal 1816 6. hefti 500 kr (allt sem til er) Manntal 1801 3. bindi Norður- og Austuramt 1.000 kr (allt sem til er) Hægt er að fá þessi manntöl á skrifstofu félagsins Ármúla 19 á Opnu húsi sem er alla laugardaga kl. 13:00 - 15:00. Einnig má panta þau í síma 867-4347 eða í tölvupósti á netföngunum aett@aett. is og gudfragn@mr.is. Nóvemberfundur Fimmtudaginn 28. nóvember mun Guðfinna Ragnarsdóttir, ritstjóri Fréttabréfs Ættfræðifélagsins halda erindi sem hún nefnir Skapti Skaptason aðstoðarmaður landlæknis. Erindið fjallar um annálað góðmenni, ættir og örlög, auð og Evrópusöguna og klukkuna sem tikkar ei-líbbð, ei-líbbð. Fundurinn verður haldinn kl. 20:30 í húsi Þjóðskjalasafnsins að Laugavegi 162, 3. hæð, Reykjavík. Kaffi og spjall. Allir velkomnir! Janúarfundur Vegna óviðráðanlegra ástæðna frestaðist erindi Guðnýjar Hall- grímsdóttur doktorsnema í sagnfræði við Háskóla Islands, sem halda átti í október s.l. en fimmtudaginn 30. janúar mun hún halda erindið sem hún kallar Guðbjörg Ketilsdóttir - Einstæð og útivinnandi alla tíð. Guðbjörg, sem fæddist í Hrafnagilshreppi í Eyjafirði árið 1767 var sögð dygg en stórgeðja og vann náið með erlendum kaupmönnum á Islandi kringum 1800. Um það leyti átti hún í leynilegu sambandi við þekktan kaupmann sem hún eignaðist börn með. Síðar stóð hún fyrir húshaldi á einu glæsilegsta býli landsins. Fundurinn verður haldinn kl. 20:30 í húsi Þjóðskjalasafnsins að Laugavegi 162, 3. hæð, Reykjavík. Kaffi og spjall. Allir velkomnir!

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.