Fréttablað Knattspyrnudeildar Þróttar - 01.02.1970, Blaðsíða 6
6
FRÉTTABLAÐ ÞRÓTTAR
Knattspyrnusnillingurinn PELE
Árið 1957 varð 16 ára drengur að nafni Edson do Nascimento fastur
leikmaður hjá hinu heimsfræga brasilíska knattspyrnufélagi Santos
og voru laun hans 6750 krónur íslenzkar á mánuði, nú þrettán árum
og 1000 mörkum síðar þekkja allir hann undir nafninu Pele og laun
hans nú eru 273.000 íslenzkar krónur á mánuði.
Pele hleypur af leikvelli, eftir að hafa gert 1000. mark sitt.
Það var árið 1958 að við Evrópu-
búar komumst fyrst í kynni við
þennan mikla snilling er hann lék
í liði Brasilíu í heimsmeistara-
keppninni í Svíþjóð, þá aðeins
17 ára að aldri. Hann hafði ekki
verið valinn í tvo fyrstu leiki
þeirra í riðlinum, á móti Austur-
ríki, sem Brasilía vann 3—0, og á
móti Englandi, en þeim leik lauk
með jafntefli 0—0. Eftir þann
leik fannst stjórnanda brasilíska
liðsins, Feola, breytinga þörf á
framlínu liðs síns og Pele var sett-
ur í liðið gegn Rússum, en þann
leik vann Brasilía 2—0. Að vísu
gerði Pele hvorugt markið, en sýndi
samt það góðan leik að hann hélt
stöðunni. í næsta leik, sem var
gegn Wales í 8 liða úrslitum, gerði
hann eina mark leiksins, gegn
Frakklandi í undanúrslitum gerði
hann þrjú mörk, en sá leikur var
að flestra dómi bezti leikur keppn-
innar og endaði með sigri Brasilíu
5—2 og í úrslitaleiknum gegn Sví-
þjóð gerði hann tvö mörk, en
þann leik vann Brasilía einnig
5—2.
Fyrr í vetur gerði Pele sitt 1000.
mark frá því er hann fór að leika
með Santos, en milli 14 og 16 ára
aldurs lék hann með annarrar
deildarliðinu Baura og gerði með
þeim 158 mörk, þannig að mörk
hans eru að verða tólf hundruð
frá því er hann fór að leika í
meistaraflokki, en það þýðir að
hann hafi gert að meðaltali 80
mörk á ári og er það nokkru meira
en flestum liðum tekst að gera,
t. d. vann Leeds ensku fyrstudeild-
ina í fyrra og gerðu aðeins 66
mörk.
Ellefu sinnum á þrettán árum
með Santos hefur hann verið mark-
hæsti maður Brasilíu, jafnvel árið
1964 er hann hafði verið frá keppni
fjóra fyrstu mánuði deildarkeppn-
innar vegna meiðsla, þurfti hann