Morgunblaðið - 03.03.2021, Side 12
AFGREIÐSLUTÍMI
Mán.–fös. 10–18 | Lau. 11–16
www.betrabak.is
HÄSTENS VERSLUN
Faxafeni 5, Reykjavík
588 8477
AFGREIÐSLUTÍMI
Mán.–fös. 1–18 | Lau. 1–16
www.betrabak.is
Komdu til okkar og prófaðu einstök
gæði Hästens rúmanna.
Starfsfólk okkar er tilbúið að aðstoða
þig og veita frekari upplýsingar.
VERTUVAKANDI Í
FYRSTASKIPTI
ÁÆVINNI
VIÐSKIPTA
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf.
Umsjón Stefán Einar Stefánsson fréttastjóri, ses@mbl.is Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
VIÐSKIPTI Á MBL.IS
Segja upp öllu starfsfólki og …
Verða af 26 milljörðum
Bankastjórinn einn af átta
Milljarðar í arð á næstunni
Uppsagnir hjá Skeljungi
Mest lesið í vikunni
INNHERJI
RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON
SKOÐUN
Dalsnes hefur lagt fram fyrirspurn
um burðarþol lóðar undir hátækni-
vöruhús félagsins í Korngörðum 3
við Sundahöfn.
Vöruhúsið er í byggingu.
Magnús Þór Ásmundsson, hafnar-
stjóri Faxaflóahafna, segir Dalsnes
matsbeiðanda í málinu.
Varða ástand og burðarþol
„Dalsnes hefur lagt fram mats-
beiðni vegna lóðarinnar í Korngörð-
um 3 við Sundahöfn en Faxaflóa-
hafnir eru eigandi lóðarinnar og þal.
matsþoli. Það þýðir að Dalsnes setur
fram matsspurningar en þær varða
ástand og burðarþol lóðarinnar.
Dalsnes hefur ekki sett fram neinar
kröfur,“ segir Magnús Þór. Því hafi
ekki komið fram hverjar óskir Dals-
ness séu í málinu. Þá sé ekkert
dómsmál í gangi.
Lóðin hafi uppfyllt eiginleika
Magnús Þór segir ekki óalgengt
að slíkar matsbeiðnir séu lagðar
fram þegar uppi eru álitamál um
ástand fasteigna. „Nú er málið hjá
dómkvöddum matsmönnum sem
munu gera skýrslu eða álykta um
þessar matsspurningar. Okkar hlut-
verk er að leggja fram gögn sem
varða matsspurningarnar. Þau gögn
snúa einkum að því að lóðin uppfylli
þá eiginleika sem upp voru gefnir við
úthlutun,“ segir Magnús Þór.
Magnús Óli Ólafsson, forstjóri
heildverslunarinnar Innness, gaf
ekki kost á viðtali um málið en
systurfélagið Dalsnes byggir húsið.
En hinn 1. september 2017 tók
Gísli Gíslason, þáverandi hafnar-
stjóri Faxaflóahafna, fyrstu skóflu-
stungu að nýju vöruhúsinu.
Morgunblaðið/SISI
Starfsemi Innness verður sameinuð en hún var á fjórum stöðum.
Dalsnes lætur
meta burðarþol
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Tilkvaddir matsmenn
munu á næstunni meta
svör Faxaflóahafna varð-
andi lóð sem úthlutað var
undir vöruhús Innness.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Þegar Voyager 1-geimfarið tókmyndir af jörðinni úr órafjar-
lægð fyrir rúmum þrjátíu árum –
fyrstu slíku myndina í sögu mann-
kyns – hafði stjörnufræðingurinn
Carl Sagan á orði að jörðin væri sem
fölblár blettur á sveimi í geimnum.
Héðan frá skrifborðinu er útsýniyfir Rauðavatn og jörðin virðist
alls ekkert smá, miklu frekar risa-
stór. Svo sjónarhornið skiptir máli.
Það er rétt að hafa þetta í hugaþegar rætt er um breytingar á
stórum tölum. Nú síðast um samdrátt
landsframleiðslu í kórónukreppunni.
Eins og Morgunblaðið sagði frá á for-
síðu var hann 6,6% í fyrra eða tals-
vert minni en spáð var.
Einn viðmælenda blaðsins sagðimeðaltalið varhugavert í þessu
samhengi. Því mætti líkja við mann
sem hefði annan fótinn í sjóðandi
vatni en hinn fótinn í ísköldu vatni og
segði að vatnið væri að jafnaði volgt.
Annar viðmælenda blaðsins er íveitingageiranum. Blessunar-
lega hefur hans rekstrarlíkan
blómstrað í faraldrinum. „Hins vegar
eru vinir mínir að missa húsin sín.
Þeir settu allt sitt í veitingahús og var
svo skipað að loka,“ sagði maðurinn
um fallvalt gengi félaga sinna í vetur.
Vonandi ná þeir vopnum sínum nú
þegar slakað er á hömlunum.
Það er þakkarvert að betur fór en áhorfðist en ekki má gleyma þeim
sem sitja sárir eftir harðindin.
Horft úr
fjarlægð
Nú sitja sérfræðingar Bankasýsl-unnar sveittir við að ýta sölu-
ferli Íslandsbanka úr vör. Margir
ráðgjafar virðast spenntir fyrir því
að koma að verkinu. Það eru jákvæð
tíðindi í sjálfu sér. Það þýðir að þeir
eru vongóðir um að vel geti tekist til.
Og sannarlega er tilefni til að ætla
að svo megi verða. Það er líf í Kaup-
höll og fjárfestingarvilji mikill. Lágt
vaxtastig kallar á að þeir sem ávaxta
vilja pundið eða krónuna verða að
leita úr mesta örygginu og á önnur
mið.
Sú stefna sem mörkuð hefur veriðvarðandi sölu á óverulegum hlut
í Íslandsbanka ætti að vera öllum
fagnaðarefni en þeir sem trúa því og
treysta að ríkið sé best til þess fallið
að hafa tvo þriðju hluta bankakerf-
isins í fanginu benda auðvitað á að
nú sé ekki rétti tíminn til að selja.
Þeir hinir sömu telja reyndar að sá
tími komi aldrei. Þegar illa árar er
verðið of lágt og þegar vel árar á
kerfið sennilega meira inni – eða
hvað? Helstu rökin gegn sölu nú er
óvissan – hún valdi því að ósennilegt
sé að gott verð fáist fyrir hlutinn í
Íslandsbanka.
Tveir bankar eru skráðir á mark-að hér á landi. Annars vegar er
það Arion banki og hins vegar
Kvika. Báðar stofnanirnar hafa átt
góðu gengi að fagna á markaðnum
síðustu misseri. Á síðustu 12 mán-
uðum hefur hlutabréfaverð Arion
banka hækkað um 56%. Í tilfelli
Kviku nemur hækkunin rétt um
100%. Góður skriður hefur því verið
á bankamarkaðnum og hann er sjálf-
sagt að nýta til þess að fá gott verð
fyrir Íslandsbanka.
Enn á eftir að koma í ljós hververðmiðinn á bréfum Íslands-
banka verður. Síðustu ár hafa fjár-
festar víðast hvar horft upp á að
markaðsverð banka hefur verið tals-
vert undir bókfærðu eigin fé þeirra.
Hefur þar oft sést glitta í stuðulinn
frá 0,65 og upp í 0,85. Nú bregður
hins vegar svo við að markaðsvirði
Arion banka nemur 212 milljörðum
króna en bókfært eigið fé bankans
var tæpir 200 milljarðar um áramót-
in síðustu. Ekki er hægt að leggja al-
gjört samasemmerki á milli þessara
talna og þeirra sem eiga við í tilfelli
Íslandsbanka. En tölurnar staðfesta
þó að nú eru kjöraðstæður til þess að
losa um eign og áhættu ríkisins í
bankakerfinu.
Algjörar kjöraðstæður
Icelandair ætlar að
taka tvær Boeing 737
MAX-vélar í notkun á
ný í marsmánuði.
MAX-vélar aft-
ur í notkun
1
2
3
4
5