Morgunblaðið - 03.03.2021, Side 1
FUNDU NÝJAR LAUSNIR Í FARALDRIVAXANDIVANDI
nnkallað einvígi í gamalli bankahvelfingu við Laugaveg. 8
Baráttumaðurinn litríki Larry Flynt
er fallinn frá og áfram er sótt að
tjáningarfrelsinu úr öllum áttum. 10
VIÐSKIPTA
11
Sa
Ragnheiður Aradóttir hjá PROevents þurfti að snúa
vörn í sókn og leita nýrra leiða til að efla fólk
og hvetja með aðstoð tækninnar.
MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2021
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.
Hart mætir hörðu á Kirkjusandi
Í nýliðnum febrúarmánuði rifti 105 Miðborg
slhf. verkkaupasamningi sínum við Íslenska
aðalverktaka um uppbyggingu á lóðum merkt-
um B, C og D að Kirkjusandi í Reykjavík.
Þetta herma heimildir ViðskiptaMoggans.
Um er að ræða umfangsmiklar fram-
kvæmdir á lóð sem m.a. hýsti áður flota Strætó
bs. Heildarumfang framkvæmdanna var á sín-
um tíma metið á u.þ.b. 10 milljarða króna.
Nemur heildarbyggingarmagn á lóðunum um
34 þúsund fermetrum. Um er að ræða tvö stór
fjölbýlishús á reitum B og C sem hlotið hafa
viðurnefnin Sólborg og Stuðlaborg. Fyrr-
nefnda byggingin er 52 íbúðir í þremur lyftu-
húsum og síðarnefnda byggingin, sem blasir
við vegfarendum á Sæbraut, er 77 íbúðir á
fjórum til sjö hæðum.
Miklar tafir og gallar
Heimildir blaðsins herma að ástæður riftun-
arinnar af hálfu 105 Miðborgar séu gríðarlegar
tafir á afhendingu einstakra verkþátta af hálfu
ÍAV og að þá hafi verktakinn ekki skilað bygg-
ingum af sér í ásættanlegu ásigkomulagi. Mun
alvarlegur ágreiningur milli verkkaupa og
verksala hafa komið upp á yfirborðið um mitt
síðasta ár og að síðan hafi í raun aðeins sigið á
ógæfuhliðina í samskiptum milli aðila. Þannig
átti að afhenda fyrstu íbúðir í árslok 2019 en
það gekk ekki eftir. Eru tafir við afhendingu
Stuðlaborgar taldar vera 15 mánuðir og í til-
felli Sólborgar um 12 mánuðir. Nú hefur
stærstur hluti íbúðanna verið seldur en aðeins
er lokið við uppsteypu við skrifstofubygg-
inguna, sem bera mun heitið Sjávarborg. Það
er ríflega 7.000 fermetra bygging á allt að sex
hæðum. Því er ljóst að aðrir verktakar munu
koma að frágangi hússins. Heimildir Við-
skiptaMoggans herma að mikið liggi á að
koma þeim framkvæmdum í fastar skorður
enda liggi nú þegar fyrir leigusamningur við
heilbrigðisráðuneytið um útleigu á u.þ.b. 1.500
fermetra rými undir starfsemi heilsugæslu í
húsinu sem taka á í notkun um komandi ára-
mót.
Það munu þó ekki aðeins vera tafir á verk-
lokum sem valda uppstyttum í samskiptum
fyrirtækjanna tveggja. Þannig mun mikill
ágreiningur hafa risið um meintar vanefndir
ÍAV á frágangi íbúðarhúsnæðisins. Gallar sem
komið hafa fram á húsnæðinu séu margvíslegir
og að verktaki neiti að ráða bót á þeim nema að
fyrir það komi sérstakar greiðslur frá 105 Mið-
borg. Meðal galla hafi verið óslétt gólf í íbúð-
um og veggir, gallar á gluggum og hurðum og
öðru sem ráða þurfi bót á. Heimildir Við-
skiptaMoggans herma að þegar ekki hafi náðst
samkomulag um betrumbætur hafi verk-
fræðistofan EFLA verið kölluð til sem
úttektaraðili á framkvæmdinni. Skýrslum hafi
verið skilað um allar íbúðir bygginganna og að
athugasemdir hafi verið ríflega 6.000 talsins.
Íbúðareigendur sem ViðskiptaMogginn hefur
rætt við segjast langþreyttir á þessari stöðu en
að 105 Miðborg hafi í bréfi til kaupenda lagt
áherslu á að bót yrði ráðin á þeim málum sem
standi út af borðinu á þessum tímapunkti. Nú
þegar hefur verið ráðist í talsverðar betrum-
bætur á ýmsum göllum sem upp hafa komið.
Lífeyrissjóðir og tryggingafélög
Eigendur 105 Miðborgar slhf., sem er í stýr-
ingu Íslandssjóða, eru tíu íslenskir lífeyris-
sjóðir, fimm vátryggingafélög og ellefu fag-
fjárfestar. Lífsverk lífeyrissjóður og
Lífeyrissjóður Verslunarmanna eiga 11,25%
hlut hvor. Brimgarðar ehf. eiga 10%, Sjóvá Al-
mennar 9,5%, Brú lífeyrissjóður 8,75% og Vá-
tryggingafélag Íslands 8,55%. Festa lífeyris-
sjóður og Íslandsbanki eiga hvort um sig
6,25%.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Fjárfestingarsjóðurinn 105 Miðborg
slhf. hefur rift samstarfi sínu við Ís-
lenska aðalverktaka vegna milljarða
framkvæmda á Kirkjusandi.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ríflega 7.000 fermetra skrifstofubygging stendur hálfkláruð við Sæbraut. 105 Miðborg þarf að
fá nýjan verktaka í stað ÍAV til að ljúka við smíði hennar enda ÍAV á förum í kjölfar deilna.
EUR/ISK
3.9.'20 2.3.'21
175
165
160
155
150
145
164,55
152,0
Úrvalsvísitalan
2.900
2.700
2.500
2.300
2.100
1.900
3.9.'20 2.3.'21
2.122,72
2.899,32
Andri Þór Guðmundsson, forstjóri
Ölgerðarinnar, er með mörg járn í
eldinum. Fyrirtækið hyggur nú á
frekari vöxt hér heima og erlendis.
Mikill áhugi hefur verið á drykkn-
um Collab erlendis en í ljósi auk-
innar sölu ásamt velgengni Collab
hyggur Ölgerðin nú á fjárfestingu í
nýju framleiðslurými. Að sögn
Andra er um nokkurra milljarða
króna fjárfestingu að ræða. Fram-
kvæmdin mun auka sveigjanleika
fyrirtækisins og opna á frekari
möguleika í útflutningi á íslenskum
drykkjum.
„Þetta fjórfaldar afkastagetu
okkar í dósum. Útflutningur á
vörum er ekki grundvöllur fyrir
viðskiptahugmyndinni en opnar
klárlega á þann möguleika. Fyrst
og fremst er þetta þó hugsað til
þess að auka afkastagetuna, auð-
velda nýsköpun og til hagræðingar í
rekstri,“ segir Andri og bætir við að
fyrsta skóflustungan verði tekin
síðar í þessum mánuði. Þá séu
framkvæmdarlok áætluð snemma á
næsta ári.
Stefnt að skráningu í Kauphöll
Auk þessa stefnir Ölgerðin nú á
skráningu í Kauphöll á næstu tveimur
árum. Þannig vonast Andri til að geta
með auðveldari hætti sótt fjármagn
og stækkað fyrirtækið með samrun-
um. „Við trúum því að við eigum fullt
erindi inn á markað en þar höfum við
greiðara aðgengi að fjármagni. Við
höfum hug á því að stækka með sam-
runum og með skráningu tel ég að
svoleiðis viðskipti geti
gengið greiðar fyrir sig.“
Fjárfesta fyrir milljarða í framleiðslurými
Morgunblaðið/Kristinn
Andri Þór Guðmundsson er forstjóri
og einn eigenda Ölgerðarinnar.
Ölgerðin blæs til sóknar og
ætlar að margfalda fram-
leiðslugetu sína með fjár-
festingu í nýrri byggingu.
6