Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.03.2021, Page 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.03.2021, Page 2
Segðu mér, um hvað fjallar Vegferðin? Vegferðin er um tvo miðaldra karlmenn, Víking Kristjáns og Ólaf Darra, sem leika sjálfa sig. Víkingur er með allt niður um sig í sínu lífi, á meðan Darri lifir Hollywood-glamúrlífi. Vík- ingur ákveður að draga Darra með sér í ferðalag til að ná jarð- tengingu með honum og endurheimta vinskapinn. Svo kannski snýst þessi ferð um meira en bara ferðina sjálfa; þetta er saga um vináttu, karlmennsku og að horfast í augu við sjálf- an sig. Er þetta ýkt útgáfa af þeirra eigin lífi? Já, bæði og. Hvort er þetta drama- eða gamansería? Þetta er alveg fyndið. Ég sagði þeim að það væri brjálæði að fá mig til að leikstýra gríni, en ef ég mætti nálgast þetta sem drama þá yrði það sem er fyndið bara fyndið, en með sterkum undirtóni. Hvernig gengu tökur? Þær gengu frábærlega. Við fórum um landið í mánuð og tókum upp ferðalagið í réttri röð. Við fengum bongóblíðu og það var lítið um ferðamenn þannig að þetta var algjör lukka. Það gekk allt eins og í sögu. Voru Víkingur og Ólafur Darri skemmtilegir ferðafélagar? Já, mjög. Þeir eru dásamlegir menn með stór hjörtu og alveg til í að gera grín að sjálfum sér. Er von á framhaldi? Ég vona það; við þurfum að sjá hvernig þetta fer í landann. Svo hef ég fengið sterk og góð viðbrögð að utan. Það er þörf fyrir svona bjartar og fallegar seríur líka. Morgunblaðið/Eggert BALDVIN Z SITUR FYRIR SVÖRUM Karlar í krísu Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.3. 2021 S unnudagsblað Morgunblaðsins fer víða, ég geri mér grein fyrir því. En að það hafi komið að sjúkraflutningum í Suður-Súdan eru nýjar upp- lýsingar fyrir mér. Eins undarlega og það hljómar er hér hvorki á ferðinni draumur né fantasía heldur kom þetta fram í samtali Sigmars Guð- mundssonar við Maríönnu Csillag í þættinum Okkar á milli í Ríkissjónvarp- inu í vikunni. Maríanna hefur sinnt hjálpar- og hjúkrunarstörfum víða um heim í tengslum við náttúruhamfarir og stríðsátök, svo sem á Haíti, Srí Lanka, í Bosníu og Rúanda. Og svo í Suður-Súdan. Þar var hún sumsé að vinna á heilsugæslustöð þegar slasaða konu bar að garði og þótti Maríönnu strax allt benda til þess að hún væri háls- brotin. Búa þurfti vel um háls kon- unnar áður en hún væri flutt um langan veg á spítala en engan háls- kraga eða annan slíkan búnað var að hafa á staðnum. Nú voru góð ráð dýr. Vildi þá til happs að Maríanna hafði nýfengið póstinn sinn sendan að heiman og þar á meðal digran Sunnudagsmogga sem hún áttaði sig fljótt á að gæti leyst hálskragann af hólmi. Hann og nokkrir múrsteinar með. Engar börur var heldur að hafa á heilsugæslunni, þannig að ekki var um annað að ræða en að taka útidyra- hurðina af hjörunum og leggja konuna á hana. Þannig var hún flutt með flug- vél á Rauða kross-sjúkrahús í Keníu, þar sem hún fékk viðeigandi læknis- aðstoð. Maríanna hitti konuna síðar og hún hafði ekki lamast. Viðtalið var mjög áhugavert enda margt á daga viðmælandans drifið á þessum framandi slóðum sem flest okkar heyra bara af í fréttum. Sigmar á mikið lof skilið fyrir þessa þætti sína, Okkar á milli, þar sem hann hefur verið einstaklega fundvís á áhugavert fólk sem yfirleitt er ekki fastagestir í sjón- varpi eða öðrum fjölmiðlum en hefur eigi að síður frá mörgu að segja. Þannig hafði ég líka mjög gaman af næsta viðmælanda á undan Maríönnu, tónlistarmanninum og þúsundþjalasmiðnum Bjarna Hafþóri Helgasyni, sem einkum og sér í lagi fjallaði um glímu sína við parkinsonsjúkdóminn. Og það með húmorinn að vopni. Sagan þar sem eiginkonan kom að honum pissu- blautum í dyragættinni var óborganleg og augljóst að Bjarni Hafþór hefur ákaflega góðan húmor fyrir sjálfum sér. Ég man fyrst eftir Bjarna Hafþóri þegar hann lék knattspyrnu með Þór á Akureyri á níunda áratug seinustu aldar en hef aldrei náð að kynnast manninum persónulega – sem er synd enda virkar hann með okkar allra skemmtilegustu mönnum. Sunnudagsmogg- inn í Suður-Súdan Pistill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’ Maríanna hafði nýfengið póstinn sinn sendan og þar á meðal digran Sunnudagsmogga sem hún áttaði sig fljótt á að gæti leyst hálskragann af hólmi. Ísleifur Birgisson Já, ég mun sjá það. Ég er að bíða eftir rétta veðrinu. SPURNING DAGSINS Ætlar þú að sjá gosið? Anna Hjaltadóttir Ég er búin að sjá það úr fjarska. Björn Þór Hannesson Já að sjálfsögðu. Guðbjörg Rut Róbertsdóttir Ég er búin að sjá það úr fjarska. Ég er frá Grindavík. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina tók Ásdís Ásgeirsdóttir Vegferðin er ný íslensk sjónvarpssería sem frumsýnd verður á Stöð 2 þann 4. apríl. Baldvin Z leikstýrir en aðalleikarar eru Ólafur Darri Ólafsson og Víkingur Kristjánsson sem einnig skrifaði handritið. Glassriver framleiðir. VERIÐ VELKOMIN Í SJÓNMÆLINGU Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18, laugardaga 11-14

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.