Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.03.2021, Síða 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.03.2021, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.3. 2021 MENNTUN V erkefninu Betri borg fyrir börn var hleypt af stokk- unum fyrir rúmu ári og var hugsað sem tveggja ára tilrauna- verkefni sem síðan væri hægt að halda áfram með ef vel til tækist. „Tilgangurinn er að allir sem koma að börnum í Breiðholti vinni saman í þágu barna og fjölskyldna,“ segir Sigurlaug Hrund Svavars- dóttir, fagstjóri grunnskólahluta skóla- og frístundadeildar Breið- holts. „Ég talaði um það þegar Ásmund- ur Einar Daðason fór af stað með farsældarfrumvarpið að við séum undanfarar. Við erum að undirbúa jarðveginn fyrir farsældarfrumvarp- ið, þótt þetta verkefni sé gert að frumkvæði Reykjavíkurborgar; vel- ferðarráðs og skóla- og frístunda- ráðs,“ segir Óskar Dýrmundur Ólafsson en þess má geta að megin- markmið laganna er að börn og for- eldrar sem á þurfa að halda hafi að- gang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana. „Verkefnið Betri borg fyrir börn var sett á laggirnar til tveggja ára og við erum hálfnuð í því verkefni að ná saman þessari samþættingu og samvinnu í kringum barnið og fjöl- skyldu,“ segir Óskar. Breiðholt eins og þorp Hvernig er þessum málum háttað í dag á höfuðborgarsvæðinu? „Það er svolítið misjafnt eftir hverfum, en Breiðholt hefur alltaf verið framarlega í samstarfi margra aðila sem koma að börnum og fjöl- skyldum, en nú erum við að brjóta múranna enn meira og efla sam- skipti allra þessara fagaðila. Það er ekki sjálfgefið að fólk vinni svona þétt saman. Við erum ekki að ein- blína bara á barnið heldur barnið og fjölskyldu sem eina heild,“ segir Sig- urlaug. „Sigurlaug er nú yfirmaður grunnskólaskólastjóra hér í hverf- inu. Áður var yfirmaðurinn niðri á Höfðatorgi, þannig að nú er komin þéttari stýring. Það er búið að færa stjórnunina frá Höfðatorgi og hing- að hvað varðar leik- og grunn- skólana sérstaklega. Breiðholtið verður þá eins og lítill bær eða þorp og við sitjum hér öll á sama svæðinu. Málin eru kannski leyst bara á tíu mínútum en áður tók tíma bara að ná fundi saman,“ segir Óskar. „Hluti af okkur er í sama húsi þar sem við getum átt samstarf en svo flyst hluti af þessari þjónustu út á starfsstaðina. Sérfræðingar okkar hér, eins og félagsráðgjafar, skóla- sálfræðingar og kennsluráðgjafar, eru þá í miklu meiri tengslum við vettvanginn í leikskólum, grunn- skólum og frístundahlutanum, “ seg- ir Sigurlaug. „Þau eru meira þar sem börnin eru, og það er líka svolítið nýtt. Við erum að ganga lengra á allan hátt til að fara nær barninu,“ segir Óskar. Samfella í þjónustu Sigurlaug segir það sitt hlutverk að styðja við stjórnendur grunnskól- anna á vettvangi og hjálpa þeim að leysa öll mál sem koma upp og það strax. Fagstjóri leikskólahluta og framkvæmdastjóri frístundamið- stöðvar gegna sama hlutverki fyrir sína stjórnendur. „Við vonumst auðvitað til þess að það leiði af sér betra skólastarf og betri þjónustu fyrir börnin,“ segir Sigurlaug og nefnir að unnið sé í nánum tengslum við velferðarsvið sem er á sama stað. „Ef ég tæki dæmi, þá virkar þetta þannig að skólastjórar hér í hverfinu geta hringt í mig ef þeir hafa áhyggj- ur af barni. Þá get ég, með alla þessa tengingu við fagfólkið hér í kringum mig, komið af stað vinnu eða sett saman teymi í kringum barnið eða fjölskylduna. Þá þarf skólastjórinn ekki að hringja á marga staði; í fé- lagsráðgjafann, á skrifstofu skóla- og frístundasviðs í Borgartúni og í fleiri aðila. Ég vil að við getum leyst þetta á einum stað,“ segir Sigurlaug og segist vonast til að barnavernd komi inn í samstarfið líka. „Ef dóttir mín væri í vanda í skól- anum vildi ég ekki þurfa að pæla í því hvort einhverjar stofnanir úti í bæ gætu komið á fund. Ég myndi vilja að allir kæmu saman að aðstoða barnið mitt. Ég vann í rannsókn fyr- ir 25 árum síðan þar sem verið var að skoða reynslu fólks sem átti mikið fötluð börn. Mér er það svo minnis- stætt, og ég hugsa um það oft í tengslum við þetta verkefni, að ein móðirin lýsti þeirri þrautargöngu að þurfa að ganga á milli stofnana til að fá hjálp fyrir barnið. Það hefði verið þvílíkur munur ef eitthvert svona kerfi hefði verið til þá fyrir þessa móður,“ segir Sigurlaug og segir þau aldrei mega gleyma að verk- efnið snýst fyrst og fremst um fólk. Flott fjölmenningarhverfi „Svona kerfi auðveldar fólki að tala saman og verður einnig þess valdandi að við nýtum betur fjár- muni. Það nýtist til dæmis vel í frí- stundaverkefni sem við erum með í gangi sem snýr að því að hjálpa börnum í fátækt enn frekar að vera í frístundum,“ segir Óskar. „Okkar tilfinning er sú að þetta samspil sé að virka og sé að bæta líf barna og fjölskyldna og þá sérstak- lega þeirra jaðarsettu. Við erum hér í flottu fjölmenningarhverfi og þá skiptir líka miklu máli að vera í góð- um tengslum við fólk,“ segir Óskar og nefnir að í Breiðholti sé verkefni sem nefnist Velkomin í hverfið. Þá er tekið á móti nýjum íbúum af er- lendum uppruna og þeim kynnt hverfið og hvað sé í boði. „Þau fá heildstæða móttöku sem tengist svo inn í verkefnið Betri borg fyrir börn. Þessi samfella í þjónustu er framtíðin,“ segir Óskar. „Það er eitt af stóru málunum; hvernig tekið er á móti fólki af er- lendum uppruna.“ Samstarfið þéttist Skóla- og frístundasvið er með mið- læga þjónustu í Borgartúni við grunnskóla borgarinnar. „Við erum í raun búin að flytja hluta af þeirri þjónustu hingað í hús- næði þjónustumiðstöðvarinnar þar sem við erum að sinna öllu því sem kemur við skólum og frístundum í Breiðholti. Öll skóla-, frístunda- og velferðarþjónusta er því hér á sama stað,“ segir Sigurlaug og segir um 2.500 grunnskólabörn í Breiðholti. „Annað sem hefur breyst er að hingað til hefur verið óformlegt sam- starf á milli leikskólanna og grunn- skólanna og frístundarinnar en nú er það að þéttast enn meira. Við erum að sjá hagkvæmni þess að þetta sé allt í samfellu og að jafnvel sé verið að vinna eftir svipuðum áherslum. Eitt nýtt tilraunaverkefni er nú í gangi í Fellahverfi sem felst í því að sami aðili er verkefnastjóri í leik- og grunnskóla í öllu sem varðar mál- þroska og læsi. Það styður vel við svona samstarf eins og Betri borg fyrir börn,“ segir Sigurlaug. „Verkefnið okkar þéttir einnig samstarf á milli grunnskólanna í hverfinu og eykur þetta faglega samtal á milli stjórnenda sem svo hríslast út í starfsmannahópana. Þetta á einnig við um leikskólana. Við sjáum mikinn mun þarna,“ segir Sigurlaug. Að brjóta ísinn Nú eru fjórtán mánuðir síðan verk- efnið fór af stað og áhrifanna er farið að gæta. „Þetta er fyrirmyndarverkefni sem verður svo hugsanlega fyrir- mynd í öðrum hverfum, eða hægt verði að draga frá því mikinn lær- dóm við að breyta þjónustunni í þessa átt annars staðar. Það var val- ið að byrja í Breiðholti því hér hefur ríkt mikil samstarfshefð sem var bú- ið að þróa hér áður,“ segir Óskar. „Við hér í grunnskólunum höfum kallað mjög eftir svona samfelldri þjónustu við börn og fjölskyldur,“ segir Sigurlaug og segir slíkt fyrir- komulag það sem koma skal. „Við erum svolítið að brjóta hér ís- inn,“ segir Óskar og segir þau enn að þróa verkefnið. Sigurlaug segir að fólk taki vel í breytingarnar. „Við erum sátt og við heyrum að fólk sé mjög ánægt með verkefnið.“ Fyrirmyndarverkefni í Breiðholti Óskar Dýrmundur og Sigur- laug Hrund segja mikla hag- ræðingu í því að hafa marga þjónustuaðila á sama stað. Morgunblaðið/Ásdís Sigurlaug Hrund Svavarsdóttir fagstjóri og Óskar Dýrmundur Ólafsson hverfisstjóri Breiðholts telja verk- efnið Betri borg fyrir börn hafa bætt hag barna og fjölskyldna. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Morgunblaðið/Ásdís Tilgangur verkefnisins er : að samhæfa vinnu, skóla-, frístunda- og velferðarþjónustu í Breiðholti og auka þverfaglega samvinnu. að gera skóla- og frístundaþjónustu heiltæka. að styrkja samlegð og samfellu í þjónustu við skóla, frístundaheim- ili og félagsmiðstöðvar – auka samstarf og gæði. að auka dreifstýringu í leik- og grunnskólastarfi – skapa nálægð við stjórnendur í hverfinu. að nýta mannauð og fjármagn í skóla-, frístunda- og velferðarstarfi. Betri borg fyrir börn ’ Mér er það svo minnisstætt, og ég hugsa um það oft í tengslum við þetta verk- efni, að ein móðirin lýsti þeirri þrautargöngu að þurfa að ganga á milli stofnana til að fá hjálp fyrir barnið.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.