Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.03.2021, Page 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.03.2021, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.3. 2021 08.00 Strumparnir 08.20 Blíða og Blær 08.45 Víkingurinn Viggó 08.55 Adda klóka 09.20 Mia og ég 09.40 Lína Langsokkur 10.05 Lukku láki 10.30 Ævintýri Tinna 10.50 Angry Birds Stella 11.00 It’s Pony 11.30 Top 20 Funniest 12.10 Nágrannar 12.35 Nágrannar 12.55 Nágrannar 13.15 Nágrannar 13.40 Nágrannar 14.05 BBQ kóngurinn 14.35 Blindur bakstur 15.05 Um land allt 15.50 Grand Designs 16.50 60 Minutes 17.35 Víglínan 18.26 Veður 18.30 Fréttir Stöðvar 2 18.40 Sportpakkinn 18.50 Ísland í dag 19.05 Leitin að upprunanum 19.45 Inside the Ritz Hotel London 20.35 Finding Alice 21.25 Tell Me Your Secrets 22.15 Prodigal Son 2 23.00 Tin Star: Liverpool 23.50 Shameless ÚTVARP OG SJÓNVARP Sjónvarp Símans RÚV Rás 1 92,4 . 93,5 Omega N4 Stöð 2 Hringbraut 20.00 Hátækni í sjávarútvegi – Nýtt skip til landsins 21.00 Vegabréf – Bryndís Óskarsdóttir 21.30 Tónlist á N4 Endurt. allan sólarhr. 16.00 Trúarlíf 17.00 Times Square Church 18.00 Tónlist 18.30 Ísrael í dag 19.30 Jesús Kristur er svarið 20.00 Blönduð dagskrá 21.00 Blönduð dagskrá 22.30 Gegnumbrot 23.30 Tónlist 20.00 Mannamál (e) 20.30 Atvinnulífið (e) 21.00 Suðurnesja-magasín Víkurfrétta (e) 21.30 Sir Arnar Gauti (e) Endurt. allan sólarhr. 13.00 Dr. Phil 13.45 Dr. Phil 14.30 Það er komin Helgi 16.00 Family Guy 16.20 The King of Queens 16.40 Everybody Loves Ray- mond 17.05 Fótboltastelpur 18.15 For the People 19.00 Hver drap Friðrik Dór? 19.30 Með Loga 20.10 This Is Us 21.00 Roadkill 21.55 The Good Lord Bird 22.45 The Walking Dead 23.30 The Resident 00.15 Station 19 01.00 The Rookie 01.45 Blue Bloods 06.55 Morgunbæn og orð dagsins. 07.00 Fréttir. 07.03 Hringsól. 08.00 Morgunfréttir. 08.05 Á tónsviðinu. 09.00 Fréttir. 09.03 Svona er þetta. 10.00 Fréttir og veðurfregnir. 10.15 Bók vikunnar. 11.00 Guðsþjónusta í Kópa- vogskirkju. 12.00 Hádegisútvarp. 12.20 Hádegisfréttir. 13.00 Sögur af landi. 14.00 Víðsjá. 15.00 Lestin. 16.00 Síðdegisfréttir. 16.05 Úr tónlistarlífinu: Draumar og brothætt hjörtu. 17.25 Orð af orði. 18.00 Kvöldfréttir. 18.10 Hryggsúlan. 18.50 Veðurfregnir. 18.53 Dánarfregnir. 19.00 Óskastundin. 19.40 Ástir gömlu meist- aranna. 20.35 Gestaboð. 21.30 Fólk og fræði. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Á reki með KK. 23.10 Frjálsar hendur. 24.00 Fréttir. 00.05 Næturútvarp Rásar 1. 07.15 KrakkaRÚV 07.16 Tulipop 07.19 Minnsti maður í heimi 07.20 Refurinn Pablo 07.25 Úmísúmí 07.48 Poppý kisukló 07.59 Kúlugúbbarnir 08.22 Lautarferð með köku 08.28 Hæ Sámur – 44.. þáttur 08.35 Flugskólinn 08.57 Hrúturinn Hreinn 09.04 Múmínálfarnir 09.26 Robbi og Skrímsli 09.48 Sjóræningjarnir í næsta húsi 09.59 Minnsti maður í heimi 10.00 Menningin – samantekt 10.30 Ævar vísindamaður 11.00 Silfrið 12.10 Músíkmolar 12.20 Bækur og staðir 12.30 EM stofan 12.50 Ísland – Danmörk 14.50 EM stofan 15.10 HM stofan 15.50 Armenía – Ísland 17.50 HM stofan 18.20 Táknmálsfréttir 18.30 KrakkaRÚV 18.31 Stundin okkar 18.50 Landakort 19.00 Fréttir 19.25 Íþróttir 19.35 Veður 19.45 Landinn 20.20 Ísland: bíóland – Vor- hret á glugga 21.20 Einkar enskt hneyksl- ismál 22.20 Hrafninn flýgur 00.05 Silfrið 9 til 13 100% helgi með Stefáni Valmundar Stefán spilar góða tónlist og fer yfir valið efni úr morgun- og síðdegisþáttum K100. 13 til 16 100% helgi með Þór Bæring Þór Bæring og besta tónlistin á sunnudegi. Þór er góður að þefa uppi það sem fjölskyldan getur gert sér til skemmtunar á sunnudögum. 16 til 18 Tónlistinn Topp40 Dj Dóra Júlía fer yfir 40 vin- sælustu lög landsins á eina opinbera vinsældalista Íslands sem er unninn í samstarfi við félag hljómplötuframleiðenda. Vinkonurnar Anna Sigga og Anna Lilja hafa verið bestu vinkonur frá sex- tán ára aldri. Báðar hafa þær gengið í gegnum þá erfiðu reynslu að missa maka fyrir þrítugt og hafa því báðar reynsluna af því að vera sá sem missir og að vera nánasti aðstandandi. Þær opnuðu síðuna tilstadar.is á dögunum þar sem hægt er að kaupa eins konar sam- úðargjöf fyrir þá sem vilja vera til staðar en kunna það jafnvel ekki. Inni á heimasíðunni er hægt að kaupa stórt box sem inniheldur fjögur minni box. Hvert og eitt box inniheldur svo gjöf og spjald með skilaboðum. Vinkon- urnar segja að boxin eigi alls ekki bara við þegar um andlát sé að ræða heldur sé einnig hægt að gefa þau við aðrar aðstæður og segjast þær hafa passað upp á það að gjafirnar og spjöldin höfði til allra. Viðtalið við vinkonurnar má nálgast á heild sinni á K100.is. Misstu báðar maka fyrir þrítugt H ann hafði ekkert fyrir því að þruma knettinum á 150 kílómetra hraða á klukku- stund í netið og einu sinni var víta- spyrna sem hann tók mæld á 172 kílómetra hraða. Eins gott fyrir markverði að þvælast ekki fyrir þessum sleggjum. Hafi einhver efast um að Peter Lorimer væri skotfastasti leikmaðurinn í ensku knattspyrnunni voru öll tvímæli lögð til hliðar eftir að hann heim- sótti vopnaverksmiðju nokkra í Miðlöndunum ásamt tveimur áskor- endum og kempum þess tíma, Bobby Charlton og Francis Lee. Græja sem hönnuð var til að mæla hraðann á byssukúlum var ræst og ekki þurfti nema nokkrar spyrnur til að krýna meistarann – Peter Lorimer. Af mörgum stórbrotnum mörkum Lorimers úr langskotum er markið gegn Manchester City haustið 1971 líklega frægast. Hann fékk þá send- ingu frá Billy Bremner; sló tvo varnarmenn út af laginu með því að lyfta knettinum upp í loft áður en hann lúðraði honum í blávinkilinn framhjá bjargvana Joe Corrigan. Lorimer, sem lést um liðna helgi eftir langvarandi veikindi, 74 ára að aldri, er réttnefnd goðsögn hjá Leeds United og markahæsti leik- maðurinn í sögu félagsins með 238 mörk í 705 leikjum. Hann er einnig sá yngsti til að klæðast hvítu treyj- unni, var aðeins fimmtán ára og 289 daga gamall þegar hann þreytti frumraun sína með liðinu árið 1962. Lorimer, sem fæddist í Dundee í Skotlandi árið 1946, var algjör lyk- ilmaður í gullaldarliði Leeds undir stjórn Dons Revies á sjöunda og átt- unda áratugnum; vann tvo meistaratitla og bikarinn og deilda- bikarinn einu sinni hvort mót. Þá var hann í liði Leeds sem laut í gras gegn Bayern München í úrslitaleik Evrópukeppni meistaraliða 1975. Leikmenn úr þessu merka liði týna nú óðum tölunni en Norman Hunter og Jack Charlton féllu frá í fyrra og áður hafði Billy Bremner kvatt. Af þeim sem enn lifa má nefna Allan „þefvísa“ Clarke, Eddie Gray, Johnny Giles og Mick Jones. Afslappaður utan vallar Lorimer gaf sig allan í leikinn en var þekktur fyrir að vera afslappaður utan vallar. Þannig rifjaði breska blaðið The Guardian upp í vikunni að hann hefði gjarnan laumað sér út úr búningsklefanum á leikdegi til að horfa á kappreiðar í sjónvarpinu í betri stofu leikmanna. Tíu mínútum fyrir leik sneri hann svo aftur í klef- ann til að hlusta á Revie leggja lín- urnar. „Ég var aðeins afslappaðri en hinir. Ég hafði yndi af því að leika knattspyrnu en ef ég tapaði þá lét ég það aldrei bitna á fjölskyldunni. Það hefur ekkert breyst; ekkert kemur mér úr jafnvægi,“ hefur The Guardian eftir honum. Mörg bestu félagslið Englands voru á eftir Lorimer en það var Don Revie sem sannfærði foreldra hans um að Elland Road væri rétti stað- urinn fyrir son þeirra til að vinna úr sínum hæfileikum. Þar með hófst vegferð sem stóð í tæplega sextíu ár. Hann lagðist reyndar í flakk árið 1979 en skilaði sér á endanum heim fjórum árum síðar og lék þrjú síð- ustu tímabilin með Leeds í 2. deild- inni. Linnti ekki látum fyrr en rétt fyrir fertugsafmælið 1986. Eftir það gerðist hann ötull talsmaður félags- ins og gegndi trúnaðarstörfum. Það þykir ótrúlegt afrek í dag að spila til fertugs, hvað þá fyrir 35 ár- um þegar sparkendur lifðu ekki sama meinlætalífinu og nú og öll þjálfun var frumstæðari. Ef til vill hefur það hjálpað hvað Lorimer var sultuslakur að upplagi. Svo horfði hann mikið á hesta. Enginn skyldi vanmeta gildi þess. orri@mbl.is Peter Lorimer skorar fyrir Leeds United gegn Barcelona á Nývangi í undan- úrslitum Evrópukeppni meistaraliða vorið 1975. Hann var iðinn við kolann. AFP LEEDS-GOÐSÖGNIN PETER LORIMER FALLIN FRÁ Ein mesta skytta sögunnar Lorimer var harður Leedsari frá því að hann gekk fyrst í raðir félagsins árið 1962, aðeins fimmtán ára gamall, og allt til æviloka. Hann lést um liðna helgi. AFP - heimili, hönnun, tíska og samkvæmislífið Lífstílsvefurinn okkar - fylgt landsmönnum í 10 ár SMARTLAND MÖRTUMARÍU Vertu með á nótunum

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.